Morgunblaðið - 22.06.2009, Side 26
Aðskilin í æsku? Susan Boyle og Simon Cowell.
HINN harðsvíraði hæfileika-
keppnisdómari Simon Cowell hef-
ur viðurkennt mistök vegna Sus-
an Boyle, internetundursins sem
gerði allt vitlaust með töfrum
slegnum söng sínum í Britain’s
Got Talent. Í lokakeppninni hafn-
aði hún í öðru sæti og var lögð
niðurbrotin inn á geðdeild í kjöl-
farið. Í grein eftir Cowell, sem
birtist í Daily Mail, segir hann að
hann og meðdómarar hans hafi
ekki höndlað mál Boyle nægilega
vel.
„Ég átti ekki von á því, frekar
en nokkur annar, að þessi kona
ætti eftir að verða frægasta kona
heims á nokkrum dögum,“ segir
Cowell. „ Ég hugaði ekki að því
hvort hún þyldi þetta andlega,
eftir á að hyggja. Tilgangur minn
með þessu stússi mínu er a.m.k.
ekki að gera skurk í sálarlífi
sómakvenna eins og Boyle.“
Cowell sagðist hafa talað við
fjölskyldu Boyle og hún var á því
að Cowell og co bæru ekki sök á
því hvernig fór. Boyle kemur
fram á Wembley í kvöld. Ekki er
svo með öllu illt...
Cowell viðurkennir mistök
AÐDÁENDUR Uxavaðskvintettsins
Radiohead geta glaðst því að von er
á fleiri endurútgáfum af eldra efni
sveitarinnar. Nú liggja fyrir veg-
legar endurútgáfur á þremur
fyrstu breiðskífum sveitarinnar og
nú skal lagt í næstu þrjár, Kid A
(2000), Amnesiac (2001) og Hail to
the Thief (2003). Útgáfa er áætluð í
lok ágúst og verða plöturnar jafn
pakkaðar og þrjár þær fyrstu, sem
báru með sér stútfulla aukadiska,
mynddiska og fleira. Jibbí!!!
Thom Yorke „Guð gefi nú að þetta
seljist eitthvað...“
Fleiri endur-
útgáfur frá
Radiohead
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
HEIMSFRUMSÝNING
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
Frábær teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna með
íslensku tali.
Þetta er hið klassíka
ævintýri um Gullbrá og
birnina 3 í nýrri og
skemmtilegri útfærslu.
750 kr almennt
600 kr börn
Stærsta mynd ársins -
38.000 manns!
75
0k
r.
Stærsta mynd ársins
- 38.000 manns!
75
0k
r.
HEIMSFRUMSÝNING
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
750kr.
Frábær ævintýra
gamanmynd í anda fyrri myndar!
750k
r.
750kr.
UPPLIFÐU FYNDNASTA
FERÐALAG ALLRA TÍMA !!
UPPLIFÐU FYNDNASTA
FERÐALAG ALLRA TÍMA !!
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
750kr.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI
OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Year One kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Ghost of Girlfriends past kl. 5:50 - 8 B.i.12 ára
Terminator: Salvation kl. 10 LEYFÐ
Year One kl. 6 - 8:30 - 10:40 B.i. 7 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 6 LEYFÐ
Ghosts of Girlfriends Past kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 - 8 - 10 B.i.14 ára
Year One kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Night at the museum 2 kl. 5:40 - 8 LEYFÐ
X-Men Origins: Wolfe... kl. 10:20 B.i. 14 ára
Angels and Demons kl. 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára
TRÚBATRIX eru samtök sem
miða að því að koma tónlist kvenna
á framfæri. Og það er nú bara einu
sinni þannig, að í
hinum mjög svo
karllæga rokk-
heimi þarf iðu-
lega átak af þess-
um toga til að
koma tónlistinni
eitthvað lengra.
Nema þá að
stúlkurnar séu
tilbúnar til að
fara úr öllum föt-
um og flassa
brjóstunum. Þá
opnast mögulega
einhver tæki-
færi...
Viðlíka verkefnum hefur verið
hrundið af stað í gegnum tíðina en
það er eftirtektarvert hversu vel
Trixin hafa haldið á. Tónleikar
hafa verið reglubundnir og nú í
júní var farið í hringferð um land-
ið. Og þá er komin út plata,
sautján laga með jafn mörgum
flytjendum. Eins og nafnið Trúbat-
rix gefur til kynna eru þetta í flest-
um tilfellum lágstemmdar laga-
smíðar (allar frumsamdar NB), ein
stúlka og gítar og möguleg smá
skraut í kring.
Lögin eru eðlilega eins mismun-
andi og þau eru mörg. Engu að
síður má greina heildaráferð, inni-
lega og værðarlega. Reyndar renn-
ur platan furðu vel í gegn og það
eru engin handónýt lög innan um.
Upp úr stendur framlag Heiðu
Dóru, „Þynnkublús“, þar sem lífs-
ins spil eru lögð kankvíslega á
borð undir einföldu gítarspili. Ís-
lenskur textinn er frábær, hnyttin
lýsing á ævintýrum og ömurleika
hversdagsins sem gefur Streets
eða Lily Allen ekkert eftir. Elín
Ey syngur líka eins og hún hafi
fæðst á baðmullarakri í Suðurríkj-
unum, af djúpri tilfinningu og
einnig vil ég nefna framlag Pascal
Pinon, einlægt mjög og hrátt. Uni
og Songbird standa sig ennfremur
með mikilli prýði. Nokkur laganna
eru fremur óeftirtektarverð, verð-
ur að viðurkennast en það er
merkilegt hvað maður tekur mun
betur eftir þegar sungið er á hinu
ylhýra.
Það allra besta er þó sjálf útgáf-
an, það að það hafi verið ráðist í
hana. Pakkningin er snyrtileg og
ber með sér heimilislega natni,
diskurinn er brenndur o.s.frv.
Sjálfsþurftarbúskapur sem er til
fyrirmyndar, og eitthvað sem verð-
ur auk þess nauðsynlegt á næstu
árum í þessu guðsvolaða landi.
Hin svokallaða myspacevæðing
hefur gert það verkum að ungir
lagahöfundar út um allan bæ eru
að pósta lögum upp á vefsetur sín.
Að raka þess hæfileikafólki svona
saman er þó nauðsynlegt og ég
hafði svei mér þá ekki gert mér
grein fyrir því að svo mikið væri af
frambærilegum kvenkyns söngva-
skáldum. Töku 2 takk, og það sem
fyrst.
Geisladiskur
Trúbatrix – Taka 1
m
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Frábært framtak
Áfram stelpur! Nokkrar Trúbat-
rixur fagna safnplötunni.
KVIKMYNDIN Bónorðið eða The Proposal
var langvinsælasta mynd helgarinnar í
Bandaríkjunum og Kanada, en þar fara
Sandra Bullock og Ryan Reynolds með aða-
hlutverkin. Er þetta í fyrsta sinn í áratug
sem Bullock á mynd í efsta sæti aðsóknarlist-
ans ameríska. Þetta er þá stærsta opnun sem
Bullock hefur upplifað á löngum ferli. Síðast
var Bullock á toppnum með myndina Forces
of Nature en þar lék Ben Affleck á móti
henni. Aðáendur hinnar þokkafullu Bullock,
sem er nú orðin 44 vetra, hafa fagnað þess-
um áfanga innilega og vonast að sjálfsögðu
eftir því að þessi sterka innkoma beri með
sér nýtt blómaskeið...
REUTERS
Enn með þetta Sandra Bullock er stórglæsileg kona.
Bullock á toppinn eftir tíu ára bið