Morgunblaðið - 22.06.2009, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
LANG VINSÆLASTA MYNDIN!
28.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
TVÆR VIKUR Á
TOPPNUM Í USA
„ÉG HEF EKKI SKEMMT MÉR BETUR Í BÍÓ SÍÐAN
EINHVERN TÍMANN Á SÍÐUSTU ÖLD.“
„ÞÁ ER HANDRITIÐ MEINFYNDIÐ,
UPPFULLT AF GEGGJUÐUM UPPÁKOMUM.“
„FLEST LEGGST Á EITT AÐ HALDA MANNI Í NÁNAST
ÓSTÖÐVANDI HLÁTURSKASTI OG „GÓÐUM FÍLING“,
ALLT FRÁ UPPHAFSMÍNÚTUNUM...“
S.V. - MBL
„THIS IS SO FAR THE BEST
COMEDY OF THE YEAR.“
PREMIERE
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
THE HANGOVER kl. 6D - 6:50D - 8D - 9D - 10:20D 12 DIGITAL
MANAGEMENT kl. 6 - 8 - 10:20 10
L
THE HANGOVER kl. 5:50 - 8D - 8:30 - 10:20D - 11 12 DIGTAL THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 10:20 16
THE HANGOVER kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 8 10
MANAGEMENT kl. 8 - 10:20 10 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6 L
ADVENTURELAND kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 HANNAH MONTANA kl. 5:50 L
CORALINE 3D ísl. tal kl. 5:503D L 3D DIGTAL
ROKRASS og veðravíti kemur sjálf-
sagt fyrst í huga Íslendinga þegar
þeir heyra nafnið Stórhöfði. Engin
furða því þar hefur mælst mestur
vindhraði á landinu, einir 67 metrar
á sekúndu. Til að útskýra það betur
má nefna að helmingurinn af þeirri
veðurhæð er ósvikið manndráps-
veður og ekki hundi út sigandi.
Tiltölulega þröngur hópur þekkir
hinsvegar til Óskars J. Sigurðs-
sonar, mannsins sem gerði það að
ævistarfi að taka við vörslu vitans á
Stórhöfða af föður sínum og jafn-
framt að stunda nákvæmar veð-
urathuganir á þriggja tíma fresti ár-
ið út og inn. Þá er ótalið eitt
merkasta af mörgum verkefnum
Óskars þar uppi í höfðanum, sem er
margvíslegar umhverfisrannsóknir,
m.a. á eiturefnum í úrkomu sem
gefa mikilvægar upplýsingar um
manngerða ógn sem steðjar að líf-
ríkinu. Síðast en ekki síst er Óskar
einn afkastamesti fuglamerk-
ingamaður landsins, og heimsins
(sbr. tilvitnun í Heimsmetabók Gu-
innes í upphafi myndarinnar), hefur
merkt tæplega 90.000 fugla, einkum
lunda, fýl og snjótittling, algengustu
nágranna þessa mæta náttúruunn-
anda. Hann er hvergi nærri hættur
og kæmi ekki á óvart þó hann nálg-
aðist 100 þúsund fugla markið áður
en hann leggur háf sínum til hlés.
Starfsævi Óskars er orðinn löng
og ströng, hann hóf veðurmælingar
upp úr miðri síðustu öld og tók við
vitvörslu af föður sínum skömmu
síðar. Nú stendur hann á merkum
tímamótum, hann er að ljúka far-
sælu ævistarfi sem vitavörður því
nú hefur tæknin útrýmt þessari
mikilvægu og lífsnauðsynlegu ör-
yggisgæslu. Óskar er að fylla kvót-
ann í árum talið sem opinberir
starfsmenn falla undir og þá mun
síðasti vitavörður landsins leggja
niður störf, en vitinn sjálfur er ald-
argamall um þessar mundir. Veð-
urathuganir og fuglamerkingar
verða hins vegar áfram í hans hönd-
um svo lengi sem hann sjálfur
ákveður.
Sá sem þessar línur skrifar var
svo lánsamur að kynnast lífinu uppi
á Stórhöfða sem starfsmaður við
viðhald hjá Vitamálastofnun á sjö-
unda áratugnum. Það var ógleym-
anlegur tími á höfðanum, þessari
náttúruperlu iðandi af fjölbreyttu
lífi. Góðviðrisdagarnir eru minn-
isstæðari en rokið og rigningin, sem
þó hefur sjálfsagt verið meira áber-
andi í veðurfarinu. Hvað sem því líð-
ur var alltaf dúnalogn í kringum
hæverska vitavörðinn sem vann öll
sín verk af fumleysi og yfirvegun
vísindamannsins. Óskar hefur allt til
að bera sem prýtt getur slíkan
mann en aðstæðurnar réðu því að
hann var þegar á unglingsaldri orð-
inn ómissandi við ýmsar vísinda-
legar athuganir sem voru óvenju
bindandi. Þegar maður sér Óskar
áratugum síðar er þessi sama frið-
sæla og ábyrga vísindamannsára yf-
ir manninum, hann hefur lítið
breyst eins og höfðinn. Heims-
methafinn í vitanum er fróðleg og
falleg heimildarmynd um stór-
merkilegt ævistarf æðrulauss
manns sem hefur kosið að fást við
þau í friði fyrir áreiti umhverfisins.
Afköst hans við fuglamerkingar eru
með ólíkindum og eru og verða
hornsteinn í rannsóknum á lífríkinu
þar sem uggvænleg teikn eru á lofti
um snarpa sviptivinda. Lífræna
gagnasöfnunin eru síst ómerkari,
sama má segja um fjölmörg önnur
störf þessa hægláta manns sem
löngu var orðið tímabært að kynna
fyrir alþjóð.
Háskólabíó
Heimsmethafinn í vitanum
bbbmn
Íslensk heimildarmynd eftir Jón Karl
Helgason. Myndataka, hljóð, klipping og
framleiðsla: Jón Karl Helgason. Handrit:
Kristín Jóhannsdóttir. Tónlist: Arnar
Ólafsson og Birgir Hilmarsson. Hljóð-
setning: Gunnar Árnason. 60 mín. JKH
kvikmyndagerð. Ísland 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Hægláti heimsmethafinn
Stórhöfðaviti „Fróðleg og falleg
heimildarmynd um stórmerkilegt
ævistarf æðrulauss manns,“ segir
Sæbjörn Valdimarsson um heimild-
armynd Jóns Karls.
NÝJASTA kvikmynd grínleikarans Sacha Baron Cohen, Bruno var frumsýnd í vikunni í Eng-
landi. Eins og sjá má á myndunum fylgdi honum heil lúðrasveit til frumsýningarinnar sem fór
fram í kvikmyndahúsi við Leicester Square en fjöldinn allur af aðdáendum grínleikarans
mætti til að berja hann augum. Cohen mætti að sjálfsögðu í karakter hins samkynhneigða Aust-
urríkismanns sem fyrst kom fram í sjónvarpsþætti árið 1998 en kvikmyndaspekúlantar ytra eru
strax byrjaðir að spá myndinni gríðarlegum vinsældum og slá því föstu að hún muni hala inn mun
meiri tekjum en síðasta mynd Cohens. Sú er fylgdi eftir fréttamanninum óheflaða frá Kasakstan,
Borat. Áætlaður frumsýningardagur á Bruno hér á landi er 8. júlí.
Bruno í broddi fylkingar
Reuters
Myndarlegur Bruno var ánægður með athygl-
ina og leyfði aðdáendum að mynda sig.
EITT af mörgum og merkum rannsóknarverkefnum Óskars á Stórhöfða eru
markvissar athuganir á þrávirkum efnum í umhverfinu. Þau eru mæld í úr-
komu sem fellur til jarðar. Sýnin tekur Óskar vikulega og sendir til Reykja-
víkur.
Þrávirk lífræn efni er samheiti yfir efni sem bindast lífverum og eyðast
mjög hægt eða ekki og safnast þess vegna fyrir í umhverfinu. Þessi efni eru
orðin til fyrir tilstilli manna. Þau efni sem einkum finnast í sýnum Óskars eru
PCB og DDT, þau eru fituleysanleg og leysast því ekki vel í vatni. Þau geta
borist í lífverur með fæðu og hafa meiri tilhneigingu til að safnast fyrir eftir
því sem ofar dregur í fæðukeðjunni. Helstu áhrif uppsöfnunar þrávirkra líf-
rænna efna í lífverum eru neikvæð áhrif á viðkomu og ónæmiskerfi þar sem
efnin geta líkt eftir hormónum og raskað hormónabúskapnum.
Mikilvægar rannsóknir á þrávirkum efnum
Hissa Ertu að horfa
á bossann minn!
Blásið í lúðra Bruno gleymdi magavöðvunum heima.
Stafaganga Br
uno pósar í gön
gunni.