Morgunblaðið - 22.06.2009, Side 32
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 173. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Skólagjöld háskóla hækka
Skólagjöld við íslenska háskóla
hækka um 8-12% í haust, þar sem
þau eru innheimt. Skólagjöld næsta
vetur hjá Háskólanum í Reykjavík,
Háskólanum á Bifröst og Listahá-
skóla Íslands verða á bilinu 308-510
þúsund krónur. Skráningargjöld
ríkisreknu háskólanna verða áfram
45 þúsund krónur. »2
Ökumaður olli stórtjóni
Ökumaður olli stórtjóni þegar
hann keyrði á fimm útkeyrsluhurðir
slökkvistöðvar höfuðborgarsvæð-
isins í gærkvöldi. Ók hann einnig á
bíl og var stöðvaður við lögreglu-
stöðina við Hverfisgötu. »Forsíða
Tryggja þarf atvinnu
Á fundi aðila vinnumarkaðarins og
ríkisstjórnarinnar í gærkvöldi kom
fram að mikilvægt væri að halda
dampi í verklegum framkvæmdum
til að tryggja atvinnu og fjárfest-
ingar. »2
Víkur úr sæti bæjarstjóra
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri
Kópavogs, ætlar að víkja úr sæti
bæjarstjóra og sem fulltrúi í bæj-
arstjórn á meðan lögreglan rann-
sakar málefni Lífeyrissjóðs Kópa-
vogsbæjar. »6
17 ára vann vísindakeppni
17 ára menntaskólanemi, Kári
Már Reynisson, mun keppa við unga
vísindamenn í París í haust en hann
vann á dögunum Landskeppni
ungra vísindamanna með verkefni
sínu Líkan að gervitaug. »4
Sjálfstjórn í Grænlandi
Grænlendingar hlutu í gær fulla
sjálfstjórn í innanríkismálum en þeir
hafa verið undir yfirráðum Dana í
300 ár. »12
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hetja eða ekki?
Forystugreinar: Tiltekt á toppnum
Forðumst meðalmennskuna
Pistill: Af Víðgelmi, kúm og …
Ljósvakinn: Sjónvarpsvænir
UMRÆÐAN»
Ábyrgðarleysi Guðmundar …
Hækka þeir vextina?
Helgur réttur
Fullveldi, sjálfstæði, frelsi
Heitast 16°C | Kaldast 8°C
Víða skúrir en þurrt
að mestu og bjart veð-
ur A-lands. Hiti 8 til 16
stig, hlýjast austan til.
»10
Sæbjörn Valdimars-
son er vel sáttur við
heimildarmynd Jóns
Karls Helgasonar
um Óskar J. Sig-
urðsson, vitavörðinn
í Stórhöfða. »28
KVIKMYNDIR»
Fróðleg og
falleg
KVIKMYNDIR»
Sandra Bullock, hin eilífa
þokkagyðja. »26
Safnplata með
sautján lögum jafn-
margra kvenna er
verðugt framtak og
vel það að mati
gagnrýnanda. » 26
TÓNLIST»
Í krafti
kvenna
SJÓNVARP»
Simon Cowell er
mannlegur!? »26
KVIKMYNDIR»
Mickey Rourke er
dottinn í það. »30
Menning
VEÐUR»
1. Ronaldo útskýrir af hverju …
2. Flöskuskeyti frá 1946 fannst …
3. Hætt við öll útboð í vegagerð
4. Sakar Gunnar um blekkingar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Í EINA tíð var það giska algeng iðja
að menn kæmu sér upp sæmilegasta
bókakosti, margir tóku söfnunina al-
varlega og skimuðu lengi og víða eft-
ir fágætum kjörgripum fyrir safnið
sitt góða. Árni Matthíasson gerir
þessum heimi bókasöfnunar skil í ít-
arlegri úttekt, þar sem hann m.a.
skýrir út helstu hugtök safnaranna
en fer jafnframt yfir sögu og þróun
þessarar iðju, sem hefur tekið
nokkrum stakkaskiptum á síðustu
árum.
„Á blómaskeiði íslenskrar forn-
bókasölu, sem stóð frá sjöunda eða
áttunda áratug síðustu aldar fram til
aldamóta, var verð á öllum helstu
bókum sem safnarar ágirntust þegj-
andi samkomulag seljanda og kaup-
anda,“ skrifar Árni m.a. Áhöld eru
nefnilega um það í dag hvert raun-
verulegt virði fágætra bóka sé, en
verðgildið er ekki nærri því eins
fastmótað og í öðrum söfnunar-
geirum. Árni varpar jafnframt fram
þeim vangaveltum hvort raunvirðið
sé fremur í ástúðinni sem lögð er í
söfnunina sem slíka, en í einhverjum
aurum. | 23
Eru gamlar
bækur
verðlausar?
Bókasöfnun tekur
stakkaskiptum
Gildi Er virði bóka á fallanda fæti?
Sýning Ernu Ómarsdóttur í Þjóð-
leikhúsinu, Teach us to outgrow
our madness, er kröftug og kemur
áhorfendum í tilfinningalegt upp-
nám segir gagnrýnandi Morgun-
blaðsins, Ingibjörg Þórisdóttir.
Innri barátta kvenna er miðjan í
frelsandi verki þar sem stuðst er
við leik, texta, dans, tónlist og ösk-
ur. | 25
„Gargandi“ snilld
Snilld Úr verki Ernu Ómarsdóttur.
LANDINN var á faraldsfæti um
helgina og gönguhópar víða á ferð. Í
gærkvöldi, á lengsta degi ársins,
var farin sólstöðuganga um Öskju-
hlíð í Reykjavík þar sem Þór Jak-
obsson veðurfræðingur var leið-
sögumaður. „Við köllum þetta
meðmælagöngu með lífinu og
menningunni. Mótmæli geta vissu-
lega verið ágæt en það léttir lund-
ina að vera úti í náttúrunni, sjá eitt-
hvað fróðlegt og hitta mann og
annan,“ segir Þór sem nú fór í 25.
sinn fyrir sólstöðugöngu. Göngu-
ferðir undir sömu formerkjum voru
farnar víðar á landinu í gær, svo
sem austur í Skálholti og norður í
Þingeyjarsýslum.
Rúmlega 250 manns gengu með
Ferðafélagi Íslands á Snæfellsjökul
á föstudagskvöld. Lagt var á bratt-
ann við rætur jökulsins síðla kvölds
og efsta hjalla náð um klukkan eitt
um nóttina. Í áfangastað kom hóp-
urinn til baka á óttunni, síðari hluta
nætur.
„Þetta var stórkostleg upplifun.
Við urðum vitni að því hvernig
kyrrð færðist yfir allt um miðnæt-
urbil og síðan hvernig landið vakn-
aði sem úr dvala þegar sólin kom
aftur upp í stórkostlegri sinfóníu lit-
brigða jarðarinnar,“ segir Páll Guð-
mundsson framkvæmdastjóri FÍ,
sem var meðal fararstjóra.
Páll segir að líkast til hafi aldrei
jafnstór hópur gengið í einu á eitt af
hæstu fjöllum landsins svo sem
Snæfellsjökul, sem er 1.446 metrar
á hæð. Mikla þátttöku segir hann
endurspegla áhuga landans á úti-
veru og fjallaferðum. Þátttaka í
ferðum FÍ hafi sjaldan verið jafn-
mikil og einmitt nú í sumar.
Um 140 manns tóku þátt í árlegri
Jónsmessugöngu Útivistar yfir
Fimmvörðuháls aðfaranótt laugar-
dags. Fararstjórar og björgunar-
sveitarmenn fylgdu hópnum, sem í
það heila var um 200 manns. Veður
og aðrar aðstæður í ferðinni voru
allar hinar ákjósanlegustu. „Fyrstu
göngugarparnir komu hingað um
klukkan fimm um morguninn og þá
tókum við á móti fólki með lýsiss-
nafsi eða Gammel Dansk. Fleiri
völdu lýsið, því fæstir þurftu áfengi.
Bros var á sérhverju andliti og ekki
ofsagt að fólk hafi verið ölvað af
náttúruvímu eftir ferðina,“ segir
Ingi Bragason, skálavörður Útivist-
ar í Básum.
sbs@mbl.is
Fjölmenni Í kringum 250 manns á aldrinum 12 til 72 ára tóku þátt í sólstöðugöngu Ferðafélags Íslands á Snæfells-
jökul á föstudaginn og er það líklega stærsti hópur sem nokkru sinni gengur á jökulinn í einu lagi.
Heilluð af náttúrunni
Hundruð manna í göngu- og fjallaferðum um helgina
Meðmælaganga, litasinfónía og brosandi andlit
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Mæltu með Þór Jakobsson veðurfræðingur leitaði ekki langt yfir skammt
að sumarsólstöðum og fór fyrir sólstöðugöngu um Öskjuhlíð í Reykjavík.