Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Síða 10

Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Síða 10
8 NÝTT KVENNABLAÐ Misrétti eða misskilningur. Við framtal manna á tekjuin til skatts kem- ur til frádráttar viss persónufrádráttur. Sam- kvæmt núgildandi reglum nemur sú uppliæð fyrir livern einstakling kr. 900.00, fyrir barn- laus hjón kr. 1800.00 og fyrir hvert barn, innan 16 ára, sem er á framfæri viðkomandi manns, kr. 700.00 í Reykjavík, en kr. 600.00 annarsstað- ar á landinu. Við átagningu úlsvars er einnig gerður tilsvar- andi fnádráttur, þótt um hann gildi aðrar reglur. I fljótu bragði virðisl þetta ofur einfalt mál. Hver heilvita maður veit að vísu að þessi frá- dráttur er atlt of lágur og svarar hvergi nærri til hins alla lægsta framfærslukoslnaðar, með þvi verðlagi, sem nú er á öllum nauðsynjum til daglegra þarfa. Jafn augljóst er, að ungling- ar sem stunda nám, geta í fæstum tilfellum, þótt þeir hafi náð 16 ára aldt i, innunnið sér svo mik- ið yfir sumarmánuðina að það hrökkvi fyrir námskostnaði að vetrinum. Þvert á móti munu þcir undir flestum kringumstæðum þurfa að fá all-ríflegan styrk frá heimilum sínum. Öll sanngirni mælir því með að taka mætti þann kostnað til greina eigi síður en framfærslu þeirra Ijarna, sem yngri eru en 16 ára. Flestir munu á einu máli um þetta tvennt, enda skal ekki farið nánar út í það hér. En það er annað i þessu sambandi, sem er furðulega ótrúlegt, en þó satt. Kona sem skilin er við mann sinn og stundar einhverja atvinnu, fær ekki frádrátt vegna barns eða barna, sem henni fylgja. Föðurnum aftur á móti reiknast allur frádráttur barnsins vegna og það jafnt þótt hann greiði einungis hið tilskilda meðlag með því. Móðirin aftur á móti, sem elur önn fyrir barninu eða börnunum, að öðru leyti, verður að greiða skatta og skyldur af tekjum sínum á sama hátt og hún væri ómagalaus manneskja. Hennar hluti i framfærslu barnsins er talinn einskis virði. Sama gildir ef um ógifta móður er að ræða. Þó deltur visl engum í hug að framlag föðursins sé fullt meðlag með barni, hcldur er það að- eins hans hluti. Mér er ekki Ijóst hvar villan liggur. Hvort sjálf ákvæði laganna eru þannig, að feðrum ein- um sé ætlaður barnafrádráttur, eða að skiln- ingi þeirra, sem framkvæma lögin, er eilthvað ábótavant. En þannig er það i framkvæmd. Eg hefi gert eina tilraun til að fá upplýsingar um þetta atriði lijá skatlstofunni i Reykjavík, en fékk ógreið svör. Hefir mér svo. ekki unn- ist tími til að ganga frá einum til annars með fyrirspurnir. Það skiptir líka minna máli lrvar sökin liggur. Hitt er aðalatriðið, að hér er um stórfellt misrétti og misskilning að ræða. Mis- rétti, sm kemur hart niður á einstæðum mæðr- um, sem hafa fyrir börnum að sjá, og þann brapalcga en nærri broslega misskilning, að réttur skatlgreiðenda sé háður því, hvort karlar eða konur eiga í hlut. Það misrétti og sá misskilningur verður að liverfa. M. J. K. 17. júní nefndin. 5 manna nefnd til að sjá um hátíöahöld á Þing- völlum 17. júní 11. l'. í tilefni af stofnun lýöveldisins er nú tekin til starfa. Ríkisstjórnin skipaöi dr. Alex- ander Jóhannesson, en hinir 4 þingflokkar tilnefndu einn rnann hver: Gunnar Thoroddsen alþrn. (Sjálf- stæðisfl.), Ásgeir Ásgeirsson bankastj. (Alþýöufl.), Einar Olgeirsson alþm. (Soc.) og Guðlaugur Rósin- kranz kennari (Framsóknarfl.). Mundi ekki nefndin vera enn betur starfhæf og hátíðahöldiu enn glæsi- legri, ef hinir háu herrar vildu minnast þess, að ísland á dætur eigi síður en syni og bættu 2 konum í nefndina, t. d. formönnum Ivvenfélagsambands ís- lands og Kvenréttindafélags íslands? Landsfundurinn. 'Blaðinu er mikil ánægja að slcýra frá því, að eitthvert hið síðasta verk hins nýfrestaða Alþingis var, að samþykkja heimild handa ríkisstjórninni til að veita Kvenréttindafélaginu 5000 króna viðbótar- styrk, til landsfundarhalda á sumri komanda. Var þetta gert samkvæmt tillögu fjárhagsnefndar, sem að lokum hefir talið það fullsannað mál, að K.R.F.Í. væri ekki að fullu liðið undir lok. í desember-blaðinu var vísa eftir Magðalenu Tómasdóttur, móður Ólafar á Hlöðum. Sú missögn slæddist inn í frásögnina, aÖ hún hefði gjört vísuna í æsku. Það er ekki rétt. Magðalena var orðin öldruö mjög, þegar vísan varÖ til. Að öðru leyti var rétt með íarið. Margir menn eru svo gerðir, að þeir vita ekkert til hlítar fyrr en þeir reka sig á það, og fá stundum að vita meira en þeim líkar. Vér notum aðeins lítinn hluta heila vors ennþá. Ónotaði hlutinn er ótakmarkaður. Dr. Charles Mayo.

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.