Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Page 13

Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Page 13
NÝTT IÍVENNABLAÐ 11 þeim minningárgjafir um látnar mæÖur sínar, þvi við mæðurnar slanda ávallt margir synir og dætur í þakkarskuld margs þess bezta og göfugasta sem þcir liafa þegið um æfina. Gjöfum og áheitum til beggja þessara sjóða er fúslega veitt viðtaka á biskupsskrifstofunni. (Ofanskráð grein liefir blaðinu borizt frá skrifstofu biskups sem svar við fyrirspurn um Ekknasjóð Islands. Við viljum taka undir þau orð biskupsritara, að vel mætti vænta þess, að menn minnlust þessar sjóða og styrktu þá með gjöfum og áheitum, svo gott og nauðsynlegt er verkefni þeirra. Sjálfsagt er því miður enn langl í land að séð verði svo vel fyrir liag ekkna og munaðarlausra barna, að slik hjálparstarfsemi só óþörf, og um þá ógæfu, er ofdrykkja getur leitt yfir heimili, þarf ekki að fjölyrða.) Ingiveldur Einarsdóttir: A Yegramoiiim. Glaðbjartur vordagur, allt lék í lyndi. Dísa litla í Tungu, Sigga frænka og Bjössi i Múla riðu kempinginn austur með fjallinu heim- leiðis að Tungu. Þar var Sigga frænka sumar- gestur ár eftir ár, og öllum velkomin. Dísa litla var yngsta dóttir bóndans í Tungu að fyrra hjónabandi, og hún hlakkaði lil þess eins og jólanna, þegar hennar var von að sunn- an. Bíllinn lcomst ekki alla leið að Tungu, svo Siggu frænku var sendur söðulliestur og reiðföt. Og nú bafði Disa sjálf fengið að sækja hana. Disa reið i hnakk, stóð í ístaðsólunum, og reiddi stóru ferðatöskuna liennar Siggu frænku. Disa fullyrti, að það væri hægðarleilt- ur, þó taskan væri tíu sinnum stærri. Bjössi kom utan af bæjum, bafði verið sendur eftir blöðum og bréfum að sunnan. Hann bauðst til að reiða töskuna. „Nei, nci, mig munar elckert um að hafa töslcuna“, svaraði Dísa, sveitt og uppgefin. Sigga frænka bað bana blessaða að þiggja þetta fallega boð drengsins. Og Bjössi reiddi töskuna það sem eftir var leiðarinnar heiin að Tungu. Sigga frænka lék við hvern sinn fingur. Hún sá nýja fegurð í hverjum hól, livammi, dýi, lægð og lind. Hún spurði börnin um örncfni, slægjur, fuglavarp, kýr og kindur. Hún benti þeim á ýmsa landnámsslaði og sagði þeim úr fornsög- Eg leyfi mér að þakka fyrir alla þá virðingu, sem manninum mínum, Jóni Magnússyni, hefur verið sýnd í kveðjuljóðum og lausu máli, með blóma.sendingum, minningarspjöldum, símskeytum og öðrum hlýhug. Blessað sé þrek hans í þraut og stríði. Guðrún Stefánsdóttir. unum. Börnin hlustuðu með athygli, og heima- hagarnir fengu nýjan blæ. Þau fvlgdust öll að lieim að Tungu og eftii stulla viðdvöl fór Björn lieiinleiðis. Dísa flutti hestana og varð lionuin samferða. „Ansi er þetla skemmtilég kerling“, sagði Bjössi. „Iield- urðu að hún Sigga frænlca sé kerling?“ svaraði telpan með þykkju. „Ég mcinti ekkert illt með þvi, þvert á móti; hún er orðin dálítið gömul.“ „Nei, alls ekki, þú ert bara asni.“ „Jæja, það þýðir ekki að tala við þig, þegar þú lætur svona. Vertu sæl.“ Dísa tók ekki undir, og báðuin þótti sem skuggi hefði lagzt yfir þennan yndislega dag. Svona gekk það nú til, þegar þau töluðust við í fyrsta sinn, Þórdis í Tungu og Björn i Múla, en upp friá þessu bar fundum þeirra oft saman, því þau voru nágrannar. Björn var fjórum ár- um eldri, og lijálp'aði lienni slundum, þegar svo bar undir. Hann var liægur og gætinn, liún snör og skjótleikin, og þeim gekk vel að vinna saman. Dísa var ekki eiginlega fríð, en fjör og hress- andi blær fylgdi benni hvar sem liún gekk. Hún liafði ljómandi fallegt liár, ljósjarpt. — Sigga frænka kom á liverju sumri með nýjan hár- borða og nýja greiðu lianda Dísu, greiddi henni á sunnudögum og hvenær sem hún fékk því við komið, áminnti hana um að hirða liárið sitt vel, þessa miklu prýði, sem guð liafði gefið henni. Ingibjörgu húsfreyju þótli nóg um þetta dekur við hárið á telpunni — þessu flókatrippi. Árin liðu. Dísa i Tungu varð sextán ára, og i janúarmánuði þann vetur rann loks upp sá langþráði dagur, að Dísa fékk að fara til Reykja- víkur og dvelja þar um tima. Tvær systur hcnn- ar vorii þar giftar og búsettar. Á þeirra vegum álli hún að nema eitthvað í handavinnu og hljóðfæraslætti. Sigga frænka Iiafði þessu stór- ræði til vegar koinið, ineð því að telja Ingi-

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.