Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Page 14

Nýtt kvennablað - 01.03.1944, Page 14
12 NÝTT KVENNABLAÐ björgu trú um, að Dísa gæti kennt hálfsystrum sínum þegar lieim kæmi. Aðalathvarf Disu var samt litla húsið hennar Siggu frænku; þar átti liún að sofa og hafa hækistöð sina, það var löngu fyrirfram ákveðið. Þennan sama velur fékk Björn í Múla sér skiprúm á togara. Yngri bræð- ur hans voru lcomnir til hjálpar heima, og liann langaði til að vinna sér dálitið inn. Einlivern daginn rétt fyrir páskana er barið að dyrum hjá Siggu frænku, og Dísa vindur sér inn. Hún var rjóð og heit, hún fleygði sér á slól, auðsjáanlega mikið niðri fyrir. „Hvað er þér á höndum, barnið golt?“ spyr Sigríður. „Viltu kaffi?“ „Nei, takk, eg ætla að bíða hérna augna- blik eftir Stellu og Diddu, þær ætla með mér á hárgreiðsluslofu, eg ætla að láta klippa á mig drengjakoll.“ Dísa liristi út úr sér orðin með á- herzlu og óþægilega. Sigríður leit á hana, og sá fljótt að þarna voru ekki glettur einar á ferð. „Það er þó alveg ómögulegt,“ svipurinn lýsti undrun og hryggð. — Dísa stökk á fætur og bjóst öll til varnar frá hvirfli lil ilja: „Það cr nú ekki einasta mögulegt, heldur alveg ákveðið. ég er búin aö panta kliþpingu og liinar slclp- urnar höfuðþvott. Ég álti svo sem von á hinu og þessu frá öðrum, en alveg hefði ég svarið fyrir að þú létir svona, Sigga frænka.“ Sigriður gerði þá athugasemd að hún hefði nú elcki sagt margt eða raikið, það væri Dísa sjálf sem léti mest fara. „Ég lield ég sjái á þér svipinn. Nei, það er ekki nokkur manneskja til sem skilur marin, það er eins og þið hafið aldrei verið ung. Það er ekki nóg með það að ég standi á hausnum heima í öllu því versta, þið viljið hafa mann eins og útskryppi alla líð, ekki eins og annað fólk.“ „Þú veizt vel, Þórdís, að þelta er ekki rétt, ég hef aldrei viljað að þú værir eins og útskryppi,‘‘ sagði Sigríður með hægð. Dísa hljóðnaði við — „Ég verð bara að ráða þessu sjálf.“ Og hún taldi upp1 alla þá kosti, sem snoð- kollavinir eru vanir að færa máli sínu til sönn- unar. „Guðbjörg syslir mín verður náttúrlega vitlaus líka, mér datt bara ekki í hug að láta hana vila fyr en allt er búið og gert. „En pabbi þinn og stjúpa, hvernig heldur þú að þeim liki þetta?“ — „Ilvcrnig held ég? Ég vcit upp á eitt hár hvernig þau verða. Pabbi setur upp þreylu- svip og labbar út, eins og hann gerir daglega út af einhverju. Ingibjörg stynur og andvarpar, en verður fegin með sjálfri sér, hún hefir þá sögu i viðbót, hvað ég sé baldin og ómöguleg. Niðurl. Tvær ungar blómarósir í nýju vorkjólunum. Snúru- leggingar og ásaumaS skraut er í tízku. Enskur vellingur. 120 gr. smjör]., 120 gr. hvelii, 3 1. mjólk, salt, svol. sykur, ávaxta- eöa rabbarbaramauk. Smjörl. og hveiti er bakaS saraan, þynnt út me'S mjólkinni. Svol. salt og sykur látiö i. Ávaxta- eöa rabbarbarmaúk boriö meö. Sé mjólk af skornum skammti, veröur aö blanda bana vatni. NÝTT KVENNABLAÐ Kemur út mánaðarlega frá október—maí, — Gjalddági í júní ár hvert. Verð árg. kr. 8.50. 8 sinnum á ári, — fellur niður sumarmánuðina. Afgreiðsla: Fyrir Reykjavík: Framnesveg 38. Fyrir sveitirnar: Fjölnisveg 7. Utanáskrift: Nýtt k'vennablað. Pósthólf 013, Reykjavík. Ritstjórar og útgefendur Prentað í Guðrún Stefánsdóttir, Fjölnisveg 7. Sími 2740. María J. Knudsen, Framnesveg 38. Sími 5516. Félagsprentpsmiðjunni h.f.

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.