Nýtt kvennablað - 01.12.1944, Qupperneq 12

Nýtt kvennablað - 01.12.1944, Qupperneq 12
8 NYTT KVENNABLAÍ) A ungmennaeftirlitið og kvenlögreglu- embættið að leggjast niður ? Viðtal við Jóhönnu Knudsen löggæzlukonu. Snemma í desembermánuði liitti eg ungfrú Jóhönnu Knudsen löggæzlukonu og spurði liana tíðinda. Sagði hún þá þær fréttir^ að húið væri að segja henni upp starfinu frá áramótum og yrði ungmennaeftirlitið og kvenlögregluem- bættið lagl niður frá þeim tíma. Kom mér þetta mjög óvænt, en í það sinni ræddum við ekki meira um þetta mál, en ákváðum að hittast siðar og skildi hún þá gefa blaðinu upplýs- ingar. Um jólaleylið varð svo úr þvi að við töluð- umst við, og fer viðlalið liér á eftir: Þú segir, að búið sé að segja þér upp. Var þér gefið eitthvað að sök? Nci, það var aldrei fundið að neinu við mig. En rétt áður en Einar Arnórsson fyrrv. dóms- málaráherra fór úr ríkisstjórninin, lagði liann svo fyrir að mér yrði sagt upp, með ])vi að dómsmálaráðuneytið liefir ákveðið að leggja ungmennaeftirlitsdeild lögreglunuar niður“, eins og það er orðað í uppsögninni. Fyrir ákvörðuninin færði hann þau rökt að grund- völlur starfseminnar væri að engu orðinn. Það var liverju orði sannara. Ungmennaeftirlitið var ekki annað en nafnið tómt þetta síðasta ár. En grundvöllinn eyðilagði dómsmálaráðherr- ann sjálfur. Fyrst lokaði liann uppeldislieimilinu í Borgar- firði. Svo lagði liann ungmennadómslólinn nið- ur. Siðan lokaði liann upptökuheimili harna- verndarnefndarinnar. Loks skerti liann starfs- svið ungmennaeftirlitsins svo að öruggt var að það gat ekki komið að neinum notum. Hvað kom til? Var uppeldis- heimilið svona afleitt? Vist var margt að því að finna, sérstaklega var ])að illa í sveit sett og vinnuskilyrði slæm. En þetta var fyrsta tilraunin, sem hér á landi var gerð í þessa átt, svo ekki var ástæða til þess að kippa sér upp við það þótt eitthvað bjátaði á fyrst í stað. Og allt stóð þetta til bóta. Eg hefði t. d. talið nauðsynlegt að flytja heimilið á hent- ugri stað. En til þess kom ekki. Því var lokað fyrirvaralaust þegar það var 10 mánaða ga m alt. Eg frétti á skotspónum að lnisbændurnir væru komnir með telpurnar til bæjarins. Ung- mennadómstóllinn hafði enga vitneskju um þetta fvrr en eftirá. Eftirlitsmaður heimilisins fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Ingimar Jóhann- esson, hafði helctur enga hugmynd um þella fyrr en það var um garð gengið. Hvað var um stúlkurnar? Til allrar hamingju voru |iær ckki orðnar eftir nema fjórar. Ein þeirra týádist strax, og fannst eftir 8 sólarhringa. Hún hafði verið hjá hermönnum. önnur var liöfð í stofufangelsi heima hjá sér, en eftir rúma viku hvarf hún, og kom ekki í leitirnar fyrr cn eftir 9 sólar- hringa. Hún hafði lika verið hjá hermönnum. Aðstandendur heggja voru ráðþrota og eru enn. Þriðja slúlkan var úr kaupslað sunnanlands. Ilún var ekki fliitl heim, heldur hingað lil Reykjavikur á heimili aðstandenda, sem ckki treyslusl lil að taka ábyrgð á henni. Ilún var þrettán ára gömul, og hefir siðan verið gersam- lega óviðráðanleg. Mér þykir ótrúlegt að héðan af verði mögulegt að bjarga licnni. Fjórða slúlkan var af Norðurlandi og eg veit ekkert um afdrif hennar. En hvers vegna Iagði ráðherrann ungmenna. dómstólinn. niður? — Reyndist hann óþarfur? Síður en svo. Ilann hafði geysimikið verk- efni. En hann gat ekki starfað að gagni, Jiegar búið var að loka heimilinu. Og þegar upptöku- heimilinu var líka lokaðt var fyrir það girl að barnaverndarnefndin gæti unnið skynsamlega að málefnum vegviltra unglinga, jafnvel þó hún hefði verið öll af vilja gerð. Þar með voru öli sund Iokuð. Það var lilgangslausl fvrir eftirlilið að rannsaka mál ])egar engin var til að sinna þeim. Enda var sýnilega ekki ætlast lil að það væri gert. Því einn góðan veðurdag kom bréf upp á það frá dómsmálaráðuneytinu, að eftirlitið mætti ekki rannsaka mál. Þú sérð að hér var gengið hreint til verks. En samt var þetta ekki nóg. Því um Jeið og Einar Arnórsson lagði ungmennadómstólinn niður, þá gekk hann svo frá að aUar þær telpur,

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.