Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Side 6

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Side 6
2 NÝTT KVENNABLAÐ Hinni grimmúðugu styrjöld í Norðurálfu er lokið. í hérum bil 6 ár hefur hinn miskunnarlausi hildarleikur varað. Aldrei í sögu mannkynsins hefur verið beitt jafn stórkostlegri og viðbjóðslegri grimmd, aldrei þjáning og kvalir, tortíming og sorg orðið hlutskipti jafn margra á jörðunni. En aldrei hefur heldur verið sýnt meira þrek, fœrðar dýrmætari fórnir og drýgðar fleiri hetjudáðir. Frœndþjóðir okkar á Norðurlöndum og aðrar þœr þjóðir, sem kúgaðar hafa ver- ið undir oki og siðleysi nazismans, fagna nú frelsi sínu, og öll íslenzka þjóðin sam- fagnar þeim af heilu hjarta. Nú bjarmar fyrir nýjum degi. Degi friðar og friðsamlegrar uppbyggingar■ Það mikla hlutverk bíður forustumanna þjóðanna og kynslóðarinnar, sem nú lifir, að vinna f riðinn. Yfir öllum hörmungum styrjaldarinnar hefur Ijómað sú von, að takast muni að henni lokinni, að skapa réttlátari og betri veröld. Heim, þar sem ofbeldinu er útrýmt, en réttur og öryggi einstáklingsins virt og metið. Þar, sem hungur og skortur, hatur og kúgun er bannfœrt, en friðsamleg samvinna og samábyrgð lœtur hvers konar menningu, góðvild og bróðurþel vaxa og dafna manna og þjóða á milli. Þá hafa blóðfórnir stríðsins ekki verið fœrðar til einkis. í þeirri trú, að þetta megi takast, skulum við horfa móti framtíðinni. anborið við síðar, t. d. árið 1944, en það ár urðu tekjur deildarinnar kr. 77.877,99,00. Á þessu tímabili hefur framlag deildarinnar til slysavarna numið rúmum kr. 100.000,00 Lagt hefur verið til björgunarskipsins Sæbjargar kr. 30.000,00, byggð tvö strandmannaskýli á sönd- um Skaftafellssýslna, sem með öllum útbúnaði kostuðu nálega kr. 40.000,00 og lagt fram fé til kaupa sjúkrabifreiðar af fullkomnustu gerð og öllum útbúnaði. Auk þess nokkur smærri tillög. Það, sem þessi deild hefur gert, er ekkert eins- dæmi. Hinar kvennadeildirnar vinna að sínu leyti alveg eins gott starf — og eigi þessi deild nokkra þökk skilið, þá eiga þær það vissulega líka. En hvað þökkina til þessarar deildar á- hrærir, þá ætti hún sérstaklega að beinast til þeirra góðu starfsmanna innan deildarinnar, sem ár eftir ár leggja fram mesta starfið til fjáröflunar, alltaf með hinu sama Ijúfa geði. og svo til þeirra mörgu utan deildarinnar, sem sýnt hafa henni velvild og stuðning. Ég vil því nota þetta tækifæri til þess að tjá öllum þeim, sem þar eiga hlut að máli, kærar þakkir frá kvennadeild Slysavarnafélags ís- lands í Reykjavík. Siglingar eru nauðsynlegar. Þótt langt sé síð- an þau orð voru töluð, og margt breytt í sam- göngum, eru þau orð enn í fullu gildi. Og engum ætti að vera ljósari sannindi þeirra, en þeim, er eyland byggja. Enda munu þau standa ó- mótmælt enn um skeið. En séu siglingar nauðsyn, þá eru slysavarnir og nauðsyn. Þetta tvent verður að fara saman, eigi vel að farnast. Mun nú svo komið, að þjóðin sé orðin þess vitandi, að það er alþjóðar skylda að tryggj a þá, er halda uppi siglingum og sjósókn, fyrir þeim hættum, sem því er samfara, svo vel, sem kostur er. Slysavarnafélag íslands hefur tekið að sér forgöngu í þessu mikla starfi.. Það verðskuldar því stuðning allra landsmanna, kvenna sem karla. Og þótt svo geti að borið,

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.