Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Side 10

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Side 10
6 NÝTT KVENNABLAÐ jJtferk ftona íáíin Hólmfríður Gísladóttir, forstöðukona lézt að heimili sínu, Þingholtsstræti 28, 14. apríl s. 1. 90 ára að aldri. Fædd 9. júlí 1854. Frk. Hólmfríðar var getið í jólablaði Nýs kvennablaðs 1942. Um þær mundir gaf hún Húsmæðraskóla Reykjavíkur húseign sína o. fl. Nemendahópurinn aldamótaárið. — Fremsta röð (frá vnistri): Alla, Metta, Puríður, Jónína. Önnur röö: Pál- ína, Valborg, Ástríður, forstöðukonan frk. Hólmfríður, Jóhanna, Þórunn. Þriöja röð: Margrét, Helga, Branddís. — Nú að henni látinni hafa dagblöðin flutt ýtarlega æviminningu hennar, og betur hefur vart verið ritað um aðra konu á þessari öld. Frk. Hólmfríður var líka ljúfmannleg höfðings- kona og drenglunduð vel. Brautryðjandi sem kennari í heimilis- og matreiðslustörfum. Hús- freyja á stóru heimili, svo borðgestir hennar skipta þúsundum. Til þakklætis fyrir gott starf og af kærleika svellandi starfsgleði, á meðan húsmóðirin sagði fólki sínu sögur, er hún hafði lesið í erlendum bókum í frístundum sínum frá heimilisstjórn- inni. Allt er breytingum háð, nú verða veslings rokkarnir að víkja fyrir tækninni, og raul þeirra, hefur kafnað í jassmusik viðtækjanna. Tilveran er eins og hjólið. Allt líður undir lok, menn- irnir verða einnig að lúta því lögmáli. Blessuð sé minning þeirra, sem blessunarinnar eru verð- ir. Guðrún á Hálsi er ein af þeim, um það eru allir sammála, er hana þekktu. Hún andaðist 29. okt. 1943 á Hálsi hjá Þorsteini Þorsteinssyni fóstursyni sínum og hans ágætu konu, Jófríði Þorvaldsdóttur. Önnuðust þau og börn þeirra Guðrúnu með mikilli nærgætni og kærleika til hinztu stundar. hafa unnendur hennar og nemendur hafið fjársöfnun til herbergis í Hallveigarstöðum, sem beri nafn hennar. „Hún átti alltaf áhugamál, sem héldu sál hennar ungri,“ segir í minningargrein um hana. Nú hefur hún afhent okkur áhugamálin. Og engan veginn betur getum við sýnt aðdáun okk- ar á hæfileikum hennar og mannkostum, en sameina minningargjafir okkar í þann bauta- stein, sem þegar hefur verið áformaður: Her- bergi er beri hið farsæla nafn hennar. Morgunblaðið tekur á móti minningargjöfum í þessu skyni. Einnig frú Hulda Stefánsdóttir, forstöðukona Húsmæðraskóla Reykjavíkur, Sól- vallagötu 12, og undirrituð. Guðrún Stefánsdótir, Fjölnisvegi 7, Reykjavík. Alþjóðlegí kvennadagurínn s: Hinn alþjóðlegi kvennadagur, 8. marz, er hald- inn hátíðlegur af konum víðsvegar um heim. Koma þær þá fram með réttindakröfur sínar og ræða áhugamál sín á svipaðan hátt og við hér heima höfum gert 19. júní að baráttudegi okkar. Á afar fjölmennum fundi, sem enskar konur héldu í London 8. marz s. 1., þar sem mættir voru fulltrúar frá öllum kvennasamtökum landsins, var samþykkt eftirfarandi réttindaskrá kvenna, (charter), sem síðan var borin fram fyrir stjórn- arvöld landsins: „Nýjar vonir varðandi framtíð heimsins vakna meðal fólks í öllum löndum. Milliríkjasáttmálar — Teheran, Dumbarton Oakes — sem stjórnir hinna sameinuðu þjóða hafa gert sín á milli, hafa lagt traustan grundvöll að bættum fjár- hag, aukinni heilbrigði og hamingju alþýðunnar. Stríðið hefur leitt hræðilegar þjáningar yfir konur. í vörn sinni fyrir frelsi hafa þær orðið að þola pyntingar og horfast í augu við vissan dauða. Þær hafa með festu staðizt þá hræði- legustu af öllum þjáningum — að horfa á börn- um sínum misþyrmt á villimannlegasta hátt. En konur hinna lýðfrjálsu landa hafa ekki aðeins sýnt mikið hugrekki og þolgæði. í iðnaði og í her, í opinberum störfum og í tækni- og

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.