Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Qupperneq 13

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Qupperneq 13
NÝTT KVENNABLAÐ 9 Hvammsbrekka blasti við er ég var kominn upp á Stapa, sem kallaður var, og berjamórinn var þar skammt fyrir norðan. Ég tyllti mér á tá, er ég skygndist yfir sveit- ina, rétt eins og ég myndi sjá betur fyrir það, enda reyndist það og, því að nú sá ég eitthvað kvikt í brekkunni, sem ég ekki hafði tekið eftir áður. „Ég verð að vita hver það er,“ hugsaði ég með mér, „hver veit, nema það sé Rannveig, þar hitti ég hana síðast er við vorum á berjamó.“ Ég fremur flaug en hljóp ofan einstigið, enda var það breitt og gott, og ég nam staðar fyrir framan fallega og glóhærða stúlku. Þarf ég að taka það fram, að það var Rannveig fornvina mín, sú sama og áður, aðeins svo miklu fallegri og þroskaðri en fyrr. Oft hafði ég hugsað um hana, en aldrei hafði mig dreymt um slíka feg- urð, aldrei svona gullbjarta, langa og þykka lokka, aldrei svona fallegan yfirlit, — svona mjallhvítt enni og háls — svona rósrauðan munn, svona morgunrauða litaða vanga — svona blíð, blá og björt augu — svona aðdáanlegar hreyfingar. Ég var í stuttu máli sem steini lost- inn, er ég stóð fyrir framan hana, og horfði á hana án þess að koma upp einu orði. Hún opnaði munninn til að tala, en sneri því upp í bros, sem ég ekki get lýst. Loksins fékk ég þó málið. Ég rétti henni hendina og heilsaði henni með nafni og spurði, hvort hún þekkti mig. Hún játti því. Ég veit ekki hvort það var tilhlýðilegt, en næsta orð, sem ég talaði var að spyrja hana hvort hún myndi hvað ég hefði sagt við hana að skilnaði. Hún játti því einnig, og nú hljóp blóðið upp undir hársrætur, ofan á háls og út undir eyru, sá ég. „Og áttir þú von á að heyri mig endurtaka þau orð,“ spurði ég ennfremur. „Ég hélt það máski,“ sagði hún mjög niðurlút. „Svo þú hélzt ekki ég væri búin að gleyma þér?“ „Ég vissi, að þú varst tryggur og staðfastur í lund,“ svaraði hún, og skildi ég að hún hvorki vildi neita né játa í þetta sinn. Ég þakkaði henni fyrir þessi orð, og næstu fáeinum orðum, er þar fóru á eftir vil ég ekki segja frá. En við höfðum ekki tíma til að tala mikið saman í þetta skipti heldur, því að þegar mér var litið við, sá ég hvar karl faðir minn var að staulast ofan einstígið. Hann var búinn að sjá okkur, og voru brýrnar talsvert signar á karli. „Hví ertu kominn hér,“ sagði ég með engu IHlofeurmtnnitig Ouðlaue HcIka llalliðadóttlr frft DalNsrli Ó, vertu blessuð, elsku mamma mín, ég man þig bezt, er Ut ég bernskuslóöir; þar munu geymast mörgu sporin þín í minningu, sem verndarenglar góðir. I*ú vildir hlúa að hverju því, sem grær, og harm þess dapra kunnurðu oft að sefa. í þínu brjósti bjuggu kendir þær, sem breiskum megna allt að fyrirgefa. Þú gekkst að störfum þýð og þolinmóð í þrá að verða öllu góðu að liði. Þín ævi var scm hugljúft heilsteypt ljóð, sem hjörtun fyllir ró og mildum friði. G. Au. '): minni alvörusvip en þeim, sem bjó í brúnum hans, „viltu ég sæki þér gull ofan í fossinn?“ Ég sá að hann skildi, hvað ég meinti, því að hann roðnaði. Hann var þá kominn til okkar, og stóð hann og horfði á okkur á víxl. — Þá var sem ský liði burt frá andliti hans. — Það hlaut líka að hverfa frammi fyrir fegurð og yndisleik Rannveigar. Eftir litla þögn svaraði hann bros- andi. „Nei, sonur minn, ég á ekki mikið af gulli — en ég á enn færri börn, og vil ekki hætta lífi einkasonar míns með því að senda hann undir fossinn.“ Hann hafði naumast slept orðinu, er ég varð þess var, aö enn einn gestur var kominn í Hvammsbrekku og stóð rétt hjá okkur. Það var ljótur, svartur púki, sýndist mér og þóttist ég þó fljótt bera kennsl á hann. „Höggormurinn í Paradís," varð mér fyrst að orði. „Glöggur er sá, sem götuna sparar,“ glumdi nú að gömlum sið, hjá Steina, því að lesarinn skilur, að það var hann, sem kominn var. „Ég hef því miður enga skotthúfu til að krýna þig með, Steini,“ sagði ég, sem allt í einu var orðinn fjúkandi reiður yfir að Steini skyldi voga sér inn á þenna helga stað, „en ef þú ekki snaut-

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.