Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Síða 22

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Síða 22
18 NÝTT KVENNABLAÐ (§0^^ /ftcf Hjá þér á ég einasta athvarfið mitt, þar hjartað fœr hulið harmþrungið andlit sitt. Þú ert allt það góða. Við gæðin þin ein, getur hjarta mitt losnað við lífsins þunga stein. (Þýtt). BARNAGÆLA. Þóra situr og saumar og syngur, tra la la, samt þó ekkert gengur, húja húja húja. Garnið fer í gólfið, naha naha naha og nálin týnist bráðum, inter pocula. S. Ó. Flciri konur að hljóönemanum. Samfellda dagskráin í útvarpinu að kvöldi hins 9. maí, sem tileinkuð var minningu Hallveigar konu Ingólfs Arnarsonar, var ágæt, og konum þeim, er hana sömdu og önnuðust flutning hennar, til sóma. Oft hefur verið á það minnst hér í Nýju kvennablaði, að stór hópur hlustenda mundi taka því feginsamlega ef konur létu oftar til sín heyra í útvarpinu. Um eitt skeið var eins konar „kvennasíða" fastur dagskrárliður, en var svo látinn falla niður. Hvernig væri að taka það upp aftur? Eða hvernig stendur á því, að aldrei tekur nokkur kona til máls i þættinum „um daginn og veginn"? Það gæti þó hugsazt, að það væri ánægjuleg tilbreyting, að heyra um viðhorf kvenna til þeirra atburða, sem eru að gerast á hverjum tíma. En vitanlega þarf útvarpið sjálft að leita til kvenna og kvenfélaga. Þá er líka enginn vafi á því að efni fengizt nægilegt. Úr bréfi: — Ég er oft að hugsa um viðtökurnar á bæjunum. Konurnar komu með opinn faðminn móti mér, ég held næstum þær hafi tekið mig í fang sitt, gleðin skein úr augum þeirra. — Þessar konur höfðu ekki fullar stofur af fínheitum, en gerðu mér heimsóknina ógleym- anlega með einlægni sinni og ástríki. — Þegar ég ber þær saman við sumar konur nú, sem sýnast hafa lífs- þægindin öll í sínum heimahúsum, hvers vegna getur þá ekki verið eins ánægjulegt og yndislegt að koma þar. Líklega liggur mesta breytingin í sjálfri mér. Það er ekki að marka, ég sé ekki fínheitin eða kæri mig ekki um þau, kýs heldur annað skraut. Þetta er kannske að gera öðrum rangt til, en erum við ekki alltaf að því, hver við annan? Franskar konur öðlast kosningarétt. Sveitastjórnarkosningar hafa staðið yfir 1 Frakklandi og í fyrsta sinn í sögu frönsku þjóðarinnar ganga konur að kjörborðinu til að nota hinn nýfengna kosningarétt sinn. Frakkland, sem nefnt hefur verið „vagga lýðræðisins" og gefið hefur heiminum vígorðin: Frelsi, jafnrétti, brœðralag, þurfti sjálft að þola hörmungar tveggja heims- styrjalda, áður en það viöurkenndi jafnrétti dætra sinna. Mismæli: — Það stóð heima þegar sólin lagði á stað frá Lækj- arbotnum, þá var ég í hádegisstað. * * * Forsíðumyndin. Myndin framan á blaðinu er af stjórn Kvennadeildar Slysavarnafélags íslands í Reykjavík. — í efri röð: Lára J. Schram, Guðrún Magnúsdóttir, Gróa Pétursdóttir, Guð- rún Lárusdóttir. í fremri röð: Ingibjörg Pétursdóttir, Reykjum, Inga Lárusdóttir, Guðrún Jónasson, Sigríður Pétursdóttir. Ein stjórnarkona, Ásta Einarsdóttir, var fjarverandi. Misritanir urðu í kvæðinu: Stjörnublik, í síðasta blaði. í öðru erindi, 3. línu: mitt, á að vera neitt. í síðustu línu 4. erindis: til, á að vera að. í 2. lfnu 8. erindis. erji, á að vera herji. — Biður blaðið innilega afsökunar á þessu. Undir suðrœnni sól.

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.