Nýtt kvennablað - 01.01.1949, Page 6

Nýtt kvennablað - 01.01.1949, Page 6
Ingibjörg Þorgeirsdóttir: Ættrækni- Minningar- giof Reykjahólakirkja. Hallveigarstöðum, hinu væntanlega kvenna- heimili, hafa oft borizt góðar gjafir, eftir að söfnun var hafin til þeirra. Gjafir, sem borið hafa vott um hlýhug og skilning fólks á máiefninu. Má líka segja, að tæplega verði á veglegri og meir viðeigandi liátt hægt að halda á lofti og heiðra minningu ýmissa mætra kvenna en með því að tengja nafn þeirra við nrinningargjöf til Hallveigarstaða. Um eina slíka minningargjöf langar mig til að fara hér nokkrum orðum. Margir munu liafa lieyrt höfuðbólsins, Reyk- lióla í Barðastrandarsýslu getið. Þar bjuggu fyrr á öldum og allt fram á okkar öld annað tveggja ríkir höfðingjar eða stórbændur. Fáir staðir munu líka betur fallnir til höfðingjaseturs eða stórbúskapar en Reykhólar, sakir fjölbreyttra landskosta. Þar er gnægð grösugs landrýmis, rjúkandi hvera og margháttaðra hlunninda ann- arra til lands og sjávar. Auk þessa er lega og fegurð staðarins þannig, að flestir munu telja þá einhvern fegursta og svipmesta bólstað landsins. En gömlu stórbýlin með þetta 30—50 manns í einu heimili, eru nú horfin af sjónarsviðinu. Á Reykhólum má telja að seinasti stórbóndinn liafi setið á seinni hluta 19. aldar og lram um seinustu aldamót. Þá bjó þar Bjarni Þróðarson, Nýtt kvennahlað vill þakka sendibréfin, sem er ósvarað, í mörgum þeirra er svo mikil hlýja og greind að þau vekja sönn geðhrif. Stundum voru þau heil kvæði. 1 síðasta hréf- inu, er kom fyrir áramót, var þessi vísa: í fátækt hreysi, í fagran sal, og fer um sjúkrabólin. Á yzta nes og innst í dal, alls staðar koma jólin. íslendingar eru margir listamenn, í og með, bæði konur og karlar, og eiga líka að vera það. Listin er ekki komin í heiminn aðeins handa sérstökum gæðingum. Hún er ein af lifslindunum, sem starfandi fólki er jafn nauðsyn- leg og kyrrsetufólkinu íþróttirnar. borgfirzkur að ætt. Bjarni var tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Sigríður Jóhannesdóttir, var dáin áður en hann hóf búskap á Reykhólum. Seinni kona Bjarna var Þórey Pálsdóttir, dóttur dóttir Þóreyjar Thoroddi á Reykhólum, nióður Jóns Thoroddsens skálds. Bjuggu þau Bjarni allan sinn búskap á Reykhólum, eða um 30 ára bil, með þeirri atorku, höfðingsskap og rausn, er slíku höfuðbóli sómdi. Þegar á öndverðum bú- skaparárum sínum reisti Bjarni meðal annars öll bæjarhús að nýju. Að vístt veggi og þök úr torfi, að þeirrar tíðar sið, en myndarlegan bæ og óvenju vandaðan, enda var Bjarni bóndi smið- Lir góður og verkhagurvið öll störf svo aðaf þótti bera. Hann þótti og húsbóndi ágætur, og fór þar saman atorka, stjórnsemi og lipurð í um- gengni. Bjarni var líka vel kvæntur. Báðar kon- ur lians voru mætar merkiskonur. Þórey, seinni kona Bjarna, sem hafði búsforráð með honum eftir að hann fluttist að Reykhólum, var smá- vaxin og fíngerð kona, en þó hvorttveggja stjórn- söm og starfsöm. Var heimilisfólk hennar oftast 40—50 manns. Mislitur og fjölbreyttur hópur, æska og elli og allt jDar á milli. Fyrst má telja hennar eigin börn, Jrau voru 12, er komust til fullorðinsára og auk þeirra tvær dætur af fyrra hjónabandi Bjarna. Þá vinnufólk margt. Sumt ungt og hraust, sumt slitið og aldurhnigið, og auk þessa alltaf einhver gamalmenni, einstæðing- ar og munaðarleysingjar. Hugsum okkur það hlutverk að vera húsfreyja á slíku heimili. Hvorki mun jrað liafa verið ábyrgðarlítið né auðvelt. Og jjó leysti Þórey Pálsdóttir Jrað þann- ig a£ hendi, að hún var húsmóðir heimilisins í orðsins beztu merkingu. Húsmóðir, er átti traust og virðingu allra heimilismanna og þann hlýhug þeirra, sent móðurumhyggjan ein fær skapað. ÚR EINKABRÉf’I FRÁ GUÐBJÖRGU JÓNSDÓTTUR. BetSu henni kveðju mína, konunni, sent talaSi yfir likbörum vinkonu sinnar. Mér þykir vænt um ræSubrotið í 6. tbl. Nýs kvennablaðs 1948. Það er skemmtilegt að kveðja látna samferSamenn með sæmilega völdum orðuni, þettu er þaS síðasta, sem hægt er uð gera fyrir þá liðnu, og í síðasta sinn, sem við dvcljum hjá þeim. ÞaS er eins konar sveigur, sem lagður er á leiði þeirra og þolir bæði regn og storma. Ég hef sjálf fengizt við þetta og i Lindinni, Prestafélagsriti Vestfjarða er ræða eftir mig, sem flutt var við jarðarför Önntt Bjarnadóttur, fóstur- móður Stefáns frá Hvítadal. Anna var ágætis kona og enginn lýsir henni betur en Stefán í kvæðinu: „Mamma, ég er sjúkur og sár“. Svo sagði hann einu sinni: „Mamma getur alltaf fyrirgefið". Þetta var satt. Séra Einar Sturlaugsson lét prenta ræðuna. Hann og foreldrar hans voru í miklum vinskap við önnu. Guöbjörg Jónsdóttir, Broddanesi. 4 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.