Nýtt kvennablað - 01.11.1949, Page 7

Nýtt kvennablað - 01.11.1949, Page 7
tveimur, þeim Jóhannesi og Agli, sem þá voru báðir giftir. Létu gömlu hjónin reisa sér vandað hús á Akureyri, og þar áttu þau heima í sex ár, en þá andaðist Snjó- laug, árið 1912. Eftir það eyrði gamli maðurinn ekki á Akureyri, hann flutti sig aftur að Laxamýri, og þar dó hann, seint í nóvember 1918, 85 ára að aldri. Áð- ur en hann dó, lagði hann svo fyrir, að lík sitt skyldi flutt inn til Akureyrar, og búin hinzta hvíla við hlið Snjólaugar. Var svo gert. Er fregnin um andlát Sigurjóns harst heim að Görðum, lá dóttir hans þungt haldin af lungnabólgu, afleiðingum hinnar illkynjuðu spönsku veiki. Henn- ar nánustu, sem vel var kunnugt um kærleika j)á, er voru með þeim feðginunum, j)orðu ekki að bera henni andlátsfregnina, því hún mátti sízt við geðshræring- um. Hún mókti og átti erfitt um andardráttinn. Allt í einu, er eins og af lienni brái lítið eitt hún opnar augun, Iítur út í gluggann og segir: — Hvaða gamli maður er þetta? Þeir sem inni voru lilu út í gluggann, en sáu ekki neitt og álitu hana tala í óráði. Er Líney hresstist, var hún sannfærð um, að það hefði enginn annar verið en faðir sinn, maðurinn, sem hún sá sem snöggvast bregða fyrir á glugganum. Hann hafði komið til að láta hana vita hvernig kom- ið væri, en hún veik, og alveg óviðbúin að sjá liann j)arna, áttaði sig ekki á hver J)etta var, J)á í svipinn, enda nokkur ár umliðin síðan þau höfðu sézt. Ég minnist þess, að mér fannst móðir mín hafa tvenns konar einkunnarorð í daglegu lífi sínu, er ég var að vaxa upp, og ég hélt þá, og held enn, að ann- að þeirra muni hún liafa lært af föður sínum, en liitt af móður sinni. Hún sagði oft: Það er ekki nóg að tala, þaS þarj aS framkvœma hlutina. Þetla var hugur Sigurjóns, sem aldrei lét lenda við orðin tóm. Hún sagði líka: Allt vill lagiS hafa hér, af hvaSa tagi sem J>að er. Þetta var hugur Snjólaugar, sem allt- af skildi, að hyggindi og handlagni þurftu að fara saman í hverju verki, sem leyst var af hendi. Sigurjón og Snjólaug gerðu sér J)ess ljósa grein, bæði tvö, strax á ungum aldri, að ef J)eim átti að takast að lifa lífinu vel, þurftu þau að sækja lengra en aðeins til efnisins. Þau lokuðu ekki .augunum fyr- ir þeirri staðreynd, að J)eim var ekki, frekar en öðrum dauðlegum mönnum, ætluð dvöl á jörð, nema afmark- aðan tíma, og Jæss vegna yrðu þau að stefna hugan- um hærra, ef þau vildu ekki eiga j)að á hættu, að komast úr takt við lífið og framrás þess. Þau heimsk- uðu sig aldrei á því, að ganga fram hjá gildi trúarinn- ar. Þvert á móti. Þau áttu í djúpi sálar sinnar. djarfa 1VAN ÖUNIN: IFeg’ -u.r Roskinn ekkjumaður, sem vann í þjónustu ríkisins, kvænt- ist ungu, fögru forstjóradótturinni. Hann var þögull og feim- inn, en hún hafði-mikið álit á sjálfri sér. Hann var hár vexti, magur og berklalegur, gekk með dökk gleraugu, talaði fremur hásri röddu, og ef hann vildi hækka róminn, þá hrann fyrir. Idún var lítil vexti, líkami hennar þriflegur og hraustlegur, liún var alltaf fallega klædd og hún var hirðusöm húsmóðir og kröfuhörö. Bláu augun hennar, haukfrán og fögur, tóku eftir öllu, sem á vegi varð. Það virtist á allan hátt vera jafn- lítið í hann spunnið og ohhann af emha'ttismönnum ríkisins, þó hafði fyrri eiginkona hans líka verið fögur kona. Hvað sáu slíkar konur við hann? Siðari fallega eiginkonan hans ól í hugarleynum sér hatur til sjö ára gamals sonar fyrri konu hans, og af ásettu ráði lét hún sem hann væri ekki til. Og faðirinn, sem óttaðist hana, byrjaði einnig að láta sem Iiann hefði aldrei átt son. Og drengurinn, sem var lífsglaður og ástúðlegur að eðlisfari, fór nú að verða hræddur við að segja nokkuð í návist þeirra, dró sig algerlega í hlé og virtist hverfa úr húsinu. Þegar eftir giftinguna var hann rekinn út úr herbergi fööur síns og látinn sofa á litlum legulækk í litlu setustof- unni, sem var full af húsgögnum með úklæði úr bláu pelli. En hann svaf órótt, og á liverri nóttu sparkaði hann ábreið- unni og línvoðinni ofan á gólfið. Og innan skamms sagði fallega konan við þjónustustúlkuna: „Þetta er alveg vanvirða, hann er að nugga sundur allt pellið á legubekknum. Gerið honum hvílu á gólfinu á dýnunni, sem ég sagöi yður að flytja burt í stóru kistuna hennar húsmóður yðar sálugu á stigagöngunum." Og drengurinn, sem var orðinn einn og yfirgefjnn í heim- inum, l)yrjaði að lifa algerlega upp á eigin spýtur, alveg skilinn frá öllum, sem bjuggu í húsinu — þögull, einmana, án þess að nokkur veitti honum eftirtekt frá morgni til kvölds: liann settist kyrrlátur út í stofuhornið, teiknaði myndir af húsum ú reikningsspjald, eða las aftur og aftur, hvíslandi atkvæðin, sömu myndabókina, er móðir hans framliðna hafði gefið honum; hann smíúaði járnbrautir úr eldspýtustokkum og starði út um gluggann.... Hann svaf ú gólfinu milli legubekkjarins og kers, sem pálmaviður óx í. llann hreiðraði um sig sjálfur á kvöldin, og á hverjum morgni vafði hann dýnunni saman og setti hana í kistu móður sinnar á stiga- göngunum. Og þar faldi hann einnig allar eigur sínar. Steingrírmir Sigurdsson íslenzkaði. trúarvissu og öryggi um, að lífið er ennþá dýpra og stærra en mannanna augu rnega greina í þrengslum jarðar. Af þeim stóð, einnig í þeint efnum „gneisla- llug lífsins“, eins og Geir Sæmundsson vígslubiskup, komst að orði um Sigurjón. Þau létu aldrei, auð sinn og velgengni, skyggja á ])au verðmæti, sem dýrmætust eru mannssálinni. Þess vegna kviðu |)au heldur engu, við umskiptin að ævilokum. Afkomendur ])eirra Snjólaugar og Sigurjóns, líta með djúj)ri hlýju og vitðingu, og sumir kannski með nokkru stolti, til þessara sterku og merku forfeðra Laxamýrarættarinnar. NÝTT KVENNABLAÐ 5

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.