Nýtt kvennablað - 01.11.1949, Side 8

Nýtt kvennablað - 01.11.1949, Side 8
o raum Lag: Sú rödd var svo fögur. Kg óska svo títt, að ég hefði þig hitt er hjörtu vor æskunnar sakleysi bærði og vonin óf dýrðlega draumteppið sitt um dásemdir þær, sem að lífið oss færði. Þær vonir um þig voru vængjatak mitt sem vorblóm, er yljandi sólarkoss nærði. Mig dreymdi um prinsinn, þú draumhetjan varst með dularfull augu — og rödd sem málmhljómar. þú hreifst mig i sælu — og hjarta mitt batzt með heitþrungnri kennd, er í sál minni ómar. Ég reisti þér höll — þú í hásæti sazt, sem himnanna guð, er í dýrðinni ljómar. Kg leitaði alltaf — um ókunnug lönd, og áfram mig vonin um prinsinn minn færði. I hlámóðu fjalla — við brimsollna strönd ég beið þín — því ekki um neina aðra mig kærði Ég fann það, að eilífðar bundu okkur bönd við barminn þinn elskunnar hugarþel lærði. En vonirnar dóu — og veröldin köld inér velti í straumflóði syndanna minna. Æskan er horfin — og komið er kvöld. — í klakasnjó sá ég för sporanna þinna. Eg hvísla svo auðmjúk: Ó, örlaga völd! Því auðnaðist mér ei fyrr prinsinn að finna? Gauja. Frigg og Freyja gráta I^ó goðin hefðu vel um sig búið, konnt vanda- málin í ýmsum myndurn, og sorgin lieim í Ás- garð. Ásynjurnar gráta, bæði Frigg og Freyja. Tignasta ásynjan er Frigg, kona Óðins. Ber hún sem hann umhyggju fyrir tilveru heimsins, og er honum jafn snjöll að andlegu atgerfi. Ljóð sín kenndi Óðinn engurn, nema henni, „nema einni, er mik armi verr“. Frigg hafði tekið eið af öllu á liimni og jörðu, að gera ekki Baldri hinum góða, syni þeirra, mein, utan mistilteini einum. En Loki, sem alls staðar er á verði til hins illa, nær í mistiltein þennan og setur á boga Haðar blinda og hann grandar Baldri. Ásakar nú Frigg sjálfa sig. Einmitt það, að hún sagði frá því, að hún liefði tekið eið af öllu, utan mistilteininum varð til óhappsins. Hún grætur hinn góða son, og glópsku sína. Maður Freyju, Óður, yfirgefur hana, þá græt- ur hún. Heimilisástæðurnar hjá ásynjunum voru á marga lund. En bæði Frigg og Freyja áttu valshami. Og Freyja flýgur af stað í fjaðraham sínum að leita að Óði. Þetta tiltæki liennar verður Ingveldi Einars- dóttur táknrænt, hún kveður: Því dundi Freyju fjaðurhamur, því fengu englar vængjamátt, að andinn lifir ætíð samur, sem óskar flugs og leitar hátt. I. E. Mönnum hefur einhvern veginn orðið Freyja munntömust allra ásynja. Hver búandi kona á landi hér er kölluð eftir lienni — húsfreyja — og þær hafa svo valið nafnið á félög sín. Mörg kvenfélaganna heita Freyja. Freyja í Akraness- iireppi, Freyja í Víðidal o. s. frv. Þá er það þjóð- söngurinn: „Fósturlandsins Freyja, fagra vana- dís.“ Fermingarstúlka sagði í vor, að hún vildi ekk- ert láta syngja í fermingarveizlunni, nerna þetta ljóð. Svo eru það flugþernurnar, sem nú néfnast flugfreyjur, þó stælur hafi orðið um, hvort þær ættu að hljóta svo göfugt nafn, en á þeim sýn- ist nafnið sérstaklega skarta, þar sem þær fljúga sem Freyja í valshamnum, fjöllum ofar. Tár hennar voru heldur ekki móðursorgir, þau voru gulldropar. Mætti samræma það gjaldeyrinum, sem flugfreyjurnar afla þjóðinni, á neyðartím- um. Þá er Freyjukonfekt, það bezta, sem inn fyr- ir varirnar kemur. Nýlega var drepið á, að jörðin okkar, er við nú stöndum, sé eftir sólarlagið eins og „stórt ástvana hjarta“. Fyrrurn átti „Jörð“ að vera annað nafn á Freyju. Hún hefur þá aldrei sætzt Iieilum sáttum við Óð, eða liann við hana. Eða aklrei fundið hana aftur? 6 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.