Nýtt kvennablað - 01.05.1959, Síða 3
4
NÝTT
KVENNABLAD
20.árgangur.
4.—5. tbl. apríl—maí 1959.
Nonnahús
NONNAHtS
á Akureyri
Lítið hús, svart með hvítum gluggalist-
um stendur á baklóð hússins Aðalstræti
54 á Akureyri. Það er síðan 16. nóvember
1958 nefnt Nonnahús og varðveitt sem
safnhús í minningu mannvinarins, hins
heimsfræga rihöfundar og heiðursborgara
Akureyrar, séra Jóns Sveinssonar, Nonna.
Húsið mun vera byggt fyrir rúmum 100
árum og stendur nær óbreytt frá því fyrsta.
það er tvílyft. Á neðri hæð eru tvær stof-
ur, eldhús og búr, en á efri hæðinni eru
þrjú herbergi, sem munu hafa verið notuð
sem svefnherbergi. Á þeirra tíma mæli-
kvarða hefur húsið þótt stórt og myndar-
legt íbúðarhús í kaupstað og er sem slíkt merkilegur
minjagripur. Þá var það nefnt Pálshús, eftir fyrsta
eiganda þess, Páli Magnússyni frá Kjarna við Akur-
eyri.
Nonni fluttisl ásamt foreldrum sínum og systkin-
um frá Möðruvöllum í Hörgárdal í Pálshús árið 1865.
Þar dó faðir hans árið 1869. Nonni fór utan árið 1870,
og skömmu síðar flutti það sem eftir var fjölskvldunn-
ar úr húsinu og dreifðist.
Nonni minnist þess í einni af hókum sínum, er hann
kom til Akureyrar árið 1930 og gekk á gamlar slóðir
bernsku áranna. Þá gat Pálshús varl lengur talizt íbúð-
arhæft, enda stærstur hluti þess notaður sem geymsla
og smíðaverkstæði. Og enn hafði það hrörnað er
Zontaklúbbur Akureyrar, 20 árum síðar, valdi sér við-
fangsefnið: Að safna minjum um séra Jón Sveinsson,
sem á sínum tíma yrði afhent vænlanlegu Byggðasafni
Akureyrar.
Er þáverandi eigendur hússins, hjónin Sigríður
Davíðsdóttir og Zophanías Árnason vissu um áforni
Zontaklúbbsins, gáfu þau honum húsið og þar með
NÝTT KVENNABLAÐ
var lagður grundvöllur að Nonnasafni í Nonnahúsi.
Miklar og kostnaðarsamar umbætur hafa nú verið
gerðar á húsinu og reynt hefur verið að endurbúa það
sem líkast því sem það mun hafa verið á dögum
Nonna þar. Ráðhollir leiðsögumenn og vinir klúbbsins
í þessu starfi voru þeir Stefán Jónsson, arkitekt og
Haraldur Hannesson, hagfræðingur, Reykjavík, en
auk ]>eirra lögðu margir aðrir merkismenn liönd á
plóginn, svo að unnt varð að halda hátíðlegt 100 ára
afmæli séra Jóns í Nonnahúsi. Þá var safnið vígt með
viðhöfn og opnað almenningi.
Séra Jón var Kristmunkur og átti sjálfur engar eig-
ur, ekki einu sinni fötin, sem hann gekk í. Kristmunka-
reglan sér reglubræðrum fyrir öllum nauðsynjum.
Þar af leiðir, að í safninu eru engir munir úr lians
eigu, en járnbent trékista er þar, sem hann notaði
undir bækur sínar á ferðalaginu umhverfis hnöttinn.
Á hana hefur hann skrifað nafn sitt og „Litratur,
Kassen Nr. 3“.
Haraldur Hannesson, hagfræðingur, sem safnað hef-
ur mestum fróðleik um Nonna, bókum hans og munum
1