Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Side 4

Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Side 4
veslast upp úr tæringu, sem er landlæg í Persíu. Hin- ar munu giftast ungar og hljóta hið erfiða hlutskipM fátækrar bóndakonu. Mér varð þungt um hjartað, þeg- ar ég horfði á austurlen/.ku börnin, sem fylgdu mér eftir með stórum, alvarlegum augum, hvert sem ég fór. Eg gleymi aldrei Khadidje, sem lá á barnadeildinni í háskólasjúkrahúsinu i Teheran. Hún var hálfs annars árs, en samt ekki nema 3 kg. Hún var svo lítil og mög- ur, að hún liktist ekki lifandi barni. Það var eins og hún væri ekkert nema stór gamalmennisaugu, sen; horfðu í gegnum mann. Hún lá grafkyrr, aðeins fing- urnir hreyfðust örlítið. Ég gat ekki lokkað fram svo mikið sem skugga af brosi, hvernig sem ég fetti mig og bretti. Hún hafði legið þarna í tvær eða þrjár vikur — eitt hinna óteljandi austurlenzku barna, sem verða næringarskortinum og þarmabólgunni að bráð. Lækn- arnir bjuggust við að geta bjargað henni, en hvernig verður líf hennar, ef hún kemst ekki á barnaheimili eða verður tekin í fóstur? í dagbók sjúkrahússins stóð ekkert um það, úr hvaða stétt telpan var. Að likindum hafa foreldrar hennar verið verkafólk. Laun persnesks verkamanns eru ekki nema sjötti hluti af kaupi dansks verkamanns, og þó er flest allt langtum dýrara í Persíu og lítið um al- mannatryggingar. ! Teheran finnast að meðaltali 10 börn á sólarhring, sem foreldrarnir hafa borið út á götu til þess að lofa þeim að deyja. Jafn átakanleg sjón og Khadidje fannst mér börnin á uppeldisstofnun einni í Teheran. Þau voru 3—5 ára, klædd baðmullarsamfestingum, sem allir voru eins. — Harnabeimilið hafði fengið að gjöf kynstrin öll af leik- föngum. En þessi börn kunnu ekki að leika sér. Þau rifu bara leikföngin í sundur. Það eru færri leikfangabúðir í þessari heimsálfu en í Evrópu. Barnabækur á máli landsmanna eru alls ekki til og þó á þessi þjóð mikinn fjársjóð af ævintýrum. Dag nokkurn sá ég barnahóp, sem safnazt hafði saman umhverfis gamlan gráskegg, er sat á hækjum sínum á gangstéttinni í einu af úthverfum Teherans. Hann minnti á austurlenzku vitringana, þar sem hann sat mitt í hrifnum barnahópnum, enda var hann sagna- þulur að atvinnu. í áheyrendahópnum voru alls konar börn. Þar voru litlir skítugir betlarar og velbúin syst- kini klædd Evrópufötum. Þau voru á leið heim úr skóla og voru í fylgd með fóstru, sem sveipuð var stórri persneskri slæðu, sem hún hélt að sér með tönn- unum, því að hún leiddi börnin sitt við hvora hönd. Fóstran hlustaði jafnhrifin og börnin á söguna um rika kaupmanninn, sem fór til markaðsins ineð ábreið- ur og krukkur á úlfaldu. Þegar hann kom til borgar- innar, var það hans fyrsta verk að gefa betlara ölm- usu. Síðan kraup hann á kné, sneri andlitinu til Mekka Litlu fitúlkurnar við vcfinn. og bað Allah að gefa sér góða verzlun. Eins og margar þernur Austurlanda var þessi slæðubúna fóstra varla af barnsaldri. Ég minnist hinnar þrettán ára gömlu Frangie með brokkna hárið og fallegu augun. Ég hitti hana hjá efu- aðri fjölskyldu í Beirut. Frangie bar mér indælt te, en hún var svo forvitin, að hún stóð á gægjufli í dyragaút- inni til þess að fylgjast með því, sem gerðist í dagstof- unni. Hún var frá Sýrlandi. Faðir hennar hafði fram- fleytt fjölskyldu sinni með því að annast vöruflutn- inga á tveim úlföldum, sem hann átti. Þegar úlfald- arnir drájiust skyndilega, varð þessi stóra fjölskylda svo bjargarþrota, að fjórar elztu dæturnar urðu að fara til Libanon til þess að leita sér að atvinnu. Þegar Frangie kom til Beirut fyrir ári síðan, hafði hún aldrei átt skó, aldrei séð síma, nýtízku eldhús né búið í herbergi með búsgögnum, og auðvitað kunni hún hvorki að lesa né skrifa. En vegna gáfna sinna og hollustu bæði við húsbændur sína og fjölskyldu sína, tók hún skjót- um framförum. Eftir skamman tíma var hún orðin fær um að annast störfin á þessu stóra heimili, þvoði þvottinn í vél og strauaði hann, og var sjálf alltaf hrein og snyrtilega til fara. En hún sendir föður sín- um hvern eyri, sem hún vinnur fyrir. „Nú sendum við Frangie í skóla. Hana langar lil Jiess að laira að lesa,“ segir húsmóðir hennar. í Sýrlandi, Líbanon og Persíu eru þúsundir pilta og stúlkna, sem hafa séð hinn tæknimenntaða heim sem snöggvast og skilja, að skólamenntun er lykill að }>ess- ari nýju menningu. í Persíu skró]ia börnin ekki í skólanum, heldur stelast þau í skólann. Þetta hafa inargir kennarar sagl inér. Það var t.d. hin níu ára gamla Farah, sem alltaf kom í skólann á hverjum morgni og drakk í sig hvert orð. Einn dag kemur hún tveiin tímuni of seint, en vill ekki segja hvers vegna. En kennarinn fékk að vita um ástíeðuna. Foreldrarnir 2 NÝTT KVENNAHl.At)

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.