Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Side 10

Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Side 10
Guðbjörg Jóhannsdóttir frá Grafardal F. 5. okt. 1872. — D. 11. jan. 1960. M I N N I N G Mig langar til að minnast hennar og helga henni 'þessa stund, sem ég annars hefSi notað til þess að fylgja henni síðasta spölinn, ef fjarlægð og fleira hefði ekki hindrað það. Fyrsta minning mín um Guðbjörgu er það, að for- eldrar mínir voru kunnug þeim hjónum, Guðhjörgu og Jóni Þorsteinssyni manni hennar. Móðir mín hafði um nokkurt árabil dvalið í Grafardal hjá föður Guð- hjargar, Jóhanni, sem kallaður var hinn ríki. — Ekki vöndust unglingar, sem þar ólust upp, á óhóf né iðju- Jeysi, enda var það á mesta harðinda- og hallæris- tímabilinu á síðustu áratugum 19. aldarinnar. Ung að árum giftist Guðbjörg Jóni Þorsteinssyni, ættuðum úr sömu sveit. Bjuggu þau á ýmsum stöðum í Borgarfirði. Þar kom þó að þeirra leið lá til Reykja- víkur, sem þá var með öðrum svip en nú er. Atvinna oft rýr og enginn barnalífeyrir eða þ.h. styrkir. Bæði voru þau hjón með afbrigðum gestrisin og greiðasöm. Kunningjarnir úr sveitinni heimsóttu þau. Fengu góð- gjörðir og oft gistingu og alla fyrirgreið’slu, sem þau gátu í té látið. Minnist ég þess, að þar gisti faðir minn oft, og þar fékk hann að liggja um tíma, er hann ekki komst heim vegna veikinda. Sjálfsagt hefur ekki verið gengið ríkt eftir endurgjaldi. — Það hafa verið mörg Brekkukotin og Unuhúsin á Islandi, þó að þeirra saga sé ekki skráð. Seinna kom svo að því, að við systkinin bjuggum í sambýli við Guðbjörgu og hennar fjölskyldu í erfið um og ófullnægjandi húsakynnum. Ekki minnist ég þess að nokkurn tíma hly]»i snurða á þráðinn í þeirri sambúð. Átti Guðbjörg ekki hvað sízt pátt í, að vel fór. Við vorum þá á þeim aldri, sem ekki er alltaf ljóst, hvað'a kjör og erfiðleika þeir eldri eru búnir að ganga gegnum á lífsleiðinni. Halda jafnvel að hægara sé að ráða við atburðarásina en reynist þegar út í lífið kemur. Ég minnist sumarsins, þegar ég var svo óheppin að fá blóðeitrun í fótinn og vera ósjálfbjarga um tíma. Þá var gott að hafa Guðbjörgu nærri sér. Ekki voru talin sporin og ekki tilætlun um endurgjald fyrir fyrir- höfn. — Hún hikaði ekki við að deila síðasta sopa og bita með öðrum, ganga úr rúmi sínu fyrir gestum, eða lána sængina sína, ef búa þurfti um sjúkling á ferðalagi. Ég minnist, eitt sinn var ver'ið að flytja gamlan sveitunga Guðbjargar upp yfir Hvalfjörð. Hann var efnamaður og að honum stóð efnað' fólk. Þá var gott að fá yfirsængina hennar Guðbjargar. Hún var ekki of fín til þess að mæta ferðavolkinu. í mörg seinni ár bjuggum við það langt hvor frá annarri. að við sáumst sjaldan. Síðast, þegar ég kom til hennar tók hún brosandi og hlýlega á móti mér, eins og einatt áður. - Hún þráði að þurfa ekki að verða öðrum til byrði. En nú síðustu missirin var hún hjálparvana og naut þá hjálpar barna sinna. Sjálf- sagt hefur Guðbjörgu, eins og fleirum, ekki fundizt ævinlega lífið taka sig mjúkúm tökum. Vonbrigði, erf- iðleikar og ástvinamissir setja sinn svip á lundina. Það eru ekki allir jafn fa-rir að ma'ta þeirri þrenningu. En nú er leiðin á enda gengin og Ifnn komin þangað, sem enginn veit hvers hlutur er stór og hvers er smár. Henni fylgir þakklátur hugur og von um að henni verði jafn hlýlega tekið og hún lók þeim, sem til henn- ar húsa leituðu, og að (þar fái hún að hitta þá, sem henni voru hjartfólgnir. 21. jan. 1960. Anna Gunnarsdóttir. NÁMSAFREK Frú Högna Sigurðardóttir, íslenzk stúlka frá Vest- manna'eyjum varð hæst af 300 nemendum, sem gengu undir lokapróf á þessu ári í listaskóla Frakka, Ecole Nationale Superieure des Beaux Arts, sem er talinn einhver eftirsóttasti arkitektaskóli í Evrópu. — Hlaut frúin hiii svokölluðu Guadetverðlaun fyrir þetta náms- afrek og heiðurspening frá Félagi franskra arkitekta fyrir þeztu prófteikninguna. Litli snáðinn er að tala við sjálfan sig: Þó að ég vilji það og pabbi vllji það, og þó að Guð vilji það, þá má ég ekkl fá pönnuköku, af því mamma vill það ekki. 8 NÝTT KVENNARIAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.