Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Page 11

Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Page 11
GUÐLAUG BENEDIKTSDÓTTIH: Reynila Niðurl. Eitt haustkvöldið, þegar Jórunn kom frá því að fara bæjarleið sá hún hvar maður kom á reiðhjóli á móli nenni. Hann stanzaði, steig af hjólinu og kastaði kveðju ú Jórunni: Eflaust gæti hún sagt honum, hvar hann hérna, Jón hreppsstjóri ætti heima. Jú, hún gat það. Hann átti heima hérna uppi á ásn- um heint á móti, og hún benti í áttina, þaðan sem hjól- reiöamaÖurinn hafði komið. Maöurinn hlístraði lágt. Þetta hafði hann ekki var- azt. Hann var prestur, sagði hann. Og af því að prest- laust var í sókninni hafði hann verið fenginn úr næstu sókn, til að jarða konu, sem hafði látizt einhvers stað- ar hérna í nágrenninu. Jú, Jórunn kannaðist við það. Kannski þau ættu samleið, fyrst hann þurfti að snúa við? Jú, Jórunn átti heima í næsta bæ fyrir utan Ás, þar sem hreppstjórinn bjó. „En þér ættuð ekki að tefja yður á því að vera mér samferða," bætti Jórunn við. Okunni maðurinn ýtti gleraugunum betur upp á nefið og leit til Jórunnar. „Þekktuð þér konuna, se.m ég á að jarðsyngja?" „Við höfum verið samsveitungar í mörg ár.“ Það var löng þögn. Ókunni maðurinn ýtti hjólinu fram méð sér og starði í sífellu niður á veginn. „Var hún kannski búsett hérna?“ sagði hann eins og við sjálfan sig. „Nei, hún var einhleyp og reglulegur einstæðingur alla ævi,“ sagði Jórunn. „En hún var góð og trúuð manneskja.“ Jórunni létti í skapi að koma þessari viðurkenningu að. Ókunni maðurinn leit ennþá einu sinni á Jórunni í gegnum gleraugun. „Ja-há, svo hún var vel kristin kona,“ sagði hann. „Bað hún þá fyrir öðrum?“ „Það má vel vera þó mér sé ekki kunnugt um það.“ „Já, en sjáið þér, að vera kristinn, það er þetta atriði að biðja fyrir óvinum sínum, annars ná menn ekki tilganginum.“ Maðurinn þagnaði og starði niður á veginn. • • • • ’ , — Þetta má vel vera satt sem hann segir, hugsaði Jórunn, en strangt er það að biðja fyrir þeim, sem hafa gert manni illt. Þetta var þó eflaust rétta leiðin. Myndi henni nokkurn tíma takast að ná því marki? Hún hristi hægt höfuðið. Auðvitað var það mikil smæð að hugsa stöðugt illa hver til annars, það hlaut að loka fyrir manninum mörgum leiðum sem Guð hafði gefið honum til þroska og lífshamingju. Jórunn hrökk upp af fasta svefni. Regnið lamdi gluggann hennar, það var eins og votar krumlur, sem vildu komast inn og fá húsaskjól. Það var reglulegt illveður. Jórunn smá vandist látunum í storminum og rigningunni og fór von bráðar að blunda aftur. Þá varð hún þess vör að einhver kom inn í herbergið. Sá umgangur raskaði þó ekki þeirri værð og jafnvægi, sem hún var komin í. Henni heyrðist eitthvert hljóðskraf en hún sofnaði án þess að gera sér grein fyrir hvað það var. — Fljótlega losaði hún svefninn aftur við það að einhver var að ýta við' henni. Hún hálf vaknaði og leit fram í herbergið og sá einhverja gráleita veru. Hver skyldi þetta vera? liugsaði hún án ótta. Þá sá hún konu á hvítum klæðum með lítið kertaljós í hendi. Litla 1 jósi'ð féll á einmanalegan, gráleitan mann. Jórunn litla undraðist það, sem fyrir augun bar. Það var gamla, þreytta andlitið hans Njáls rithöfundar, sem hún sá i skini litla kertaljóssins. Hann var svo daufur og raunalegur að hún hafði aldrei séð hann slíkan. „Viltu gera bón mína?“ hvíslaði hann. — Jórunn þagði. „Það er kannski ekki von,“ tautaði hann. „En það er nú þetta, Jórunn litla, að ef þú vildir biðja fyrir mér, þá myndi okkur bá'ðum vegna betur — þér og mér.“ Jórunni fannst sem fjötrar bresta af sér, henni hlýn- aði bæði á sál og líkama. „Jú, ég get beðið fyrir þér,“ sagði hún innilega glöð. Hún horfði inn í vatnsblá augu hans og sá tvö tár falla af rauðum hvörmunum. „Maðurinn er stundum stærri og stundum minni en samtíð hans vill vera láta. En hugsum ekki um það. Það er nú þetta sem þú trúðir á Jórunn litla, sem ég þarfnast — skrifaðu svo í fri'ði — í Guðs friði,“ tautaði gamli maðurinn svo lágt að varla heyrðist. Jórunn var ekki lengur hálf sofandi, hún var glað- vöknuð og horfði á það af fullri athygli, að hvítklædda konan leiddi gamla manninn við hönd sér út úr her- berginu. Þá skildi Jórunn að það var vinur hennar, sem var að hverfa sjónum í þetta sinn. „Guð blessi þig,“ hvíslaði hún út í myrkrið. Regnið og stormurinn lömdu gluggann eins og áð- ur, en Jórunn Itafði fengið endurnærðan frið í sál sína. Allt í einu varð henni hugsað til mannsins, sem hún hafði einu sinni mætt úti á þjóðveginum. Hann hafði einmitt sagt henni hvað kristnum manni bæri að gera. En Njáll gamli rithöfundur ■—■ hann myndi aldrei framar verða neitt annað en vinur í hennar garð. NÝTT KVF.NNABI.AÐ — Hvernig þykir yður að vera glft dægurlagasöngvara? Hún: Ágætt, maður venst öllu. 9

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.