Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Page 13

Nýtt kvennablað - 01.10.1960, Page 13
"'nar. Sigrún lætur að orSum vinu sinnar, sækir Sóta, söSIar úann og riður af stað út aS Fossi. Ferðakonan er.létt í skapi og hleypir hestinum út sveitina. Hinn hvíslandi vorblær flytur henni lieita ástarkossa hros- andi sólar, og allt minnir hana nú á þá gleðiríku æskudaga, þegar hún söðlaði Fák sinn og þeysti út að Fossi til vinstúlku smnar. Æskan sjálf er að heilsa henni að nýju. Gömlu hjónin a Fossi fagna Sigrúnu eins og dóttur sinni og hjóða haua hjartanlega velkomna heim á æskustöðvarnar. — Af hver.iu konrstu ekki með drenginn þinn til þess að lofa okkur að sjá hann? spyrja þau. Sigrún segir þeiin ástæðuna fyrir því, að drengurinn kom ekki með henni út að Fossi, en hún lofai gomlu hjónunum )>\i að koma með hann seinna. Sigrún gleymii ttmanum hjá hinum góðu, gömlu kunningjum sínum, og dag- urinn liður.------- Ungi hreppstjórinn á Hamraendum kemur ferðhúinn fraui ur lierbergi sínu. Hann er á förum út í sveit. Reiðhesturinn hans bíður týgjaður á hlaðinu. Sverrir gengur inn í eldhúsij til að kveðja móður sína. — Kemur þú ekki heim í kvöld, góði minn? spyr Þorgerður. — Einhvern tima i nótt, hýst ég við annars skalt þú ekkert undrast um mig, þó að ég koini seint, mamma mín. Hann kveður móður sina með blíðum kossi op gengur út, stigur á bak hesti sínum og þeysir úr hlaði. Þrótt- mikill og glófextur gæðingur ber hinn glæsta svein út skrúð- græna sveitina. Sverri sækist ferðin fljótt og vel. Ut undii Fagrahvammi liægir hann á sprettinum, og hesturinn stígur fetið upp í hvamminn. Ferðamaðurinn stígur af haki og ■'íleppir gæðingi sínum upp í hið grösuga beitiland. Sjálfui sezt liann í hvamminn, og djúp kvöldkyrrðin umvefur hann. .. . Það er komið lanpt fram á kvöld. Sigrún fer að hugsa til heimferðar frá Fossi. Gömhi hjónin hiðja liana að koma hráð h’ga aftur og hafa þá Sverri litla með sér. Sigrún lofar þvi. Hún kveður )>au innilega og heldur lieim á leið. Kvöldið heill- ar hana, eins og svo oft áður á þessum fornu slóðum. IIún lætur hestinn stiga fetið og hugur hennar er á valdi endur- minninganna. Hnigandi aftangeislar hjúpa sveitina fegurð sinni. Sigrún er komin fram að Fagrahvammi. Hún beygir út af veginum og ríður upp i hvamminn. En skyndilega nemur hún staðar. 1 hvamminum situr ferðamaður, sem hún þekkir. Hjarta hennar tekur að slá örar. Hún stígur af hestinum, en stendui kyrr. Sverrir Karlsson ris á fætur. — Er þetta veruleiki? Sig rún! Hann hvíslar nafni hennar..— Sverrir! Þau takaM i hendur. — Ég hakka þér fyrir hann Sverri litla, segir Sigrú.i, pegar þatl hafa heilsast. — Það er ekkert að þakka. Það vai aðeins lítil minningargjöf um nafna í húðinni. Ertu hér «j ferðalagi með fjölskyldu þinni, Sigrún? — Já, fjölskyldan ei nú aðeins ég og Sverrir litli. Maðurinn minn er dáinn. — Svo við mætumst liér aftur fieima í sveitinni okkar frjáls. Það er djúpur fögnuður í málrómi Sverris, og lieitur gleðistraumui fer um sál hans. — Já, svarar bún lágt. Sigrún sleppir hest- inum á beit. Sverrir réttir henui höndiua. Hvammurinn bíðui þeim flosmjúkt sæti í angandi faðmi sínum og þau setjast Sverrir segir: — Sigrún mín! En livað allt minnir mig nú á kvöldið, sem við gáfuin hvort öðru ást okkar hér á þessum friðhelga stað. Hvað allt er líkt nú og þá var. — Já, Sverrir. en margt hefur |ió hreytzt síðun. Hann þrýstir hönd hennar, og rödd hans er djúp og heit. Hann segir: — Eitt hefur ]>ó eng- um breytingum tekið, Sigrún: Ást mín til þin, liún er jafn hsit nú, og þegar hún var þér gefin. — Sönn ást breytist aldrei né deyr, eðli bennar er eilíft, hvislar Sigrún. Sverrir hallar sér utaf í livamniiiiu. Ilunn breiðir faðniinn móti henni, sem hunu elskar, og hún liallur liiilðinu að brjósli lians. Ekkert skal NÝTT KVENNABLAÐ aðskilja okkur framar, ekki sjálfur dauðinn nema um stundar- sakir. Að eilífu heyrum við hvort öðru til, hvíslar hann við vanga hennar. Hann horfir inn i djúp blárra augna og les þar hreina fölskvalausa ást Sigrúnar. Heitar, þyrstar varii hans leita hennar og mæta þeim i löngum, bliðum kossi. Sálii þeirra verða að einni órjúfanlegri heild i hinni djúpu sælu. Ast beggja kemur stælt og hrein sem gull úr eldi reynslunna' og vornóttin hlessar endurfundina i friðsælum faðmi sinum. Tíminn líðirr. Elskendurnir rísa á lætur og leiðast upp þvamminn til hestanna. Jörðin undir fótum þeirra grætur glitrandi daggartárum af gleði og unaði lifsins. Þau stiga í bak hestum sínum og riða hlið við hlið niður á veginn. Sverrii var á leið út i sveit, en nú er ferðum hans hreytt. Þangaí getur liann alltaf farið seinna. Kyrrðin er djúp og heilög Þau tvö, sem ferðast fram veginn eru samstillt unaði hennar. Fram hjá Nesi -stöðva þau gæðingana. Leiðirnar skilja að nyju. Sverrir rennir sér af liaki hesti sinum. Sigrún gerir það lika Hann leggur arminn yfir herðar nenni og segir. — Hér á þess- um stað kvöddumst við nóttina yndislegu, sem við gáfum livotl öðru ást okkar. Nú kveðjumst við hér aftur i nótt. Þá biðu okk- ar hin þungu, sáru örlög — nú bíður okkar hjört hamingjurík framtíð. Guð hefur gefið okkur hvort annað aftur, Sigrún min. — Já, hann hefur snúið öllu okkur til blessunar. Hún horfir sæl i fallegu, dökkbrúnu augun æskuvinarins góða og trúa, sem Guð hefur gefið henni að eilífu. Varir þeirra mæt- ast í heitum kveðjukossi. Sverrir stigur á hak hesti sínum og heldur ferð sinni áfram heim að Hamraendum. Sigrún sprettir reiðtýgjunum af Sóta fyrir neðan túnið í Nesi og gengur heiin að bænum. Heimilisfólkið i Nesi livilir i værum svefni. Sigrún gengur hljóðlega inn og háttar hjá Sverri litla. Hún lýtur ofan að honunt og kyssir hann létt. — Elsku drengurinn minn. hvislar hún. Sigrún getur ekki sofnað. Hugur hennar er bund- inn við atburði liðna kvöldshis. Frá sál hennar stígur heil þakkargjörð til gjafarans allra góðra hluta. Á þessari nóttu hefur hann gefið henni allt, sent hana liefur dreymt um. Hún vinnur nýt-t heit frammi fyrir Guði sínum: Allt sitt líf skal hún eftir megni breiða ylgeisla kærleikans á brautir annarra. Gjafir Guðs á þessari nóttu skulu hera ríkulegan ávöxt í lífi hennar og breytni honum til lofs og dýrðar. Nýtt áforrn kemui fram i huga Sigrúnar. I húsinu hennar vestur í Lóni búa hlá- fátæk hjón.'sem ekki eiga neitt þak yfir höfuðið. Hún ákveður að gefa þeint liúsið sitt. Föðurarf Sverris litla er hún húin a'ð setja á vöxtu. Húsið ú hún eili. Sigrún veit, að Sverrir Karls son óskar ekki eftir því að auðgast af eignunt manns hennai sáluga. Sigrún stígur hljóðlega fram úr rúminu og nær sér í bréfsefni og skriffæri. Hún skrifar fátæku hjónunum vestui í Lóni og gefur þeiin húsið sitt. Fyrsti morgungeisli risandi sólar fellur inn um baðstofugluggann á Nesi yfir sendihréfið sem Sigrún hefur lokið við að skrifa. Nóttin er á enda, op senn fer allt að vakna til lifsins í faðmi hins nýja dags. Sigrún stigur aftur upp í rúmið og bjartar morgundisir vagga henni blítt í ljúfan drauinaheim.-------- Hinn heiði vormorgunn hefur heilsað sveitinni með heitum geislakossi. Þorgerður á Hamraendum er snemnia á fótum. Hún gengur út úr húsinu og heilsar hinum nýja degi. Á leið inni inn aftur nemur hún staðar í forstofunni og veitir þvi eftirtekt að huttur og vettlingar Sverris liggja þar á hillti Hann er þá koininn lieim, liugsar Þorgerður og gengur aí sínum vanastörfum. Heimilisfólkið rís af blundi og kemur nið- ur í eldhúsið til að drekka morgunkaffið, allir nema ungi húsbóndinn, en það er óvanalegt, að hann komi siðastur á lætiir. Viiinufólkið gengur lil sinna starfa og miirgunninn lið- 11

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.