Nýtt kvennablað - 01.12.1961, Blaðsíða 12

Nýtt kvennablað - 01.12.1961, Blaðsíða 12
störf í verzluninni Endinborg og 3 vinnukonur, að mér meðtaldri. Nærri má geta, að störf mín voru mörg og kunnátta mín mjög léleg. En ég reyndi að leggja mig fram. Blessuð frú Þórunn Flygenring fylgdi mér með festu og alúð allan veturinn eftir þörfum. Ég nam allt eins vel og mér var unnt. Ekki mun ég gleyma, hversu vel mér var sagt til og hversu lærdómsríkur þessi vetur var. Fer ég ekki -að fjölyrða hér um matreiðsluna, þvott- ana og annað það, er ég þurfti að gera. En mig langar til að minnast nánar á þetta heimili, sem er mér svo minnisstætt og kenndi mér margþætt verklegt nám, háttprýði, þrautsegju og þolinmæði. Börnin 11 voru dásamleg og minn mesti fengur var að vera í sambandi við þau. Voru þau alltaf hlý og tillitssöm. Elzta barnið var jafn gamalt mér, 15 ára, hið yngsta tæpra þriggja ára. Er ég mæti þessum börn- um fyllist ég enn innilegri gleði og þökk fyrir ótal sam- verustundir, þótt 52 ár séu liðin. Þá gerðust ýms ævin- týri hjá þeim, bæði hinum eldri og hinum yngri, ævin- týri, sem fá mig enn til að brosa og blessa minningu þeirra. Þeirra fjögurra, sem hafa kvatt og hinna 7, sem eru á lífi og ég hlakka alltaf til að hitta. Ekki hef ég heldur neitt á móti því >að hitta Ján Pálsson, dýra- lækni á Selfossi, sem var 17 ára pilturinn, er gekk í Flensborgarskólann, eða að hitta kennslukonuna, Ingi- björgu ísaksdóttur, síðar kona sr. Jóhanns Briem á Mel- stað í V.-Hún., sem árum saman hefur sýnt mér kær- komna gestrisni og vináttu í hvívetna. Þjónustustúlk- urnar, Lea og Guðríður voru mér alltaf prýðilega góðar. Húsbændurnir, Ágúst Flygenring og frú Þórunn kona hans eru líka rík í huga mínum fyrir margþættar móttökur og skilning, sem ég naut jafnan er ég dvaldist síðar á heimili þeirra sem gestur, stundum langan tíma. Get ég ekki stillt mig um að segja hér frá nokkrum atvikum til að lýsa þeim hjónum. Gestrisni þeirra var frábær og ekki var hinum fátækari gleymt. Jón sííulli og Stjáni blái eru mér minnisstæðir fugl- ar, sem fengu alltaf mat er þeir komu. Jón bar oft vatn sunnan úr læk og hló endalaust, er hann var kenndur. Stjáni blái hafði oft hátt, eitt sinn svo, að Ágúst Flygenring kom fram, af skrifstofu sinni, og vildi fá hann út, en frú Þórunn tók undir handlegg manns síns, leiddi hann að næstu stofudyrum og sagði: „Láttu okkur hér um karlinn, vinur minn. Þér ferst allt annað miklu betur“. „Jæja, góða mín“, svaraði Ágúst og fór. Karl nokkur sunnan úr Hraunum kom mánaðarlega með egg og smjör, er hann var að selja. Fyrir jólin keypti Ágúst Flygenring af honum eins og endranær. — En í þetta sinn fór Ágúst með hann út í verzlun keypti á hann ný jakkaföt og ýmislegt handa börnum 10 hans og konu. Karlinn var að vonum hrærður af gleði og þakklæti. Agúst var sérlega nærgætinn og ör- lyndur, og gæti ég skrifað um það langt mál. Þegar ég fór utan 1918, mætti ég Ágúst inni í Reykja- vík. Hann var þá alþingismaður. Eg heilsaði honum, og spurði Ágúst hvert ég væri að fara. „Til Hafnar", sagði ég. „Árný mín, komdu þá greyið mitt á skrifstofu mína á morgun kl. 11. Það er betra að hafa meðmæli með sér í útlöndum“. Ég tók þessu með þökkum og kom í skrifstofu hans næsta dag. Þá las Ágúst upp prýðileg meðmæli handa mér og lét seðil í umslagið. Ég kvaddi og þakkaði innilega. Þegar ég kom út á ganginn, leit ég á seðilinn og voru það þá 100 krónur. Þótti mér það ótrúlega mikið, fór inn aftur, tók upp seðilinn og sagði: „Ágúst, þetta eru 100 krónur. Átti það ekki að vera 10 krónur?“ Ágúst svaraði: „Hvað er þetta, Árný mín, heldurðu ekki, að ég kunni að lesa á peninga?“ og hló við. — Þetta kom sér meira en vel. Er ég var búin að greiða farið til Hafnar og fæði, átti ég 8 kr. eftir af þeim peningum, er ég fór með að heiman. I Höfn hitti ég gamlan mann, sem hafði verið með Ágúst Flygenring á sjómannaskóla í Noregi, sagði hann mér meðal annars, að þeir skólabræður hans hefðu alltaf kallað hann „íslenzkt fyrirtak.“ Það getur engan undrað, þó að ég minnist með þakk- læti og hlýhug fyrsta verustaðar míns, eftir að ég fór að heiman. Þar var festa í öllum heimilisbrag og annir miklar við allt, sem þurfti að gera. Margir telja það litla menntun >að læra heimilisstörf, en fátt eða ekkert er jafn nauðsynlegt. Leiðin til ham- ingju liggur alltaf gegnum störf og erfiðleika. Þess vegna verður hver og einn, er vill verða nýtur maður að fórna gleðistundum til þess >að nálgast verðmætin. Allir menn þurfa að skilja þetta, ef þeir vilja ekki glata líf- inu með tómlæti og iðjuleysi. Hver og einn þarf að vera strangur við sjálfan sig. Ekkert hefst nema með kappi hugans og átökum góðs vilja. Lífið verður lítil- fjörlegt án átaka, starfs, þolinmæði, einlægrar alúðar við störfin, og ef við viljum verða öðrum til góðs, verð- um við að starfa í bæn. Indverska skáldið Tagore segir: „Aðeins með full- komnu lítillæti, fáum við nálgast hið mikla. Að Hverabökkum í Ölfusi í nóv. 1961. Árný Filippusdóttir. NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.