Morgunblaðið - 21.08.2009, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
4 Bílar
Toyota Land Cruiser VX 3,0
dísel, nýskr. 08/2006, ekinn 89 þ.
km, sjálfskiptur, leður, krókur.
Verð 5.990.000,- Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 VX 3,0
dísel, nýskr. 11/2005, ekinn 89 þ.
km, sjálfskiptur, leður, krókur.
Verð 5.750.000,- Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 GX 3,0
dísel, nýskr. 08/2003, ekinn 101
þ. km, sjálfskiptur, krókur.
Verð 3.890.000,- Ath. skipti.
420 6600
REYKJANESBÆ
Toyota Reykjanesbæ - Njarðarbraut 19 - www.toyotareykjanesbae.is
420 6600
Jeep Grand Cherokee SRT8 6,0
bensín, nýskr. 11/2007 ekinn 30
þ. km sjálfskiptur, dökkar rúður,
leður, lúga, innfluttur, nýr.
Verð 4.990.000- Ath. skipti.
M. Benz ML 270 CDI Final
Edition 2,7 dísel, nýskr. 12/2005
ekinn 61 þ. km, sjálfskiptur, leður,
lúga, bakkskynjarar, krókur.
Verð 5.300.000.- Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 LX 3,0
dísel, 35" breyttur, nýskr. 05/2004
ekinn 148 þ. km, sjálfskiptur,
krókur, mikið yfirfarinn bíll.
Verð 4.390.000- Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 200 VX
nýskr. 7/2009, ekinn 100 km,
sjálfskiptur, litað gler, leður,
nýr bíll.
Verð 14.500.000,- Ath. skipti.
Toyota Rav4 GX 2,0 nýskr.
9/2006, ekinn 18 þ. km, sjálf-
skiptur, álfelgur, mjög góður bíll.
Verð 3.390.000,- Ath. skipti.
Toyota Tacoma Double Cab 4x4
4,0 bensín, 38" breyttur, nýskr.
2005, ekinn 23 þ. mílur, sjálfsk.,
lækkuð drifhlutföll, læsingar að
framan og aftan, loftpúðafjöðrun,
37" dekk, glæsilegur bíll.
Verð 4.950.000,- Ath. skipti.
Skoda Fabia Ambiente 1,6
bensín, nýskr. 2/2008, ekinn 24
þ. km, sjálfskiptur, góður bíll.
Verð 2.190.000,- Ath. skipti.
Toyota Yaris Sol 1,3 bensín,
08/2005, ekinn 50 þ. km,
sjálfskiptur, einn eigandi.
Verð 1.290.000,- Ath. skipti.
Nissan Pathfinder LE IT 4,0
bensín, 33" breyttur, nýskr.
11/2006, ekinn 61 þ. km, sjálf-
skiptur, leður, litað gler, lúga,
krókur, einn með öllu.
Verð 4.490.000,- Ath. skipti.
M
bl
11
32
13
4
LAGUNA Seca er ein þekktasta
kappakstursbraut Bandaríkjanna
og mörgum kunnug í gegnum hinn
þekkta tölvuleik Gran Turismo
fyrir Playstation. Brautin var ný-
lega vettvangur fyrir prófun á
Fisker Karma bílnum sem er
hugarfóstur Danans Henriks Fisk-
er sem hefur hannað marga þekkt-
ustu bíla síðustu ára.
Fisker Karma er að auki tvinn-
bíll en það var einmitt markmiðið
með prófuninni að sjá hvort bíllinn
gæti ekið einn hring á Laguna
Seca brautinni án þess að grípa til
aukaorkunnar frá bensínvélinni
sem er þó aðeins notuð til að hlaða
rafhlöðurnar ef á þarf að halda.
Fisker hefur lofað því að bíllinn
ætti almennt ekki að þurfa bensín
nema kannski einu sinni á ári, svo
lengi sem ekki er ekið lengra en 80
kílómetra á dag sem er það sem
bíllinn á að geta komist á raf-
hleðslunni. Bíllinn er enn á
þróunarstiginu en á Laguna Sega
fór bíllinn að minnsta kosti einn
hring og er hann 3,6 kílómetrar að
lengd. Ekki nóg með það heldur
náði Fisker Karma 160 km/klst
sem verður að teljast nokkuð gott.
Þá má heldur ekki gleyma því að
Fisker Karma er rúmgóður bíll
fyrir fjóra og hraðar sér samt í
100 km/klst á aðeins sex sekúnd-
um.
Fisker hefur þegar fengið í það
minnsta 800 pantanir í bílinn og
ætti að styttast í afhendingu á
fyrstu bílunum.
Framför Tvinnbíllinn Fisker Karma ók heilan hring á hinni þekktu kapp-
akstursbraut Laguna Seca án þess að þurfa að notast við bensín.
Fisker Karma án bensíns
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
BÍLINN Trabant þekkja margir
Íslendingar enda talsvert flutt
inn af þessu tákni austur-þýsks
kommúnisma á sínum tíma.
Framleiðsla hans stöðvaðist um
svipað leyti og Berlínarmúrinn
hrundi. Nú hefur þýsk fyrirtækja-
samsteypa ákveðið að hefja fram-
leiðslu bílsins á ný. Í honum verð-
ur þó ekki hávær og reykspúandi
tvígengismótor sem fyrr heldur
rafmótor.
Ólíkt forveranum, sem var með
háværa og mengandi vél, verður
„nýi Trabbi“ hljóðlátur og með
öllu reyklaus og þar af leiðandi
einkar vistvænn. Meðal annars
verður sólrafhlaða í þakinu til að
sjá honum fyrir raforku. Ætti
bíllinn að höfða til umhverfis-
þenkjandi bílkaupenda og jafnvel
þeirra sem haldnir eru fortíðar-
þrá til forverans.
Frumgerð nýja bílsins, eða
„Trabant nT“, kemur fyrir al-
menningssjónir á bílasýningunni í
Frankfurt í september, tæpum
tveimur áratugum eftir að fram-
leiðsla Trabba var hætt. Aðstand-
endur hans gera ráð fyrir að
framleiðsla raftrabbans hefjist
eftir um tvö ár. Það stendur og
fellur með því að þeir finni fjár-
festa til samstarfs. Fari allt á
besta veg verður bíllinn smíðaður
í borginni Zwickau þar sem for-
verinn var framleiddur.
Minnir á forverann
Raftrabbinn verður hannaður
fyrir borgarsnatt og styttri ferð-
ir. Hámarkshraði er áætlaður 120
km/klst. og drægi á rafhleðslu
verður 240 kílómetrar. Hann
verður um 15 sm lengri og
breiðari en gamli Trabbi. Útlit
hugmyndabílsins sem sýndur
verður í Frankfurt minnir óneit-
anlega aðeins á forverann sakir
þess hversu kassalaga hann er.
Aflrásin er enn framleiðslu-
leyndarmál en því er heitið að
auðvelt verði að hlaða hann með
því að stinga í samband við
venjulega heimilisinnstungu.
Ekkert hefur verið gefið upp
um áætlað verð bílsins en þýskir
fjölmiðlar segja það verða á
bilinu 8-10 evrur. Meðal búnaðar
verða tengingar fyrir leið-
sögutæki, farsíma og iPod.
Trabantinn var annálaður fyrir
endingarskort og tíðar bilanir.
Og orð fór af honum sakir
reykjarstróks sem stóð aftur úr
honum. Að hluta til var það skrif-
að á notendur sem oftast urðu að
blanda sjálfir olíu út í bensínið.
Og brúka við það mælistöng sem
stungið var niður í tankinn. Væru
hlutföllin ónákvæm sýndi það sig
í útblæstrinum.
Umgengnin við nýja Trabant-
inn verður öllu auðveldari. Og
hann ætti ekki lengur að verða
skotspónn brandarasmiða.
Þjóðarbíll Austur-Þýskalands
Trabantinn sálugi var að sönnu
þjóðarbíll Austur-Þýskalands.
Óbreyttir borgarar gátu þurft að
bíða í allt að 10 ár eftir að hafa
lagt inn pöntun um einn slíkan.
Enn gera Þjóðverjar grín að
þessum horfna tíma kommúnism-
ans og óskilvirkni þess sam-
félagskerfis sem molnaði innan
frá og leið undir lok 1989.
Lífseig er til dæmis saga af
manni sem pantaði eintak af
Trabant árla 1980. Í sumarbyrjun
var honum tjáð að afhending færi
fram 1. júní 1990, eða 10 árum
seinna. „Fyrir eða eftir hádegi?“
spurði kaupandinn. „Þetta er nú
ekki fyrr en eftir 10 ár,“ svaraði
sölumaðurinn og taldi óþarft að
tímasetja afhendinguna öllu nán-
ar. „Það veit ég,“ svaraði kaup-
andinn, „en pípulagningamað-
urinn kemur fyrir hádegi.“
Fjölgun rafbíla
Þrjár milljónir Trabanta voru
framleiddar á árunum 1957 til
1991. Enn eru taldir um 50.000
gangfærir Trabbar í Þýskalandi
og öðrum löndum.
Þýska stjórnin sagðist í vikunni
vænta þess að smám saman drægi
úr notkun bensíns og dísils í um-
ferðinni. Takmarkið væri að raf-
bílar á götum landsins væru orð-
in ein milljón árið 2020.
Bílafyrirtæki um heim allan eru
að fjárfesta af miklum krafti í
rafbílatækni og bætast aðstand-
endur nýja Trabba nú í þann hóp.
Samkvæmt markaðsrannsókn sem
gerð var fyrir þá sögðust 93 pró-
sent aðspurðra myndu vilja sjá
vistvænan Trabant snúa aftur.
Hönnuður hans, Nils Posch-
watta, hætti störfum hjá VW til
að ganga í lið með aðstandendum
nýja Trabba. Hann þekkti anda
forverans þar sem hann er
austur-þýskur og lærði á bíl á
gamla Trabba. Hefur hann reynt
að varðveita anda forverans í
þeim nýja.
Trabant snýr aftur reyklaus og vistvænn
Á gömlum grunni Trabant snýr aftur reyklaus og vistvænn en reynt verður að halda anda gamla Trabba í þeim nýja.