Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 2
Guðmundur lék með franska liðinu YPORT í næstefstu deild á síðustu leiktíð en hann var búsettur í Gra- nada á Spáni og var því mikið um ferðalög síðasta vetur hjá Guð- mundi. „Ég og fjölskylda mín vorum frekar þreytt á því að búa erlendis og við söknuðum Íslands. Það er alltaf þannig að maður saknar Ís- lands þegar maður býr erlendis og þegar maður er hérna heima þá vildi maður helst búa erlendis,“ sagði Guðmundur í gær en hann var þá nýkominn frá Stokkhólmi þar sem hann lék einn úrvalsdeild- arleik með Eslöv. Fór og keppti einn leik „Þeir eru búnir að fullmanna sitt lið en ég ræddi við þá og þeir buðu mér að vera á „varamannalista“ fram að áramótum. Það voru marg- ir meiddir og ég fór því og keppti einn leik, í einliðaleik og tvíliðaleik. Ég tapaði báðum leikjunum en ég á ekki von á því að fara í fleiri leiki fram að áramótum,“ sagði Guð- mundur sem lék með Eslöv áður en hann samdi við franska liðið. Sálfræðin verður námsefnið í vet- ur hjá Guðmundi en hann hefur lengi haft áhuga á faginu. „Ég veit ekki af hverju sálfræðin varð fyrir valinu. Ég hef lengi haft áhuga á slíkum hlutum og ég leyni því ekki að íþróttasálfræðin er nokkuð sem ég gæti hugsað mér að starfa við í framtíðinni. Ég hlakka til að takast á við námið.“ Guðmundur mun æfa hér á landi meðfram náminu. „Það breytist margt hjá mér hvað æfingarnar varðar, en það verður bara gaman að æfa með gömlu félögunum næstu mánuði. Vissulega eru gæðin ekki þau sömu og hjá sterkum atvinnu- mannaliðum en þetta er nokkuð „Gaman að æfa aftur með gömlu félögunum Guðmundur Stephensen, Íslands- meistari í borðtennis, verður búsettur hér á landi í vetur og ætlar hann að leggja atvinnumennskuna til hliðar í bili. Guðmundur ætlar að stunda nám við Háskóla Íslands til jóla en hann verður á meðal varamanna sænska úr- valsdeildarliðsins Eslöv fram að ára- mótum. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is  Guðmundur Stephensen hvílir sig á atvinnumennskunni í bili  Kominn heim og s sálfræði  Er þó varamaður hjá Eslöv í Svíþjóð og getur skotist í leiki þangað fram að Í HNOTSKURN »Guðmundur E. Stephensener 27 ára og hefur verið Ís- landsmeistari í borðtennis frá 11 ára aldri. »Hann lék með YPORT íFrakklandi í fyrra og áður með Eslöv í Svíþjóð. »Guðmundur er til taks fyrirEslöv ef meiðsli koma upp en stundar nám í sálfræði við Háskóla Íslands. 2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009 HANDKNATTLEIKUR Hafnarfjarðarmót karla Haukar – Valur......................................23:23 FH – Akureyri .......................................33:34 Staðan: Haukar 2 1 1 0 50:47 3 Valur 2 1 1 0 50:49 3 Akureyri 2 1 0 1 58:60 2 FH 2 0 0 2 59:61 0 Reykjavíkurmót kvenna A-riðill: Fram – HK.............................................21:15 Haukar – Fylkir ....................................20:16 B-riðill: Valur – FH.............................................20:15 Stjarnan – Víkingur ..............................27:17 Þýskaland Wetzlar – Lemgo...................................31:30  Logi Geirsson og Vignir Svavarsson voru ekki í leikmannahópi Lemgo. Staðan: Wetzlar 4 3 0 1 110:108 6 Kiel 3 3 0 0 105:76 6 Hamburg 3 3 0 0 99:80 6 Flensburg 3 3 0 0 88:74 6 Lemgo 4 3 0 1 123:108 6 Gummersbach 3 2 1 0 95:74 5 Grosswallstadt 3 2 0 1 81:78 4 Göppingen 3 2 0 1 84:87 4 Lübbecke 3 1 1 1 88:84 3 Füchse Berlin 3 1 0 2 76:77 2 R.N. Löwen 3 1 0 2 88:93 2 Burgdorf 3 1 0 2 83:88 2 Melsungen 3 1 0 2 79:98 2 Minden 3 0 1 2 67:74 1 Düsseldorf 3 0 1 2 63:81 1 Balingen 3 0 0 3 77:85 0 Magdeburg 3 0 0 3 84:96 0 Dormagen 3 0 0 3 69:98 0 KNATTSPYRNA England 3. deild: Accrington – Crewe.................................5:1  Guðjón Þórðarson og hans menn í Crewe eru í 10. sæti með 12 stig. Þýskaland Nürnberg – Bochum .................................0:1 KÖRFUKNATTLEIKUR Powerade-bikarinn Deildabikar kvenna, 8-liða úrslit: Haukar – Njarðvík ................................75:50 Hamar – Valur.......................................84:50  Sigurliðin mætast í undanúrslitum á þriðjudaginn. um helgina KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi-deildin: Stjörnuvöllur: Stjarnan – Fjölnir ......... L16 Kópavogsv.: Breiðablik – Grindavík..... L16 Laugardalsv.: Fram – Þróttur R. ......... L16 Fylkisvöllur: Fylkir – FH...................... L16 Keflavíkurv.: Keflavík – ÍBV................. L16 Hlíðarendi: Valur – KR.......................... L16 Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin: Varmárvöllur: Afture/Fjöl. – Valur ...... L16 Keflavíkurv.: Keflavík – Stjarnan ......... S14 KR-völlur: KR – Þór/KA........................ S14 Kópavogsvöllur: Breiðablik – GRV....... S14 Fylkisvöllur: Fylkir – ÍR........................ S14 KÖRFUKNATTLEIKUR Powerade-bikar kvenna, 8-liða úrslit: DHL-höllin: KR – Snæfell ..................... L16 Keflavík: Keflavík – Njarðvík ................ S17 Powerade-bikar karla, 8-liða úrslit: DHL-höllin: KR – Tindastóll................. L18 Keflavík: Keflavík – Njarðvík ........... S19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Stjarnan.. S19.15 Grindavík: Grindavík – ÍR ................ S19.15 HANDKNATTLEIKUR Hafnarfjarðarmót karla: Strandgata: Valur – Akureyri ............... L14 Strandgata: Haukar – FH ..................... L16 Reykjavíkurmót kvenna: Riðlakeppni lýkur í Austurbergi og Voda- fone-höllinni í dag en leikið er á báðum stöðum frá kl. 12 til 16. Undanúrslit hefjast kl. 10 í fyrramálið í Austurbergi og þar er leikið um 3. sætið kl. 12.30 og um 1. sætið kl. 14. BANDÝ Fyrsti leikurinn í nýrri bandýdeild fer fram í Smáranum í Kópavogi í dag kl. 15. Þar mætast Bandýfélag Kópavogs og Bandým- annafélagið Viktor. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „VIÐ verðum fyrst og fremst að ein- beita okkur að þeim leik sem við eig- um að spila og vinna hann. Takist það þá kemur bara í ljós hvort það nægir til þess að ná þessu eftirsótta öðru sæti sem gefur þátttökurétt í meistaradeild kvenna á næsta ári,“ segir Erna Björk Sigurðardóttir, fyrirliði Breiðabliks og landsliðskona í knattspyrnu, um þá óvæntu spennu sem hlaupin er í keppni um annað sætið í Pepsi-deild kvenna. Eins og tilkynnt var í vikunni er Ísland eitt átta þjóða sem fá tvö sæti í meistaradeild kvenna í knattspyrnu leiktíðina 2010-2011. Fyrir loka- umferðina á sunnudag eiga þrjú lið möguleika á öðru sætinu, Breiðablik, Þór/A og Stjarnan. Öll hafa þau 36 stig. Tvö fyrrnefndu liðin standa bet- ur að vígi en Stjarnan sem hefur skorað 27 mörkum fleira en hún hef- ur fengið á sig. Breiðablik er með 37 mörk í plús og Þór/KA einu færra. Í lokaumferðinni mætast Breiða- blik og GRV á Kópavogsvelli, Þór/ KA sækir KR heim og Keflavík tek- ur á móti Stjörnunni. „Úr því að meistaratitilinn hefur gengið okkur úr greipum þá ætlum við okkur annað sætið og um leið tryggja okkur Evrópusætið. Það væri plús fyrir okkur,“ segir Erna sem reiknar með að Þór/KA muni leggja KR og Stjarnan leggi Kefla- vík. Stjarnan getur blandast alvar- lega í keppnina um annað sætið tak- ist henni að skora vel á annan tug marka hjá Keflavíkurliðinu sem fengið hefur á sig 103 mörk í leikj- unum 17 sem eru að baki í deildinni. Sandra Sif farin í skóla „Eins og við höfum leikið upp á síðkastið þá getur þessi leikur við GRV orðið okkur erfiður. Þá höfum við einnig misst tvo sóknarmenn úr okkar liði sem auðveldar ekki leikinn fyrir okkur,“ segir Erna Björk og vísar til þess að Harpa Þorsteins- dóttir er meidd og Sandra Sif Þor- steinsdóttir er farin út til náms. Sú síðarnefnda er næstmarkahæsti leik- maður Blika í deildinni með níu mörk auk þess sem hún hefur átt drjúgan þátt í mörgum mörkum til viðbótar. „Nú þurfum við að standa undir pressunni og vinna sannfærandi sig- ur og tryggja okkur annað sætið. Því miður höfum við ekki til þessa náð að standast álag, eins og til dæmis í þau skipti sem við áttum möguleika á að komast upp fyrir Val þá tókst það ekki,“ segir Erna Björk sem segir að ekkert annað en sigur komi til greina í dag. „Það er alveg nýtt að það sé hörku- keppni um annað sætið í deildinni. Auðvitað vill maður alltaf ná sem lengst en nú skiptir enn meira máli en áður að ná öðru sætinu vegna þessa Evrópukeppnissætis og við ætlum okkur það,“ segir Erna Björk. Jafnari og skemmtilegri keppni „Deildin í sumar hefur verið jafnari en síðustu ár og fyrir vikið verið skemmtilegri þótt margir af bestu leikmönnunum hafi farið til útlanda fyrir keppnistímabilið. Leikir hafa verið jafnari og maður beðið spenntur eftir að heyra úrslit annarra leikja, nokkuð sem maður gerði ekki áður þegar nokkuð ljóst var fyrirfram hver úrslit leikjanna yrðu,“ segir Erna Björk, fyrirliði Breiðabliks. Við verðum að vinna okkar leik  Evrópusæti í húfi í lokaumferðinni Morgunblaðið/Golli Slagur Breiðablik og Þór/KA standa best að vígi í baráttunni um Evr- ópusætið. Erna lengst til hægri, og samherjar hennar mæta GRV. ÞÓRUNN Helga Jónsdóttir er farin að leika við hliðina á bestu knattspyrnukonu heims með San- tos í Brasilíu. Marta, sem hefur verið kjörin sú besta í heiminum undanfarin þrjú ár, er komin til félagsins í láni frá Los Angeles Sol í Bandaríkj- unum. Santos vann Cresspom, 4:1, á útivelli í brasilísku bikarkeppninni í fyrrinótt en þetta var fyrri við- ureign liðanna. Marta skoraði eitt markanna og sama gerði önnur stjarna úr brasilíska landsliðinu, Cristinae. Marta er í láni hjá Santos til áramóta en hún fór til LA Sol í ársbyrjun, frá Umeå í Sví- þjóð, og skoraði 10 mörk í 19 deildaleikjum í Bandaríkjunum. Þórunn kom inn á sem varamaður í seinni hálf- leiknum en hún hefur leikið nær alla leiki Santos á löngu og flóknu keppn- istímabili sem hófst í janúar og lýkur í desember ef liðið fer alla leið í bikarnum. Þá á liðið eftir að spila í meist- arakeppni Suður-Ameríku. Lið Santos hefur leikið 50 leiki á tímabilinu og ekki tap- að enn. Sigurleikirnir eru 42, jafnteflin átta, og Santos hef- ur gert 257 mörk gegn að- eins 22. Þórunn hefur skorað átta mörk á tímabilinu en hún leikur sem varn- armaður eða varnartengiliður og lék sinn fyrsta A- landsleik í sumar þegar Ísland mætti Danmörku. vs@mbl.is Þórunn og Marta samherjar Marta NÚ liggja fyrir leiktímar á viðureignum íslenska í handknattleik karla á Evrópumeistaramótinu s í Austurríki í 19. til 30. janúar á næsta ári. Ísland með heimamönnum, Dönum og Serbum í bænum af þremur leikjum Íslands hefjast klukkan 19.15 tveimur stundum fyrr. Þrjú efstu liðin að lokinni inni komast áfram í millriðla sem leiknir verða í Fyrsti leikur íslenska landsliðsins á EM verður þriðjudaginn 19. janúar. Flautað verður til leiks 19.15. Fyrr um daginn mætast Austurríkismenn Hlé verður á keppninni 20. janúar en tekið til ó anna daginn eftir þegar íslenska landsliðið mæti Austurríkis, sem er undir stjórn Dags Sigurðsson andi fyrirliða íslenska landsliðsins. Viðureignin v urríki hefst kl. 17.15. Lokaleikur Íslands í riðlakeppninni verður við EM-leiktímar í Linz Gísli Kristjánsson skoraði tvömörk fyrir danska handknatt- leiksliðið Nordsjælland í úrvals- deildinni í gær í 33:32 tapleik gegn Bjerringbro/Silkeborg.    Anton Gylfi Pálsson og HlynurLeifsson handknattleiksdóm- arar dæma leik HSV Hamburg og Alingsas HK þann 3. október í Meistarakeppni karla. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.