Morgunblaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 3
sem ég tók ákvörðun um að gera.“
Held öllu opnu eftir áramótin
Guðmundur er 27 ára gamall og
hann hefur sigrað í einliðaleik karla
á Íslandsmótinu frá því hann var 11
ára. Hann er því í sérflokki á Ís-
landi en hann hefur ekki gefið at-
vinnumennskuna upp á bátinn.
„Ég held öllu opnu. Það er ekkert
leyndarmál að efnahagslægðin hef-
ur mikil áhrif á borðtennisliðin út
um alla Evrópu. Þau hafa úr minni
fjármunum að spila og það eru því
færri möguleikar í boði. Ég veit
ekki hvort ég verð áfram „varamað-
ur“ hjá Eslöv eftir áramót. Það eru
mörg lið sem gætu þurft á leik-
mönnum að halda. Við höldum því
opnu,“ sagði Guðmundur Steph-
ensen.
r
m“
Morgunblaðið/Golli
Heima Guðmundur Stephensen er hættur í atvinnumennskunni í bili en heldur öllu opnu.
stundar nám í
ð áramótum
a landsliðsins
sem fram fer
d leikur í riðli
m Linz. Tveir
en einn
i riðlakeppn-
Vínarborg.
r við Serba
klukkan
og Danir.
óspillra mál-
r landsliði
nar, fyrrver-
við Aust-
ð frændur
okkar Dani og hefst hann klukkan 19.15.
Milliriðlakeppnin stendur síðan yfir frá
24. til 28. janúar.
Enginn íslenskur dómari
Handknattleikssamband Evrópu, EHF,
hefur tilnefnt dómara og eftirlitsmenn
sína á mótið. Enginn Íslendingur er í þeim
hópi.
Alls hafa rúmlega 35.000 aðgöngumiðar
þegar verið seldir á leiki Evrópumótsins
en opnað var fyrir sölu miða á netinu um
mitt ár. Skiljanlega hefur mesta salan verið á leiki landsliðs
heimamanna. Þá munu Þjóðverjar að vanda hafa verið
drjúgir við miðakaup enda þekktir fyrir að skipuleggja
ferðalög sín í tíma. iben@mbl.is
z liggja fyrir
Dagur
Sigurðsson
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
Sigurður Ari Stefánsson skoraði4 mörk í 23:24 sigri Elverum á
útivelli gegn Runar í norsku úrvals-
deildinni í handbolta í gær í fyrstu
umferð deildarkeppninnar.
Helgi Magnússon skoraði 9 stig í72:66 sigri Solna gegn Borås í
sænsku úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í gær. Leikurinn fór fram í Bor-
ås en Sigurður Ingimundarson er
þjálfari Solna.
Jakob Sigurðarson skoraði 11 stigfyrir Sundsvall sem sigraði
Gothia 73:66 í sænsku úrvalsdeild-
inni í körfubolta í gær. Jakob samdi
við félagið í haust en hann var lyk-
ilmaður í Íslandsmeistaraliði KR á
síðustu leiktíð.
Helga Magn-úsdóttir
verður eftir-
litsmaður á síðari
landsleik Eng-
lendinga og
Finna í forkeppni
að undankeppni
Evrópumóts
kvenna í hand-
knattleik sem fram fer í Liverpool í
dag. Bretar unnu fyrri leikinn, 17:14,
í Helsinki á miðvikudaginn. Sig-
urliðið úr viðureignunum tveimur
fer í riðil með Íslandi, Frakklandi og
Austurríki.
Florentina Stanciu, markvörðurkvennaliðs Stjörnunnar í hand-
knattleik, hefur leikið alla þrjá leiki
rúmenska landsliðsins í heimsbikar-
keppninni sem nú stendur yfir í
Danmörku. Rúmenía er komin í
undanúrslit og mætir Þýskalandi í
dag. Í hinum undanúrslitaleiknum
leika frændþjóðirnar Danir og Norð-
menn, sem eru undir stjórn Þóris
Hergeirssonar.
Guðbjörg Guðmannsdóttir fyrr-verandi landsliðskona í hand-
knattleik, hefur sótt um félagsskipti
til ÍBV frá danska liðinu Frederiks-
havn FOX. Guðbjörg sem lék ekkert
á síðasta vetri stefnir á að leika með
ÍBV í 2. deild Íslandsmótsins.
Önnur fyrrverandi landsliðskona íhandknattleik, Helga Torfa-
dóttir, hefur ákveðið að ganga í raðir
Vals frá Víkingi. Helgu mun vera
ætlað að vera á bakvakt fyrir Berg-
lindi Írisi Hansdóttur, markvörð
Vals og íslenska landsliðsins.
Davíð Ágústsson línumaður, semlék með Víkingi í fyrra og Aft-
ureldingu árið þar á undan, hefur
skipt yfir í raðir ÍR-inga.
Hornamaðurinn Þröstur Þráins-son verður í láni hjá Víkingi
fram yfir áramót, hið minnsta, frá
Haukum. Þröstur lék einnig sem
lánsmaður með Víkingi á síðasta
keppnistímabili.
Kanadamað-urinn
Wayne Gretzky,
sem á sínum tíma
var þekktasti ís-
hokkíleikmaður
heims, er hættur
að þjálfa banda-
ríska íshokkíliðið
Phoenix Coyotes
í NHL-deildinni. Gretzky hefur
þjálfað liðið frá árinu 2005. Undir
hans stjórn hefur liðið unnið 143
leiki en Gretzky hefur ákveðið að
leita sér að nýjum vinnuveitanda þar
sem talið er að Phoenix Coyotes
verði selt á allra næstu misserum.
Þeir aðilar sem eru líklegir til þess
að eignast meirihluta í félaginu hafa
sagt að Gretzky sé ekki sá þjálfari
sem þeir hafi áhuga á.
Fólk folk@mbl.is
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
ÞAÐ þarf mikið að ganga á í loka-
umferð úrvalsdeildar karla í knatt-
spyrnu í dag til að Atli Viðar Björns-
son, sóknarmaður FH, missi af
markakóngstitlinum í ár. Hann verð-
ur að öllu óbreyttu þriðji leikmaður
FH frá upphafi sem skorar flest
mörk í deildinni.
Hörður Magnússon vann reyndar
það afrek þrjú ár í röð, 1989, 1990 og
1991, og Tryggvi Guðmundsson varð
markakóngur deildarinnar árið 2005.
Tryggvi hafði áður náð þeim árangri
sem leikmaður ÍBV, árið 1997.
Atli Viðar hefur skorað 14 mörk,
þremur meira en þrír næstu menn,
sem þar með þurfa að skora þrennu í
dag til að ná honum. Þeir eru reynd-
ar allir líklegir til afreka, Alfreð
Finnbogason úr Breiðabliki, Björg-
ólfur Takefusa úr KR og Gilles
Mbang Ondo úr Grindavík eru með
11 mörk hver og engan þeirra er
hægt að útiloka.
FH-ingarnir Matthías Vilhjálms-
son og Atli Guðnason eru með 10
mörk hvor, en KSÍ er þó reyndar að-
eins með níu mörk skráð á Atla. Það
eru því margir sem koma til greina
með að ná í silfur- og bronsskóna.
Að öðru leyti er lítil spenna í loft-
inu fyrir lokaumferð deildarinnar í
dag því aldrei þessu vant eru öll úr-
slit ráðin. FH er Íslandsmeistari, KR
hreppir annað sætið nema eitthvað
furðulegt eigi sér stað, og Fylkir
endar í þriðja sæti og fer ásamt KR-
ingum í Evrópudeild UEFA.
Eitt Evrópusæti óútkljáð
Fram og Breiðablik, sem eru í
fjórða og fimmta sætinu, eiga síðan
eftir að mætast í bikarúrslitaleiknum
og þar ræðst hvort þeirra verður
fjórða liðið sem keppir fyrir Íslands
hönd í Evrópumótunum næsta sum-
ar.
Fjölnir og Þróttur eru fallin og
það er því aðeins spilað uppá stoltið
og mörkin í dag. Það þarf því ekki að
koma á óvart þó ofangreindir leik-
menn sem bítast um gull-, silfur- og
bronsskóna fái óeigingjarnar send-
ingar frá samherjum sínum og taki
þær vítaspyrnur sem í boði verða í
dag.
Leikirnir sex í deildinni hefjast all-
ir kl. 16 og þeir eru taldir upp lengst
til vinstri í opnunni.
Slagurinn um skóna í dag
Morgunblaðið/Ómar
Fjórtán Atli Viðar Björnsson á alla möguleika á að hreppa gullskóinn.
Þrír þurfa þrennu í lokaumferðinni til að ná Atla Viðari og gullskónum
Margir eiga möguleika á silfrinu og bronsinu Atli þriðji markakóngur FH-inga?
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 17. sæti á
nýjum heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA,
sem gefinn var út í gær. Liðið hækkar sig um tvö sæti frá síð-
asta lista. Þá fer Ísland úr 12. sætinu í það 11. á Evrópulist-
anum.
Ísland deilir 17. sætinu með Rússum og hefur komist upp-
fyrir Úkraínu en þessar þjóðir voru í 15. og 16. sæti á síðasta
lista.
Síðasti listi var gefinn út í júní en frá þeim tíma hefur ís-
lenska liðið sigrað Englendinga, sem eru nú í 8. sæti heims-
listans og fengu silfrið á EM, og unnið Serba og Eista í und-
ankeppni HM. Liðið tapaði fyrir Dönum í vináttuleik og fyrir
Frökkum, Norðmönnum og Þjóðverjum á EM í Finnlandi.
Bandaríkin eru áfram í efsta sætinu og aðrar þjóðir á topp tíu eru Þýskaland,
Brasilía, Svíþjóð, Norður-Kórea, Japan, Noregur, England, Danmörk og
Frakkland. vs@mbl.is
Ísland upp í 17. sætið
Sigurður Ragnar
Eyjólfsson