Morgunblaðið - 13.10.2009, Page 3
Morgunblaðið/Ómar
Einbeittur Stefán Gíslason, leikmaður Bröndby, á fullri ferð á æfingu íslenska
landsliðsins. Það mætir Suður-Afríku klukkan 18.10 í kvöld á Laugardalsvelli.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,ÉG hef sagt að ég vilji spila á öllum
alþjóðlegum leikdögum og það var
kærkomið að fá þennan leik,“ sagði
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari
við Morgunblaðið á æfingu landsliðs-
ins í Kórnum í gærmorgun en Ólafur
ákvað að flytja æfinguna þar sem að-
stæður á Fram-vellinum voru ekki
sem bestar en þar átti liðið að æfa.
,,Það hafa verið mikil batamerki á
leik liðsins í síðustu tveimur leikjum
og við leggjum upp með að halda
áfram á sömu braut. Suður-Afríku-
mennirnir eru mjög flinkir og halda
boltanum ótrúlega vel innan liðsins
en eru ekkert sérlega sókndjarfir.
Þetta verður því kannski svolítið
öðruvísi leikur hjá okkur en oft áð-
ur,“ sagði Ólafur.
Eigum fína möguleika
Ólafur hefur séð á myndbandi leik
Suður-Afríkumanna gegn Norð-
mönnum en liðin áttust við í Osló á
laugardaginn þar sem Norðmenn
höfðu betur, 1:0.
,,Ég met það svo að við eigum fína
möguleika gegn Suður-Afríkumönn-
unum. Þeir eru að reyna að spila
hálfgerðan sambafótbolta enda
Brasilíumaður að þjálfa liðið. Við
þurfum að reyna að loka á þeirra
stutta þríhyrningsspil og komast út
úr þeirri pressu sem þeir koma
örugglega til með að setja á okkur.“
Ólafur teflir fram sínu sterkasta liði í
kvöld að því undanskildu að fyrirlið-
inn Hermann Hreiðarsson og Heiðar
Helguson eru fjarri góðu gamni sök-
um meiðsla.
,,Ég vil alltaf reyna að fá okkar
sterkustu leikmenn og við tökum
þennan leik af mikilli alvöru,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
Munaði hársbreidd að
við færum til Argentínu
Fregnir bárust af því í fyrrdag að
íslenska landsliðið mætir Írönum í
vináttuleik í Teheran í næsta mánuði
og spurður út í þann leik sagði Ólaf-
ur; ,,Ég er bara mjög ánægður að
mæta þeim. Á þessum árstíma koma
ýmis tilboð inn á okkar borð og við
ákváðum að taka þessu boði frá Íran
en það munaði hársbreidd að við fær-
um til Argentínu á dögunum. Þar
sem ekki er um alþjóðlegan leikdag
að ræða get ég bara fengið leikmenn
sem spila í Noregi og Svíþjóð og svo
auðvitað hér heima. Ég fer með 20
leikmenn til Íran og ég lít svo á að
því fleiri leikmenn sem fá tækifæri
með landsliðinu því betra er það fyrir
okkur. Það verður mikið ævintýri að
fara til Íran,“ sagði Ólafur.
Ólafur stýrir íslenska landsliðinu í 22.
leiknum Mætir Suður-Afríku í kvöld
Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur
í kvöld sinn 22. leik undir stjórn Ólafs
Jóhannessonar þegar það mætir Suð-
ur-Afríkumönnum í vináttuleik á
Laugardalsvellinum. Ísland er taplaust
í síðustu þremur leikjum undir stjórn
Ólafs en það lagði Georgíumenn, 3:1, í
síðasta mánuði og gerði 1:1 jafntefli
við Norðmenn og Slóvaka.
„Mikil bata-
merki í síðustu
leikjum okkar“
Í HNOTSKURN
»Íslenska landsliðið spilar íkvöld sinn 9. landsleik á
árinu. Enn eru tveir leikir eftir,
gegn Íran og Lúxemborg.
» Ísland hefur tvisvar áðurmætt Suður-Afríku, gert 1:1
jafntefli og sigrað 4:1. Suður-
Afríka er í 73. sæti heimslistans
og í 15. sæti í Afríku.
efstu deild,
ta sem eins
það sem
tel mig eiga
lega í öðr-
til Víkings
naði hjá Vík-
ur.“
fá þig?
mig
m ég
taldi henta mér best. Það var annað hvort Víkingur
eða KR. Ég hugsaði KR sem helstu ógn FH á næsta
ári eins og var þegar ég fór til Vals 2007. Ég þekki
líka vel til Loga og það var mjög erfitt að gera upp á
milli en að lokum ákvað ég að velja Víking,“ sagði
Helgi, sem segist á sínum langa ferli hafa upplifað
ýmislegt, bæði góða tíma og slæma en hann segir
tímabilið hjá Val í ár það erfiðasta sem hann hefur
gengið í gegnum.
,,Þetta var hrikalega erfitt, bæði innan sem utan vall-
ar. Liðið náði engan veginn saman í sumar og þær miklu
breytingar sem átt hafa sér stað undanfarin ár hafa komið
niður á því. Mér leið annars mjög vel hjá félaginu og sé ekki
eftir þeim tíma sem ég var þar. Ég átti mér þann draum að
verða meistari með því og það tókst og ég átti stóran þátt í
því.“
Teitur Þórð-arson og
lærisveinar hans í
Vancouver
Whitecaps máttu
þola ósigur á
heimavelli, 2:3,
gegn Montreal
Impact í fyrri úr-
slitaleik þeirra í norðuramerísku 1.
deildinni í knattspyrnu um helgina.
Róðurinn verður því þungur fyrir
Teit og hans menn um næstu helgi
þegar seinni leikur liðanna fer fram í
Montreal.
Cristiane, brasilíska landsliðs-konan í knattspyrnu, skoraði
fimm mörk þegar Santos burstaði
Caracas frá Venesúela, 11:0, í meist-
arakeppni kvenna í Suður-Ameríku
um helgina. Marta gerði tvö marka
liðsins en Þórunn Helga Jónsdóttir
kom ekki við sögu hjá Santos að
þessu sinni. Lið hennar hefur nú
tryggt sér sæti í undanúrslitum
keppninnar en á þó eftir einn leik í
riðlakeppninni.
Einar IngiHrafnsson
skoraði tvö mörk
þegar lið hans,
Nordhorn, tapaði
sínum fyrsta leik
á keppn-
istímabilinu þegar
það sótti ASV
Hamm heim,
lokatölur 28:25. Nordhorn er í þriðja
sæti norðurriðils þýsku 2. deild-
arinnar í handknattleik með átta stig
að loknum fimm leikjum.
Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraðieitt mark og var einu sinni vísað
af leikvelli í tvær mínútur þegar Sön-
derjyske tapaði á heimavelli fyrir
Midtjylland, 30:25, í næstefstu deild
danska handknattleiksins. Sönder-
jyske er í sjötta sæti með fimm stig
að loknum fjórum leikjum.
Rut Jónsdóttir, landsliðskona íhandknattleik, skoraði eitt
mark þegar Team Tvis Holstebro
tapaði með níu markamun fyrir Es-
bjerg, 33:24, á heimavelli í dönsku úr-
valsdeildinni í handknattleik. Tvis
Holstebro er í áttunda sæti af tólf
með fjögur stig eftir sex leiki.
Arna Sif Pálsdóttir skoraði eittmark fyrir Horsens HK þegar
liðið steinlá fyrir Midtjylland, 30:18, í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik. Horsens HK er næstneðst í
deildinni með tvö stig eftir sex leiki.
Levanger, liðið sem Ágúst Jó-hannsson þjálfar í hinni norsku
úrvalsdeild kvenna í handknattleik,
tapaði um helgina fyrir Selbu, 27:22,
á útivelli. Levanger er í sjötta sæti
deildarinnar með fjögur stig að lokn-
um fimm umferðum.
Gunnar SteinnJónsson var
markahæsti leik-
maður Drott í gær-
kvöld með fimm
mörk þegar liðið
tapaði á heimavelli,
22:27, fyrir meist-
urum Alingsås í
sænsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik. Gunnar, sem kom til Drott frá
HK í sumar, gerði tvö markanna úr
vítaköstum. Lið hans er í sjötta sæti
af 14 með fimm stig eftir fjóra leiki en
Alingsås er efst með átta stig.
Þóra B. Helgadóttir, landsliðs-markvörður í knattspyrnu, varði
mark Kolbotn í sigri á Kattem, 2:1, í
norsku úrvalsdeildinni um helgina.
Þegar tvær umferðir eru eftir er Röa
með 52 stig, Stabæk 49 og Kolbotn 47
stig í toppsætunum.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
ÍSLAND og Suður-Afríka leiða sam-
an hesta sína á knattspyrnuvellinum í
þriðja sinn í kvöld þegar þau mætast
í vináttuleik á Laugardalsvellinum.
Þjóðirnar mættust fyrst árið 1998
og gerðu 1:1 jafntefli í leik sem fram
fór í Þýskalandi en þá var suður-
afríska liðið að búa sig undir HM í
Frakklandi. Stefán Þór Þórðarson
skoraði mark Íslands í þeim leik.
Árið 2005 komu svo Suður-
Afríkumenn á Laugardalsvöllinn og
töpuðu, 4:1, þar sem Grétar Rafn
Steinsson, Arnar Þór Viðarsson,
Heiðar Helguson og Veigar Páll
Gunnarsson gerðu mörk Íslands.
Suður-Afríkumenn eru á fullu í
undirbúningi sínum fyrir heims-
meistaramótið en þeir eru gestgjafar
í úrslitakeppninni sem haldin verður í
Suður-Afríku næsta sumar. Þjálfari
liðsins er hinn 60 ára gamli Brasilíu-
maður Joel Santana sem hefur þjálf-
að mörg af bestu liðum Brasilíu en
hann tók við þjálfun suður-afríska
landsliðsins í maí fyrra.
Besti leikmaður Suður-Afríku-
manna, Steven Pienaar, kom ekki
með liðinu til Íslands þar sem hann á
við meiðsli að stríða en þekktasti
leikmaður liðsins fyrir utan hann er
fyrirliðinn Aron Mokoena sem leikur
með Hermanni Hreiðarssyni hjá
Portsmouth.
Suður-Afríkumenn komu til Ís-
lands beint frá Noregi þar sem þeir
töpuðu fyrir Norðmönnum í vináttu-
leik í Osló á laugardaginn, 1:0, en illa
hefur gengið hjá Suður-Afr-
íkumönnum og hafa þeir tapað sjö af
átta síðustu leikjum sínum. Eini sig-
urleikurinn er gegn Madagascar sem
þeir lögðu á heimavelli, 1:0, í síðasta
mánuði.
Íslenska liðið er ósigrað í síðustu
þremur leikjum sínum. Það lagði
Georgíumenn í vináttuleik í síðasta
mánuði, 3:1, og gerði 1:1 jafntefli við
Norðmenn og Slóvaka. Í næsta mán-
uði leika Íslendingar svo tvo vináttu-
leiki. Þann fyrri gegn Írum í Teheran
10. nóvember og fjórum dögum síðar
heimsækja þeir Lúxemborgara.
Sjö töp í átta leikjum hjá Suður-Afríku
ÍSLAND mætir Norður-Írlandi í Evrópukeppni 21-árs
landsliða í knattspyrnu í Grindavík klukkan 15 í dag. Ís-
land vann fyrri leik þjóðanna í riðlinum í Coleraine í síð-
asta mánuði, 6:2, í leik þar sem allt gekk í haginn. Í fram-
haldinu vann liðið síðan stórsigur á San Marínó, 8:0, á
föstudagskvöldið. Lykilmenn vantar í dag, Rúrik Gíslason
og Aron Einar Gunnarsson eru báðir með A-landsliðinu
og óvíst er hvort Birkir Bjarnason spili vegna hand-
armeiðsla. Hins vegar er Gylfi Þór Sigurðsson kominn inn
í hópinn og spilar sinn fyrsta leik með liðinu á þessu ári.
„Það munar vissulega um þessa menn og Norður-Írar
eru með fínt og vel spilandi lið. Leikurinn úti var ótrúleg-
ur en við vorum mjög beinskeyttir og nýttum færin vel. Ég hef fulla trú á að
þeir sem fá tækifæri í staðinn standi sig vel. Við erum með fínan hóp og allir
sem hafa komið inn hafa staðið fyrir sínu,“ sagði Eyjólfur Sverrisson þjálfari
við Morgunblaðið. vs@mbl.is
Strákarnir spila í Grindavík
Eyjólfur
Sverrisson
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009
Íþróttir 3