Dýralíf - 01.09.1925, Blaðsíða 4
4
DÝRALÍF
orsökina, pk kunna menn samt nú oróiö að notfæra sér þetta.
Pví bjöllunum er á haustin mokað í kassa, sem negldir eru aftur,
sendir niður á láglendið, og geymdir þar til vors, i kælihúsum,
svo bjöllurnar vakni ekki í ótima af vetrarsvefninum. En þegar
vorið er komið, eru bændum seldar pöddurnar í pundatali, eða
fjórðunga, dýrum dómum, en þeir strá þeim út yfir aldingarða
sina og ekrur. Vakna þær þá við loftshlýjuna af vetrarsvefninum,
og taka strax til óspillra málanna, að sálga blaðlúsum. Segja
ávaxtaræktarbændur í Kaliforníu, að þeir dollararnir, sem þeir
verja til þess að kaupa fyrir maríubjöllur, sé betur varið, en
nokkur annar skildingur, er fari fyrir fé á fæti!
Einkenuilegt er, að siðan farið var að safna maríubjöllum á
haustin, og geyma þær yflr veturinn í kæliklefum, liafa bingirnir,
þar, sem þær haugast saman á haustin, aukist að miklum mun,
og fjölgað líka. Má af því sjá að einstaklingsfjöldi mariubjall-
anna hefir aukist mjög, fyrir þessar aðgerðir mannanna. Er það
reyndar skiljanlegt, þvi í kælihúsunum eru þær langtum trygg-
ari en úli í víðáttunni, þvi þar drepst mikið af þeim af völdum
dýra og fugla og af breytilegu veðurfari. Pað munar lika afar-
miklu, að komast undir eins á ræktað land, þar sem langtum
meira er af blaðlúsum en úti í víðáttunni. Pví allar skepnur auka
langtum meira kyn sitt þar, sem nóg er ætið, og sama er um
maríubjöllurnar.
Hreiiidýriii
eru útbreidd um alt norðurhvel jarðar, frá Noregi og þaðan
í austur alt til Grænlands. Pau eru einnig á Spitzbergen og
Franz Jósepslandi. Hreindýr voru ekki hér þegar Ingólfur kom;
þau voru flutt hingað á árunum 1771—87 og slept á Austfjörðum,
í Hafnarfirði, í Rangárvallasýslu og í Vaðlaheiði við Eyjafjörð.
Dýrin voru aðallega send sem gjöf til íslands, frá norskum
kaupmanni í Hammerfest og frá Lapplending einum að nafni
Pétur. Pau voru í fyrstu alfriðuð, en árið 1828"var friðunin
afnumin, og þá var þeim gereytt í Rangárvallasýslu og í Vaðla-
heiði. Nú eru þau aðeins á Reykjanesfjallgarði og í óbygðum
Austurlands.
Kettir.
Pað eru ekki lil eins mörg afbrigði af tömdum köttum, eins
og af hundum, en samt eru þau mörg. Kettir ættaðir frá eynni
Mön í írlandshafi, eru rófulausir, og i Kína er til kaltategund