Dagrenning - 01.08.1924, Qupperneq 4

Dagrenning - 01.08.1924, Qupperneq 4
4 DAGRENNING landsmanna, en hitt verður svipað prentuðum gljámyndum, þegar menn fara að segja sögur, sem eru eigi annað en skuggi af einhverjum er- lendum sögum, eða stælingar. Höfuðkosturinn við Öldur Benedikts er sá, að hann segir víðast hvar frá blátt áfram og tilgerðarlaust. Efni hans er og tekið beint úr daglegu lífi þessarar þjóðar, t. d. efnið í „felldum harðstjóra“, þar sem mjög vel er sagt frá tilhlökkun drengsins, sem átti að fá að fara með í eggjaleitina. pá er og „Stakkur- inn“ ágæt smásaga, og sögð svo eðlilega, að les- andanum er sem hann gangi við hliðina á Jóni í kafaldinu og hrapi með honum. pað er óhætt að mæla með þessari bók við landsmenn, því að hér er iim vel sagðar íslenzkar sögur að ræða, en ekki skælt og bjagað stælingartildur. Heilög kirkja, sextug drápa eftir Stefán frá Hvítadal, 1924, grallara- brot, 60 bls. fyrir utan titilbl. Hinn ytri frágangur á þessu riti er ágætur. Á titilblaðinu er ljósastjaki með sjö Ijósum og fagur rammi um síðuna, fallegt gotneskt letur, bæði á titilblaði og kvæðinu, og rammi um hverja blaðsíðu. Hefir Björn Björnsson teikn- að, en Ólafur Jónsson gert myndamótin. Er hvorttveggja prýðilega gert. Leitt er það við svo prýðilegan frágang, að á 14. bls. standi fimm stafir skakkir. Kvæðið er ort undir hrynliendum hætti og mjög vel kveðið, á fallegu kjarnmiklu máli, af guðmóði og trúareldi. pessa bók verða allir að eignast, sem trúaðir eru, og vantrúaðir verða og að læra þessa nýju Lilju. Hér skal sett til prýðis upphaf kvæðisins: Faðir vor á himna-hæðum, helgist þitt nafn í alda-safni; vandað skal mál, og utan enda ungum rómi dýrð þér hljóma; En niðurlagið er svo: Dýrð sé guði í hæstum hæðum, helgar tungur engla sungu; verði sí-ung dásemd dýrðar drottins kirkja og traustast virki; drottinn sendu þjóðum þreyttum þægust hnoss og lyftu krossi; kvelds og morgna um allar aldir, einum rómi og dýrð þér hljómi. Skátar. Skátahreyfingin er ekki einu sinni 20 ára gömul, en samt hefir hún náð tökum á ong- lingum alstaðar í heimi og útlit er fyrir, að hún þrífist svo vel og fljótt, að hún innan skamms verði álitin nauðsynleg til undirbúnings undir lífsstarfið, hverrar tegundar sem það er. Hver er ástæðan fyrir þessari sigurgöngu skátahreyfingarinnar ? pví er fljótsvarað. Á stefnuskrá skáta er alt það, sem miðar aö því að gjöra unglinga að hraustum, duglegum og góðum borgurum. Eins og þegar smábörnin leika sér og herma eftir það, sem þau sjá foreldrana vinna, eins er skátalærdómurinn leikur til að byrja með, en kenslugreinarnar eru margvíslegar og misjafnar eftir því, sem á við í hverju landi. Aðallega eru æfingar látnar fara fram úti, vetur og sumar, þegar veður leyfir; skátarnir læra að ferðast, „liggja úti“, matreiða og yfír- höfuð nota náttúruna, sem þeir koma til að elska, ekki sízt hér á Fróni, meö því að livergi er stórkostlegri náttúrufegurð en hér. Þeir læra að elska landið, þeir verða liarðfengir og færir í flestan sjó — þeir læra að keppa að því, að' halda heimsmerki skáta í heiðri, ætíð „að vera viðbúnir,“ livað sem að höndum ber, og ætíð gera skyldu sína. Ilvort sem það er eldur eða annað slys, sem kemur fyrir, á skátinn þegar í stað að vita,. hvaö ber að gjöra í bráöina, og hann gjörir það tafarlaust. Meiðist maður, t. d. fótbrotni eða slasist á. annan liátt, á hann að vita, hvað þurfi að fram- kvæma þar til næst til læknis o. s. frv. Hann á að vera hjálpsamur öðrum, dýravinur, glaöur í lund o. m. fl. Alt þetta má lesa um í skátalögunum. Margar listir á hann að kunna, sem gaman er að og gagn, t. d. kunna að tala með flöggumi langa leið og þekkja „morse.“ Ef það ekki er gaman að geta talað við vin sinn yfir ána og þótt langt sé á milli — á nóttu með ljósmerkjum og á dögum með flögg- um — og ákveða við hann næsta skáta-túr, þá veit eg ekki, hvað er gaman. En það er alveg- nauðsynlegt, að sex til átta drengir sé í liverjum flokk, því að þá verður meira varið í skátaíþrótt- irnar, og þá myndast félagsskapur sá — vinátt- an um aldur og ævi, — sem hefir miklu meiri þýðingu, en nokkur annar félagsskapur, af því að- hann myndast í sameiginlegum fögnuöi og þrautum. Áreiðanlega er skátalífið betur að hæfi ís- lendinga en nokkurrar annarar þjóðar og vafa- laust er skátalærdómurinn eins nauðsynlegur fyrir börnin eins og skólalærdómur þeirra og ætti auðvitað að hafa margt af því, sem skátar- læra, sem skyldugrein í barnaskólum landsins.. Reykjavík, 25. júlí 1924. Axel V. Tulinfus,.

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/773

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.