Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1932, Page 4

Skólablaðið - 01.12.1932, Page 4
-4- urinn vakinn upp frá dauðum, ef svo má segja. Maður hefur Þó ekki orðið Þess áskynja enn sem komið er, nð hann væri i lifendc tölu. Vonandi sýnir hann Þoð Þó brátt. Tónlistin er svo dásamlega fögur og guð- dómleg list, að Það verður að sýna henni verðskuldaða virðingu. Það Þarf steinhjarta eðo skilningsleysi með afbrigðum, til Þess að verða. ekki heiili ður af henni, Sagt er, að eitt sinn, er "næturgalinn frá Astralíu'' vsr að syngja,--hafi maður nokkur, sem almennt var talinn harðjakj hinn mesti, farið að skæla - Þetta dæmi sýn- ir mæta vel hin göfgandi áhrif tónlistar á mannssólina. Enginn veit hve mörg sundur- kramin hjörtu hún hefur glatt og jafnvel lifgað við. Yfirleitt mun hún veita mönnum langtum meiri huggun og hugsvölun í sorgum Þeirro, heldur en huggunarhjal flestra presta, sem oft gerir ekkert gagn og stund- um hefur gagnstæð áhrif við Það, sem til var ætlast. Eg fyrir mitt leyti vildi mikið heldur láta spila"Moonlight" eða "Appas- sionata", é grnmmofón, ef ekki vill betur yfir mér dauðum, heldur en Þessa æfagömlu og hundleiðinlegu "rollur", sem nú tíðkast. Að endingu vil ég geta Þess, að æskilegt væri, að okkar ágæta og landfræga kór léti sem oftast'YiI sin heyra öllum, sem hlýða á til óblandinnsr ánægju, er mér óhætt að segja. Lifi svo tónlistinn meðan heimurinn er við liði.* 1 - sem hún hlýtur að gera. H. G. STEFNUMÖTIf). Appollon knéféll með kvöldsvip á brá, - hann kastaði dreyrrós a-hyl. - Og nóttin óf húmtjöld um heiðloftin blá, með hógværö og sefandi yl. En svo var um Ægir sem andavaka lá, oð órótt hann bylti sér til. Eg stóð undir húsvegg i húmsælum krók, með hjartað brennandi af Þrá. Og höndunum ýmist um höfuðið tók, eða hringsnérist til og frá. Eg beið, en hver stund mina sturlun jók -Það var stúlka, sem ég var að fá, - Hún ákvað Það svona að hitta mig hér - og hún var svo dæmalaust góð Eg gekk að Þvi visu að hún gætti að sér, - hún var gallalaust kaupmannablóð.1 Eg vissi Þá ekki að vifatryggð er, svona við Það að falla úr móð. Loks tók ég með ákefð að berja mitt brjóst, minn barlómur ágerðist mjög. Af hafi bar nistandi nætxirgjóst og norðaustan skúradrög. Hún vanrækti að koma, mér varð Það nú ljðstt ö vei, hvilik UrðarlögJ Með kehgboginn hrygginn ég [ialtraði heim, - var hreint og beint drepandi kalt. En á miðri leiðinni nætti ég Þeim, og meira en Það skildi allt. Þar studdist h'ún kafrjóð og broshýr við beim - Það var bilstjóri. Lánið er valt. Eg man að ég svaf ekki neitt Þessa nótt, en nötrandi kveið minum hag. Svo tók ég Þá hörmungar hitasótt, með hósta á Þriðja dag., Þá reis ég aftur úr rekkju skjótt. Nú raula ég mitt harmalag. St. B. VETRARKVELD í SVEIT. Grein undir Þessu nafni birtist i fyrsta tölublaði "Skólablaðsins, Þetto ár. Eg ætla að taka Það fram, að öskar Bemhord Bjama- son, sem er höfundur greinarinnar, er sveita- maður. Þegar ég las grein Þessa, kom mér margt i hug. Það sem'ég fór fyrts og fremst að hugsa * um, var að sá maður, og Það sveitamaður, sem skrifaði nið um islenzt sveitalif, hann hlyti að vera ákaflega efnisfátsakur, og um leið varð hann að hafa sterka löngun til að koma fram einhvemveginn. Sveitalifið islenzka mun flestum Þeim, er til Þekkja, vera einkar kært, og er Það Þvi undarlegur sveitamaður, sem leit- ast við að ófrægja Það á allan hátt. Eg mun nú reyna að benda á helstu atriðin, sem mér Þóttu athugaverð i áður nefndri grein. Snemma i grein Þessari segir höfundur með- al annars: "Aldrei hefi ég fundið eins til einverunnor og útilokunar frá umheiminum, eins og á vetrakveldi i islenzkri gamaldags sveita-

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.