Norðlingur - 03.07.1928, Side 2
2
NORÐLINGUR
Síldarei n kasalan.
Síðborin reglugerð á döfinni.
Alt á huldu enn nieð sölu og verð.
Um annað mun nú ekki meira
rætt meðal útgerðarmanna, sjó-
manna og atvinnurekenda yfir höf-
uð, en síldareinkasöluna nýju, sem
nú fer hvað af hverju að koma fil
framkvæmda. Varla hittast svo tveir
menn, sem að einhverju leyti eiga
afkomu sína í surnar undir því,
hvernig einkasalan ræðst, að beir
minnist ekki fyrst og'fremst á hana.
Útgerðarmenn vegna þess, að þeir
eru í raun og veru að gera út í
blindni; vetkafólk vegna þess, að
það óttast, að mjög lítil atvinna
verði við söltun í landi, og önnur
störf, sem af henni leiða.
»Norðlingur« hefir reynt að afla
sjer nokkurra upplýsirrga um það,
hverriig horfurnar væru — hvernig
fyrirkomulag alt yrði, hvað væri
þegar selt, hvað einkasalan mundi
borga síldarsaltendum, er þeir af-
hentu henni síldina, hvað mikið yrði
saltað o. s. frv., — en fengið þau
svör, að enn væri ekki hægt að
segja neitt .ákveðið. Og það sem
vitað væri, segðist ekki.
Pað eitt er staðreynd, að reglu-
gerð fyrir síldareinkasö'una er í
fæðingunni. Og er hún, að flestra
dómi, nokkuð síðborin. Var það
stjórnarráðsins að semja hana eins
og aðrar reglugerðir. En sennilega
hafa ráðherrarnir ekki treyst síldar-
viti sínu, því að þeir fóru þess á
leit við útfluíningsnefndina, að hún
semdi reglugerðina, Hefir hún nú,
í samvinnu við framkvæmdastjórana
Þingmálafundur
á Sauðárkróki
á sunnudaginn.
Lítil frægðarför hjá sendimönnum
stjórnarinnar.
Á sunnudaginn hjeldu þingmenn
Skagafjarðarsýslu, Magnús Guð-
mundsson og Jón Sigurðsson, þing-
málafund og leiðarþing á Sauðár-
tvo, — einn hefir verið erlendis síð-
an í vor — lokið því verki. Er
reglugerðin nú í stjórnarráðinu til
álits og samþyktar. Og er búist
við, að ráðherrarnir muni »liggja á
henni« fram til miðs þessa mánað-
ar. Þegar reglugerðin er komin,
segja forráðamenn einkasölunnar,
er fyrst hægt að segja eitthvað
ákveðið og byggja á föstum grund-
velli.
»Norðlingur« hefir átt tal við
einn framkvæmdastjórann. Ljet hann
í veðri vaka, að eitthvað væri selt
af síld, en tók þvert fyrir að segja
hvað mikið eða við hvaða verði.
Ekki gat hann heldur gefið nein
ákveðin svör við því, hvað einka-
salan mundi greiða fyrir síldina,
þegar útgerðarmenn afhentu henni
hana; það færi eftir því, hvað miklu
fje einkasalan hefði yfir að ráða.
Sú tilhögun er vitaskuld geysilega
erfið fyrir útgerðarmenn. Með
hverju eiga þeir að borga vinnu-
laun og annan kostnað?
Blaðið grenslaðist eftir því, hvort
einkasalan mundi ekki taka fult til-
lit ti! samninga, sem gerðir hefðu
verið um síidarsölu áður en einka-
sölulögin gengu í gildi. Var svarið
á þá leið, að samkvæmt lögunum
mætti enga tunnu út flyíja nema í
gegnum einkasöluna. En álitamál
væri það, hvort dómstólar mundu
líta svo á. —
Nú er að bíða, og sjá hvað reglu-
gérðin segir.
króki, Óiafur Thors alþingismaður
var á ferðalagi þar í sýslunni og
sat fundinn og talaði þar af hálfu
íhaldsmanna.
Þingmennirnir höfðu skorað á
Jónas Jónsson dómsmálaráðherra,
að sitja þennan fund og ennfremur
þingmálafundi, sem haldnir hafa
verið nú fyrir stuttu á Hvamms-
tanga og Blönduósi, og haga fund-
artíma og fundarstöðum eftir því,
sem honum væri þægilegast. En
kjarkur dómsmálaráðherra er líklega
NORÐLINGUR
(kemur út annan hvorn dag)
Ritstj. og ábyrgðarm.:
JÓN BJÖRNSSON.
Skrifstofa og afgreiðsla í
Hafnarstræti 103. Sími 226. '
Áskriftargjald kr. 1,00 á mánuði
í lausasölu 10 aura eintakið.
að þverra, því að hann tók ekki
áskoruninni, en sendi af hendi
stjórnarinnar til andsvara og varnar
Hannes Jónsson dýralækni. Enn-
fremur fór hjeðan vestur á fund-
inn Brynleifur Tobiasson kennari
til frekara trausts og halds stjórn-
inni og Framsóknarflokknum.
En eftir símfrjett af Sauðárkrók í
gær hefir för hans orðið með litlum
veg og smárri frægð. Var svo sagt,
að hann hefði verið orðinn mjög
aðþrengdur upp á það síðasta.
Stóðu á honum mörg vopn og
hvöss, og bar hann fá eða engin
af sjer.
Til umræðu komu á fundinum
flest hin merkari þjóðmál og þing-
mál, og stóð hann frá því kl. 3 e.
h. á sunnudaginn til kl. 4 á mánu-
dagsnóttina. Með þingmönnum
íhaldsflokksins töluðu síra Arnór á
Hesti og Sigurður bóndi Björnsson
á Veðramóti, en Gísli Magnússon
frá Frosíastöðum með fulltrúum
Framsóknar. En mjög hafði það
verið skakkur skinnaleikur. Var af-
staða þeirra Hannesar og Brynleifs
flótti einn og undanhald allan
fundinn.
Eins og vænta mátti, var yfir-
gnæfandi meirihluti fundarmanna
fylgjandi þingmönnum kjördæmisins.
Virtist ekki biása byrlega fyrir
Brynleifi við næstu alþingiskosn-
ingar. En á því er nú raunar eng-
inn sjerlega hissa.
Benedikt Elfar söngvari heldur
hljómleik einhvern tíma í þessari viku.
Hefir hann ekki haldið sjálfsfæðan
hljómleika hjer síðan um jól. Bæjar-
búar og gestkomandi menn hjer eiga
von góðrar listar, þar sem er söngur
söngur Elfars.