Norðlingur - 28.08.1928, Side 3
NORÐLINGUR
3
Fisk
Lifur
ferskan og
saltaðan,
nýja og
gamla
kaupir
Ingólfur Árnason,
Siglufirði.
}eg undirrituð held námskeið í matreiðslu síldar í Brekku-
götu nr. 9 á Akureyri. Bý til yfir 30 rjetti úr síld. Nám-
skeiðið hefst 10. sept. n. k. og stendur þriggja vikna tíma.
Pátttakendur gefi sig fram á skrifstofu báejarstjórans á Akureyri.
Til lands og sjávar. Björg Sigurðardóttir.
Veðurútlit (tvö næstu dægur):
Suðvesturland: Breytileg átt, víðast
austan, sumstaðar skúrir. Faxaflói:
í dag og nólt norðaustan og norðan
gola, víðast þurt, sennilega skúrir á
Reykjanesi. Breiðifjörður og Vestfirð-
ir: í dag og nótt norðaustan og
norðan gola, þurt veður. Norður-
land: í dag og nótt hægur norð-
austan, þurt veður. Norðausturland:
í dag og nótt norðan kaldi, úrkoma,
kalsaveður. Austfirðir: f dag og
norðan gola, skúrir í útsveitum. Suð-
austurland: í dag og nótt norðaust-
an gola, þurt veður.
Sjera Skúli Skúlason fór ekki
með Drotningunni síðast eins og sagt
var hjer í blaðinu. Breyttist ferða-
áætiun hans á síðustu stundu, og var
gerður á honum augnskurður hjer af
syni hans Helga Skúlasyni augnlækni.
Búíst er við að hann verði orðinn
ferðafær eftir hálfan mánuð.
Staka.
Ekki er göfugt gáfnafar. —
Grenjar í bræði fánýtt svar
orðavösull Ingimar, —
a I i k á I f u r Framsóknar.
X.
Frú Mysz Gmeiner syngur í
kvöld í Akureyrar Bíó. Eftir viðtök-
uro þeim, sem hún fjekk hjer á laug-
ardagskvöldið, má vænta. mikillar að-
sóknar. Ummæli um söng hennar
þá birtast hjer á öðrum stað í
blaðinu.
Alþingishátíðarnefndin fór til
Ringvalla á sunnudaginn var, og auk
nefndarmannanna Geir Zoéga vega-
málastjóri, Sigfús Einarsson og skrif-
ari nefndarinnar, Jón Sigurðsson.
Verður nefndin þar þangað til í dag
og ætlar hún að athuga þar ýmislegt
viðvíkjandi hátíðahöldunum 1930,
svo sem: ræðuhöld, söngflutning,
vegabætur og bygging húsa,
400 refi hefir Refaræktunarfjelagið
að Svignaskarði í Borgarfirði.
Fastar bíiferðir eru nú frá Borg-
arnesi til Blönduóss í hvert sinn, sem
Suðurland kemur til Bbrgarness. Far-
ið kostar 35 kr. þessa leið.
Sannkallaðir brennumenn hafa
verið á ferli í Reykjavík á laugardags-
uóttina var. Kveiktu þeir, að áliti
slökkviliðsstjóra og yfirlögregluþjóns,
f tveim húsum við Laugaveginn sam-
tímis. En svo heppilega tókst til, að
vart varð við eldinn áður en hann
-gerði nokkurn skaða. Ekki mun háfa
hafst upp á þessum brennuvörgum
enn.
Kjötverðið. Pað var með lægra
móti í fyrrahaust eins og kunnugt er.
Búist er við, að það verði enn lágt í
haust, en þó ekki útilokað, að það
hækki eitthvað frá því sem þá var.
En fuilvíst mun það ekki vera.
Síldaraflinn, Hann hefir verið
mjög tregur síðustu viku, svo að það
eru aðeins fá skip, sem leggja upp
hjer við Eyjafjörð, sem bætt hafa við
afla sinn frá þvi að hann var síðast
talinn hjer í blaðinu á þriðjudaginn
var. En til glöggvunar og saman-
burðar, á afla skipanna eru þó talin
hjer öll skipin, eins þau, sem ekki
hafa bætt neinu við. Er þá aflinn
þessi: Sindri 3093 tunnur (var
skakt talinn síðast með 1633), Sjö-
stjarnan 1085, Lotti 387, Flóra 665,
Pingey 691, Sandve 758, Hjalieyrin
975, Helga 954, Hvítingur 932, Krist-
ján 1598, Líf 734, Bláhvalurinn 444,
Valur 795 (er hættur veiðum að
sögn), Vonin 462, Gerpir 980, And-
ey 727, Rán 1707, Bris 127 og Kol-
beinn ungi 267, Sum þessara skipa
hafa Iagt i bræðslu nokkrar tunnur
síðustu viku, Rán mest, um 200
tunnur.
Svört silkislæða
tapaðist í Bótinni á fimtudags-
kvöldið. Finnandi skili á at-
greiðslu Norðlings gegn fund-
arlaunum.
MUNDLOS-saumavjelar eru bestar.
Fást í verslun Norðurland.