Norðurland - 13.04.1978, Síða 1
NORÐURIAND
3. árgangur Fimmtudagur 13. apríl 1978 13. tölublað
Reitur til áskriftarmerkingar
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar
í Eiðsvallagötu 18, sími 96-21875
Akureyri.
Hvað
verður
gert
1. maí?
Ekkert ákveðið
en undirbúningur
hefst bráðlega
Nú fer óðum að líða að I. maí
- alþjóðlegum baráttudegi
verkalýðsstéttarinnar. Af því
tilefni sneri NORÐURLAND
sér til Jóns Helgasonar for-
manns Einingar ogspurði hann
hvort eitthvað væri farið að
huga að undirbúningi hátíðar-
halda 1. maí.
Jón sagði að svo væri ekki en
hafði þó von um að eitthvað
færi að gerast um helgina. Hann
sagði að síðan fulltrúaráð verka
lýðsfélaganna á Akureyri var
lagt niður fyrir allmörgum
árum hafi verið eilíf vandræði
með skipulagningu 1. maí. Þau
félög sem hér starfa eiga sér
engan fastan samstarfsgrund-
völl og því hefði gengið á ýmsu
með þátttöku félaganna. Hann
sagði að Eining hefði oft á
undanförnum árum haft frum-
kvæði um undirbúning og bjóst
við að svo yrði einnig nú.
Félagið hefði þó enn ekki til-
nefnt fulltrúa í I. maí-nefnd og
hann vissi ekki til þess að neitt
annað félag hefði gert það.
Vonandi taka félögin við sér
fyrr en síðar því ekki er mikill
Framhald á bls. 4.
Hunangsilmur
Annað kvöld, föstudagskvöld,
frumsýnir Leikfélag Akureyr-
ar enska leikritið Hunangsilm
eftir Shelagh Delaney og verð -
ur það fimmta frumsýning
vetrarins hjá félaginu. Leik-
stjóri er Jill Brooke Árnason
en Ieikendur eru Kristín Á.
Ólafsdóttir sem leikur ungu
stúlkuna Jo, Sigurveig Jóns-
dóttir sem leikur móður henn-
ar, Helen, Aðalsteinn Berg-
dal sem leikur Jimmie hör-
undsblakkan sjómann sem
gerir Jo barnshafandi, Þórir
Steingrímsson sem leikur Pet-
er, vin Helen, og Gestur E.
Jónasson sem leikur kynvillt-
an vin Jo. Leikmyndir eru
verk Hallmundar Kristinsson-
ar en Freygerður Magnúsdótt-
ir sá um búninga sem allir eru
samkvæmt tískunni annó
1958. Tónlistin er einnig af
þeirri árgerð og verður henni
komið á framfæri í nýjum
hljómflutningstækjum sem
Akureyrarbær hefur látiö
koma upp í Samkomuhúsinu.
Verða þau tekin í notkun á
þessari sýningu.
Á baksíðu greinir nánar frá
þessari sýningu í viðtali sem
blaðið átti við leikstjórann,
Jill Brooke Árnason.
Baráttusamkoma á
Breiðumýri
Eins og fram kom hér í NORÐ-
URLANDI á sínum tíma hugð-
ust herstöðvaandstæðingar í
Suður-Þingeyjarsýslu efna til
baráttusamkomu á Breiðumýri
30. mars sl., á árlegum baráttu-
degi herstövaandstæðinga. Þá
voru vegir flestir ófærir svo
fresta varð samkomunni.
Nú hefur verið ákveðið að
halda þessa samkomu annað
kvöld, föstudag, og hefst hún á
Breiðumýri kl. 21. Aðalræðu
kvöldsins flytur Vésteinn Óla-
son lektor og fyrrverandi for-
maður Samtaka herstöðvaand-
stæðinga. Einnig er von á Ása í
Bæ ogjafnvel fleiri skemmtileg-
um mönnum að sunnan. Hitinn
og þunginn af samkomunni
hvílir þó á herðum heimamanna
sem hafa tekið saman ýmis
dagskráratriði til fróðleiks og
skemmtunar með það til hlið-
sjónar að um baráttu er að
ræða.
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
L
Kosningastarfið
Svo sem flestum er kunnugl
eru tvöfaldar kosningar í
nártd, bæði til bœjar- og sveita
stjórna og til alþingis. Tilþess
að ná árangri íslíkum darrað-
ardansi þarf að starfa vel og
markvisst, enda er margvísleg-
um blekkingum beitt af Itálfu
andstœðinganna.
Alþýðubandalagið á Akur-
eyri hefur ákveðið að opna
skrifstofu í Eiðsvallagötu 18,
fundarsal, þar sem svarað
verður fyrirspurnum, veittar
upplýsingar um kjörskrá, tek -
ið á móti fjárframlögum, sem
jafnan hafa verið höfðinglega
afhendi innt af kjósendum og
stuðningsmönnum flokksins.
Akveðið hefur verið aðskrif
stofan verði opinfyrst um sinn
þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga frá kl. 13-19, og
laugardaga frá kl. 13-17.
hafið
Fólk er hvatl til að koma á
skrifstofuna rilskrafs og ráða-
gerða og til að leita upplýs-
inga um kjörskrá, utankjör-
staðakosningu og annað sem
að kosningunum lýtur. Einnig
skal bent á að sími skrifstof-
unnar verður fyrst um sinn sá
sami og NÓRÐURLANDS,
þe. 21875, en í nœsta blaði
verður birt símanúmer skrif-
stofunnar sjálfrar.
ÚtfLutningsbannið
Verða Vestfirðir
og Suðurnes með ?
Samstaðan að öðru leyti alger
Þessa dagana er útflutnings-
bannið sem Verkamannasam-
band íslands hvatti aðildarfélög
sín til að boða að koma til fram-
kvæmda þar sem félögin hafa
orðið við hvatningunni. Alls
hafa á þriðja tug félaga boðað
útskipunarbann og tekur það til
alls landsins nema Vestfjarða og
Suðurnesja.
Aðalástæða þess að félögin á
Vestfjörðum eru ekki með er sú
að Alþýðusamband Vestfjarða
gerði sérsamninga við atvinnu-
rekendur á sínu starfssvæði og
eru þeir samningar að einhverju
leyti frábrugðnir samningum
heildarsamtakanna. Héldu Vest
firðingar uppi samningavið-
ræðum við atvinnurekendum
þar til upp úr slitnaði nú í
vikunni og ætluðu þeir að taka
ákvörðun um þátttöku í að-
gerðum VMSÍ á fundi í gær-
kvöldi.
Verra er hins vegar að ráða í
hvað veldur tregðu Suðurnesja-
manna. Karl Steinar Guðnason
Varaformaður Verkamannasam
bands íslandserhelsturforystu-
maður verkalýðs á Suður-
nesjum og hefur hann látið hal'a
eftir sér að samþykki hans í
stjórn VMSÍ við útflutnings-
banninu hafi verið háð því að
almenn samstaða næðist um að-
gerðir allra aðildarfélaga ASÍ.
Telur hann nú hafa komið í ljós
að ekki sé vilji fyrir slíkri sam-
stöðu og að Verkamannasam-
bandinu einu sé ætlað að standa
í slagnum. Ekki er þó fullljóst
hvað Suðurnesjamenn gera því í
gærkvöldi ætluðu þeir að halda
lokafund um málið. Gæti því
svo farið að þeir yrðu með eftir
allt.
fhaldinu í landinu stendur
greinilega mikil ógn af þessum
aðgerðum verkalýðsins og hafa
tveir þingmenn haft eftirminni-
leg afskipti af deilunni.
Pétur Sigurðsson beitti fyrir
sig hlaupastrákum sínum í
stjórn Sjómannafélags Reykja-
víkur eina víginu sem hann á
eftir í verkalýðshreyfingunni
og lét þá samþykkja ályktun þar
sem þeir mótmæla harðlega
þeim sjálfsögðu ráðstöfunum
VMSÍ að biðja erlenda stéttar-
bræður sína að afgreiða ekki ís-
lensk fiskiskip meðan á útflutn-
ingsbanninu stendur. Stóð ekki
á Morgunblaðinu að breiða
þessa frétt út yfir útsíður sínar.
Þá sýndi Albert Guðmunds-
son af sér þann einstæða skiln-
ing á lýðræði að bera fram á al-
þingi tillögu um að svipta verka
lýðshreyfinguna verkfallsrétt-
inum og setja kjaramál hennar í
gerðardóm. Er langt síðan
málsvarar auðstéttarinnar hafa
haft kjark til að bera þennan
óskadraum sinn upp á alþingi.
í leiðara NORÐURLANDS
er að þessu sinni fjallað um að-
gerðir verkalýðshreyfingarinn-
ar. Sjá bls. 2.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Starfið framundan:
í Eiðsvallagötu 18:
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 17. apríl kl. 21.00.
Umræðuefni: Atvinnumál.
Allir félagar ABA eiga rétt til fundarsetu.
Félagsfundur
þriðjudaginn 18. apríl kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Skipulagsmál Akureyrar
Framsögumaður: Svanur Eiríksson arkitekt.
Fyrirspurnir og umræður.
3. Onnur mál.
Opið hús
sunnudaginn 23. apríl milli kl. 15 og 18.
Þá gefst félögum gott tækifæri til að skoða nýfullgerðan sal
félagsins og rabba saman yfir góðum kaffiveitingum sem verða
til sölu. Einnig má öúast við flutningi stuttrar dagskrár.
^ Olgeir Lútersson fjall- Pistillinn er að þessu
ar um eignarráð bænda sinni um ,,tunguna í tím
yfir jörðum sínum. Sjá ans straumi“ - Sjá bls. 5
bls. 2.
W? Margvíslegar eru próf-
kjörsraunir lýðræðis-
postulanna - Sjá bls. 6.