Norðurland


Norðurland - 13.04.1978, Síða 3

Norðurland - 13.04.1978, Síða 3
m Eiríhur Smith í Háhóli Um síðustu helgi opnaði Ei- ríkur Smithjistmálari sýningu á verkum sínum í Gallery Háhóli á Akureyri. Þar sýnir hann 28 olíumyndir og 10 vatnslitamyndir sem hann hefur málað á sl. tveimur árum. Eiríkur Smith er Akureyr- ingum að góðu kunnur. Hann hefur haldið Qölda einkasýn- inga, þá síðustu að Kjarvals- stöðum fyrir tveimur árum, og einnig tekið þátt í samsýning- um hér heima og erlendis. Þessa sýningu kveðst hann hafa gert sérstaklega með Akureyri og Gallery Háhól í huga. Sýning Eiríks stendur fram á sunnudagskvöld og er hún opin í kvöld og annað kvöld frá kl. 20-22 en á laugardag og sunnudag kl. 15-22. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. Frá „Tónlistardögum í maí“ í fyrra. Tónlistardagar í maí Dagana 12.-14. maí næstkom- andi halda Passíukórinn á Ak- ureyri, Lúðrasveit Akureyrar og Tónlistarfélag Akureyrar þriggja daga tónlistarhátíð í Iþróttaskemmunni á Akureyri. Hátíðin hefur hlotið nafnið TÓNLISTARDAGAR í MAÍ 1978. Þetta er í annað sinn sem haldnir eru Tónlistardagar með þessu sniði. Hugmyndina um tónlistar- hátíð af þessu tagi má meðal annars rekja til árlegra vor- tónleika Passíukórsins á Akur- eyri. Þar hefur kórinn flutt kirkjuleg tónverk og mun vera eini kórinn utan Reykjavíkur sem reglulega hefur flutt slík verk. í Reykjavík hafa Pólýfón- kórinn og Fílharmóníukórinn einkum gert skil þessu sviði tónlistar. Forgöngumenn Passíukórs- ins létu sér koma til hugar að í tengslum við vortónleikana mætti koma á frekara tónleika- haldi. Leiddi það til þess að í samvinnu við Tónlistarfélag Akureyrar var efnt til Tón- listardaga í maí 1977. Það var þriggja daga hátíð sem hófst með einsöngvaratónleikum. Því næst voru tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands, sem ekki hafði komið til Akureyrar um árabil. Hátíðinni lauk með tónleikum Passíukórsins ogvar þar flutt óratórían Messías eftir G.F. Handel. Þetta var 1 fyrsta sinn - og hið eina til þessa -sem þetta stórvirki tónlistarinnar var flutt í fullri lengd hér á landi. Aðsókn að öllum tónleik- unum var afar góð og undir- tektir með slíkum ágætum að ákveðið var að freista þess að gera Tónlistardaga að reglu- bundnum árlegum viðburði. 1 þetta sinn hefur Lúðrasveit Akureyrar bæst í hóp aðstand- enda Tónlistardaga og auk þess munu félagar úr öllum söng- kórum á Akureyri taka þátt í flutningi eins verkanna á Tón- listardögum nú. Nánar verður greint frá til- högun og dagskrá tónlistar- daganna síðar hér í blaðinu. Söngsveit Hlíðarbæjar skemmtir í Hlíðarbœ á laugardag Á laugardaginn kemur, þann 15. aprfl, heldur Söngsveit Hlíðarbæjar söngskemmtun og fer hún að sjálfsögðu fram í félagsheimilinu Hlíðarbæ. Stjórnandi sveitarinnar er Sig- urður Demetz Fransson en undirleikarar eru Thomas Jack man á píanó og Leó Torfason og Jóhann Möller sem leika á gítara. Á efnisskrá skemmtunarinn- ar eru ýmis lög innlend og erlend, þám. þjóðlög, negra- sálmar og lög eftir þá Emil Thoroddsen og Pál ísólfsson. Söngsveit þessi er ættuð úr Glæsibæjarhreppi og eiga allir félagar hans ættir að rekja þangað þótt sumir séu fluttir inn til Akureyrar. Var sveitin stofnuð fyrir þremur árum með það markmið í huga að efla tón- listarlíf í hreppnum og þar með almennt félagslíf. Er jiað mál Framhald á bls. 4 Gerist áskrifendur [ að NORDURLANDI { Það borgar sig því blaðið fæst ekkert alltof víða í lausasölu. Áskriftargjaldið er nú kr. 1.500 £ fyrir hálft árið (rúmlega 20 tölublöð). Fyllið út reitinn hér að neðan og sendið hann til NORÐ- URLANDS, Box 492, 602 Akureyri. Nafn ... Póstfang Einnig er hægt að hringja í síma 96-21875 og biðja um áskrift að blaðinu. VORSALA Vorsala á skíðavörum 10.-15. apríl. 10-40% afsláttur. Skíði, skór, fatnaður, stafir. Nú er rétti tíminn til að gera góð kaup. SPORTHÚSIÐ HF. Söngskemmtun Söngsveit Hlíðarbæjar heldur söngskemmtun í Hlíðarbæ laugardaginn 1 5. apríl kl. 21. Fjölbreytt efnisskrá. Stjórnandi: Sigurður D. Fransson. Undirleikarar: Thomas Jackman, píanó, Leó Torfason, gítar og Jóhann Möller, gítar. Söngsveit Hlíðarbæjar. ^\kureyringar, NorðlendingaT?® Nýjar vörur daglega. Verslið ódýrt. Verslið á vörumarkaðsverði. 12-14% afsláttur. NÝ KOSTABOÐ VIKULEGA. Leyfit. verð Okkar verð I Suðusúkkulaði 295 250 Bl. ávextir, heildós 763 490 Serla W.C. 2 rúllur 168 140 Kaffi 2340 2100 Ölgerðarefni, 6 nýjar tegundir 10% afsláttur þessa viku. Ferskir ávextir í glæsilegu úrvali Plómur, perur, grape, vínber, 2 tegundir, appelsínur, 2 teg., epli, 3 teg. melónur sítrónur, kókoshnetur, ananas. Grænmeti: Laukur, hvítkál, gulrófur, gulrætur, salat, paprika, gúrkur og tómatar. SENDUM HEIM. Vörumarkaður, Skipagötu 6 Sími 21889 - 11094 NORÐURLAND- 3

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.