Norðurland


Norðurland - 19.04.1978, Qupperneq 1

Norðurland - 19.04.1978, Qupperneq 1
NORÐURIAND 3. árgangur Miðvikudagur 19. apríl 1978 14. tbl. Reitur til áskriftarmerkingar Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar í Eiðsvallagötu 18, sími 96-21875 Ólafsfjörður: Listi vinstri manna birtur Vinstrimenn í Ólafsfirði hafa nú birt framboðslista sinn til bæj- arstjórnarkosninga og er hann þannig skipaður: 1. Ármann Þórðarson útibús- stjóri. 2. Björn Þór Ólafsson kennari 3. Sigurður Jóhannsson hús- vörður. 4. Gunnar Jóhannsson bóndi. 5. Stefán B. Ólafsson múrara- meistari. 6. Bragi Halldórsson verka- maður. 7. Ríkharður Sigurðsson verkamaður. 8. Guðbjörn Arngrímsson verkamaður. 9. Sumarrós Helgadóttir hús- móðir. 10. Gísli Friðfinnsson sjó- maður. 11. Jónína Óskarsdóttir starfs- maður Einingar. 12. Sveinn Jóhannsson versl- unarmaður. 13. Ásgrímur Gunnarsson verkamaður. 14. Björn Stefánsson fyrrver- andi skólastjóri. Þess má geta að í kosningun- um árið 1974 felldu vinstrimenn stjórn fhaldsins á málefnum bæjarins eftir 29 ára valdasetu þess. Rauðinúpur á strandstað. Raufarhöfn - Ég get hoppað upp á húsþak ef ég vil, sagði þessl ungi helra- maður sem var að róla sér á leik vellinum Iðavelli þegar blaða- maður leit þar við í leit að efni í sumarmynd. Hann var boru- brattur í vorsólinni þessi Eyrarpolli og eflaust hefur hann viljað segja við lesendur blaðsins Gleðilegt sumar! MIKIÐ AFALL Rauðinúpur frá veiðum í þrjá mánuði Raufarhöfn 18/4 - Togarinn Rauðinúpur landaði hér síðast 180 tonnum og er það ein af hans bestu veiðiferðum. Mið- vikudaginn 12. apríl lagði hann af stað snemma morguns í blíð- skaparveðri í næstu veiðiför, en er hann var rétt í hafnarmynn- inu bilaði, að því talið er, ljósa- vél skipsins og voru öll stjórn- tæki þess óvirk. Skipti engum togum að skipið rak upp í fjöru rétt við mynni Deildarár án þess að skipverjar gætu nokkuð að gert. Togarinn Sléttbakur frá Akureyri kom á strandstað um tvöleytið um daginn og gerði hann tilraun til að draga Rauðanúp á flot á flóðinu kl. hálfþrjú en sú tilraun mistókst. Varðskip var komið á vettvang fyrir næsta flóð og tókst þá báðum skipunum að ná Rauða- núpi á flot. Skipið er mikið skemmt, botninn dældaður og rifinn á amk. þremur stöðum. Dráttar- báturinn Goðinn dró Rauða- núp til Reykjavíkur en þar verður skorið úr því hvert á að senda togarann til viðgerðar en vafamál er hvort hægt verður að gera við hann hérlendis. Þetta er gífurlegt áfall fyrir Raufarhafnarbúa þar sem tog- arinn aflar hráefnis fyrir stærsta atvinnufyrirtækið hér. Má þar nefna að frá áramótum hefur hann landað hér rúmlega 800 tonnum af fiski til vinnslu í frystihúsinu og landar hér að meðaltali 90% þess afla sem kemur til vinnslu þar. Nú vinna uþb. 80 manns hjá Jökli hf. sem rekur bæði togar- ann og frystihúsið. Við þessu fólki blasir nú atvinnuleysi ef ekki rætist úr. Þýðing þessa fyrirtækis fyrir atvinnulíf bæjar ins sést á því að þorpsbúar eru um 500 talsins þannig að nærri lætur að þriðji hver verkfær maður vinni hjá Jökli. Ekki hefur endanlega verið tekin ákvörðun um hvað gera skal meðan togarinn er í viðgerð en hreppsnefnd Raufarhafnar ásamt stjórn Jökuls hf. hafa til athugunar að fá annað hvort leigt skip eða fá togara frá öðrum stöðum til að leggja upp hér. Líney. Mannleg mistök ollu óháppinu á Isafirði þegar flugvél frá Flugfé- lagi Norðurlands magalenti Á laugardaginn hlekktist einni af vélum Flugfélags Norður- lands á í lendingu á Isafjarðar- flugvelli er hún magalenti á vellinum. Vélin er fimm sæta af gerðinni Piper Aztec. Flugmað- urinn var einn í vélinni og sak- aði hann ekki. Sigurður Aðalsteinsson fram kvæmdastjóri Flugfélags Norð- urlands sagði í viðtali við blaðið í gær að komið væri í ljós hvað hefði valdið óhappinu. Var það sú yfirsjón flugmannsins að gleyma að setja niður hjólin. - Það má segja að aðstæður hafi verið nokkuð óeðlilegar, sagði Sigurður. Flugmaðurinn var búinn að taka lokastefnu inn á flugbrautina og ætlaði að lenda inn fjörðinn þegar flug- turninn kallaði í hann og spurði hvort hann vildi ekki heldur fara inn fyrir og lenda úr gagn- stæðri átt. Það var logn og skipti því engu hvorum megin lent var en aurbleyta var á vell- inum, einkum þar sem brautin veit út í fjörðinn, svo flugstjórn- armenn töldu þægilegra að lenda hinum megin. Þegar flugturninn kallaði var flugmaðurinn kominn með höndina á handfangið ogætlaði að setja niður hjólin en færði hana burtu til að taka talstöð- ina. Hann fór svo að ráðum flugstjórnarmanna og flaug inn fyrir og svo virðist sem hann hafi talið sig vera búmn að setja niður hjólin. Hann flaug inn yfir brautina af nokkrum krafti og því fór aðvörunarbjalla við hjólabúnaðinn ekki í gang fyrr en of seint. Hún fer ekki í gang fyrr en dregið er úr hraðanum. - Er vélin mikið skemmd? - Nei, hún er eins lítið skemmd og hægt er að hugsa sér. Vélin sjálf var öll á lofti þannig að vængir, skrokkur og stél eru með öllu óskemmd. Hins vegar eru skrúfublöðin ónýt en þótt mótorarnir hafi orðið fyrir nokkru höggi virðast þeir ekki hafa skemmst. - Hvað tekur viðgerð langan tíma? - Ætli hún taki ekki svona þrjár vikur, við eigum ekki alla varahluti sem vantar. - Kemur þetta óhapp ekki niður á starfsemi félagsins? - Það kemur ekki beinlínis niður á fluginu. Þessi vél hefur einkum verið notuð í sjúkraflug og áætlunarflug á minnstu stað- ina. Þetta óhapp hefur þær af- leiðingar að við verðum að nota stærri vélarnar í þessi flug og það er að sjálfsögðu óhagkvæm ara, sagði Sigurður að lokum. Flugfélag Norðurlands á auk vélarinnar sem hlekktist á eina níu sæta vél og eina 19 sæta, en í júní á félagið von á nýrri vél sem tekur nítján farþega. OPIÐ HÖS í Eiðsvallagötu 18 sunnudaginn 23. apríl milli kl. 15 og 18. Þá gefst félögum gott tækifæri til aö skoða nýfullgerðan sal félagsins og rabba saman yfir góðum kaff iveitingum sem verða til sölu. Einnig má bóast við flutningi stuttrar dagskrár. ABA Stefnuyfirlýsing f bæjarmálum birtist í dag og næstu blöðum Að undanförnu hefur bœjar- málaráð Alþýðubandalags- ins á Akureyri unnið að mótun stefnuyfirlýsingar fokksins fyrir bæjarstjórnar kosningar hér í bœ. íhenni er fjallað um hin ýmsu starfs- svið bœjarstjórnar og tíund- uð stefna flokksins i hverju máli fyrir sig. NORÐURLAND mun birta stefnuyflrlýsinguna i þessu blaði ogþeim nœstu og verður fjallað um 1-2 mála- flokka i hverju blaði. ídager fyrsti hlutinn birtur ogerþar Jjallað um félagsmál og jafn- réttismál. Sjá bla. 3 Soffla Guðmundsdóttir Pistillinn fjallar um fram- ■Jf Fjölsóttur baráttufundur á skrifar leikdóm um Hun- boðslista allra stétta á Ak- Breiðumýri - Sjá frásögn á angsilm - Sjá opnu ureyri - Sjá bls. 7 baksíðu

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.