Norðurland - 19.04.1978, Page 8
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
í NORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Síminn er 2-18-75 -
Miðvikudagur 19. apríl 1978
li?[l]i<»H]«Wi?li
AUGLÝSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
r
Fjölsótt baráttusamkoma
herstöðvaandstæðinga í S.-Þing.
á Breiðumýri í Reykjadal
Á föstudaginn var efndu her- maður kvöldsins en komst
stöðvaandstæðingar í Suður-
Þingeyjarsýslu til baráttusam-
komu á Breiðumýri í Reykja-
dal. Var samkoman fjölsótt,
nær því húsfyllir, og tókst hið
besta. Létu Þingeyingar það
ekkert á sig fá þótt boðaða
ræðumenn og skemmtikrafta
að sunnan vantaði vegna
ófærðar og samgönguleysis.
Fundarstjóri var Sigurður
Rúnar Ragnarsson og setti
hann fund en gaf að því loknu
Tryggva Stefánssyni bónda á
Hallgeirsstöðum í Fnjóskadal
orðið. Tryggvi las upp ræðu
nafna síns Gíslasonar skóla-
meistara sem hann flutti á
samkomu herstöðvaandstæð-
inga í Háskólabíói 30. mars sl.
Var gripið til þess ráðs í fjar-
| veru Vésteins Olasonar lektors
j sem átti að vera aðalræðu-
L_____________________________
ekki. Einnig las Tryggvi upp
ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum,
Jakobínu Sigurðardóttur og
Guðmund Böðvarsson.
Að upplestri Tryggva lokn-
um tróð upp hópur sem söng
vísur um VL-inga eftir Þórarin
Eldjárn en jafnframt var
brugðið upp skopmyndum af
þeim sömu herrum. Starri í
Garði las upp bréf sem Þór-
bergur skrifaði eitt sinn vini
sínum vestur-íslenskum. Þá
var samlestur á kafla úr
Dægurvísu eftir Jakobínu Sig-
urðardóttur þar sem greinir
frá viðbrögðum fólks við
málaleitan manns sem er að
safna undirskriftum gegn her
í landi.
Einar Kristjánsson rithöf-
undur flutti gamanmál en
síðan tóku þeir Einar og
Samkomuhúsið á Breiðumýri.
Garðar í Lautum nokkur lög á
fiðlu og harmonikku. Þá las
Böðvar Jónsson á Gautlönd-
um ævintýri eftir Jónas Hall-
grímsson sem nefnist Stúlkan í
turninum. Loks var almennur
fjöldasöngur.
í lok fundarins var borin
upp ályktun og var hún sam-
þykkt einum rómi. Verður
hún birt í næsta tölublaði
NORÐURLANDS ásamt
myndum frá samkomunni á
Breiðumýri.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
HÚNAVAKA
f dag, miðvikudaginn 19. apríl,
hefst Húnavaka og fer hún fram
í félagsheimilinu á Blönduósi.
Stendur vakan fram á mánu-
dagskvöld og verður dansað á
hverju kvöldi við undirleik
hljómsveitarinnar Alfa beta.
Húnavaka hefst kl. 20.30 í
kvöld með Húsbændavöku Ung
mennasambands Austur-Hún-
vetninga. Meðal efnis á henni
verður erindi sem Friðfinnur
Ólafsson forstjóri Háskólabíós
flytur, söngur, leikþáttur, lúðra
blástur, hagyrðingaþáttur, eftir
hermur ofl.
Á morgun, sumardaginn
fyrsta, hefst Húnavakan kl. 14
með sumarskemmtun barna-
skólans á Blönduósi en kl. 16
verður opnuð sýning á málverk-
um Bryndísar Þórarinsdóttur
í Þórsmörk á efri hæð félags-
heimilisins. Einnig verður kynn
ing á verkum Magnúsar Ingólfs
sonar sem málar platta og
skálar með norskri munstur-
gerð. Sýning Bryndísar verður
opin fram á sunnudag kl. 14-22
daglega en á fimmtudag verður
aðgangur að henni ókeypis. Kl.
17 á sumardaginn fyrsta verður
sýnd músíkmyndin ABBA en
kl. 21 frumsýnir Leikfélag
Blönduóss bandaríska gaman-
leikinn Yfirmáta, ofurheitt eftir
Murray Schisgal. Leikstjóri er
Haukur J. Gunnarsson en leik-
endur Jóhanna Ágústsdóttir,
Sturla Þórðarson og Þórhallur
Kórsöngur að Laugum
íþróttahúsið
reyndist vel
Hinn glæsilegi salur í íþrótta-
húsinu að Laugum hefur verið
mikið notaður í vetur til alls-
konar íþróttakeppni milli skóla
hér norðanlands. Og úrslita-
keppni í landsmóti barnaskóla
(grunnskóla) og framhalds-
skóla í blaki fór þar fram og
stóð í tvo daga.
En líklega hefur salurinn þó
fengið vígslu sína sem alhliða
samkomusalur þann 9. apríl
þegar Kirkjukórasamband
Suður-Þingeyjarsýslu hafði þar
söngmót til að minnast 70 ára
afmælis Páls H. Jónssonar fyrr-
verandi söngkennara að Laug-
um en það var 5. apríl sl.
Páll er alþekktur fyrir rit-
störf en þó fyrst og fremst fyrir
störf að söngmálum í sveit sinni,
Reykjadal, og héraðinu öllu og
þarf þar ekki mörg orð um. Auk
þess er hann landsþekktur sem
tónskáld.
Það var því mjög við hæfi að
Kirkjukórasambandið hélt
þetta söngmót til að heiðra Pál
og votta honum þakkir fyrir
langt og gifturíkt starf að söng-
málum í héraðinu.
Þetta söngmót fór fram með
glæsibrag. Þarna komu fram
átta kórar, þar af einn samein-
aður úr tveimur sóknakórum
svo raunar voru þarna kórar úr
níu sóknum. Söng hver kór þrjú
lög og síðan allir kórarnir sam-
an þrjú lög. Söngnum lauk með
því að samkórinn söng þjóð-
sönginn undir stjórn séra Frið-
riks A. Friðrikssonar.
Hér verður engin tilraun gerð
til að dæma um frammistöðu
einstakra kóra eða sameinaða
kórsins. En heildaráhrifin urðu
þau að manni fannst að maður
hefði verið við hátíð sem lyfti
huganum og snart mann svo að
seint fyrnist.
Og það gleðilega kom í ljós að
íþróttasalurinn reyndist frábær
söngsalur svo leitun mun að
öðrum betri en það höfðu menn
óttast að ekki yrði þar sem hann
er teiknaður sem íþróttasalur en
ekki sönghöll.
Nú hefur salurinn staðist
prófið sem frábær söngsalur.
Gaman væri að heyra Sinfóníu-
hljómsveit íslands leika þar.
Vonandi fer hún ekki framhjá
næst þegar hún á leið um.
Glúmur.
Jósepsson. Fjallar leikurinn á
gamansaman hátt um hjóna-
bandið, ástina og kynlífið í nú-
tíma þjóðfélagi.
Föstudaginn 21. apríl verður
kvikmyndin King Kongsýnd kl.
17 en kl. 21 verður söng-
skemmtun. Þarskemmtir karla-
kórinn Vökumenn með söng,
leikþætti ofl.
Laugardaginn 22. apríl verð-
ur önnur sýning á Yfirmáta,
ofurheitt kl. 17 en kl. 20 verður
sýnd kvikmyndin Logandi víti.
Leikfélag Akureyrar leggur
svo undir sig sunnudaginn. Þá
verður Qölskylduleikritið
Galdraland eftir Baldur Georgs
sýnt um daginn og einnig kemur
brúðan Konni fram. Kl. 20.30
verður svo sýning á enska leik-
ritinu Alfa beta eftir E. A.
Whitehead en leikendur í því
eru Erlingur Gíslason og Sigur-
veig Jónsdóttir.
Kl. 20 á mánudagskvöld
verður þriðja sýning á Yfirmáta
ofurheitt en kl. 21.30 verður
unglingadansleikur. Þar verða
veitt verðlaun í skólakeppni
USAH. Og þar með lýkur
Húnavöku.
Skógrœkt í 100 ár
Um næstu helgi efnir Skóg-
ræktarfélag Eyjafjarðar til sýn-
ingar í Dynheimum á Akureyri.
Er það veggspjaldasýning sem
sýnir í máli og myndum þróun
skógræktar á íslandi fram til
þessa dags.
Sýning þessi er gerð fyrir
atbeina Skógræktarfélags ís-
lands og var hún sett upp í Nor-
ræna húsinu dagana 6.-9. þessa
mánaðar. Sýnir hún þróun
skógræktar hér á landi sl. 100 ár
eða svo en nú er uþb. öld liðin
frá því fyrst varð vart viðleitni
til að klæða landið skógi á ný.
Auk þessarar sýningar er
fyrirhugað að sýna litskyggnur
frá skógrækt í Eyjafirði og gefst
mönnum jafnvel kostur á að
bera saman ástandið fyrr og nú
og meta árangur skógræktar-
starfsins.
Við opnun sýningarinnar kl.
15.30 á laugardag mun Sig-
urður Blöndal skógræktarstjóri
flytja erindi. Sýningin verður
opin til kl. 22 á laugardag og á
sunnudag kl. 14-22.
Frá kösninga- í
skrifstofunni |
Nú liggur frammi á skrifstofunni í Eiðsvallagötu 18 |
kjörskrá Akureyrarkaupstaðar vegna þeirra kosn- j
inga sem framundan eru. Það er mikilvægt að þeir |
sem eru í vafa um hvort þeir eru á kjörskrá hafi sam- J
band við skrifstofuna hið allra fyrsta þar sem kæru- j
frestur vegna bæjarstjórnarkosninganna rennur út J
þann 6. maí næstkomandi.
Kosningasjóður hefur verið stotnaður og hafa ■
þegar borist nokkur framlög í hann. Þeim sem áhuga S
hafa á að styrkja sjóð þennan er bent á að snúa sértil j
skrifstofúnnar eða leggja beint inn á ávísanareikning i
sjóðsins nr. 8979-4 í Búnaðarbanka íslands á J
Akureyri.
Skrifstofan mun veita móttöku árgjöldum til j
Alþýðubandalagsfélags Akureyrar og er félagsfólk j
eindregið hvatt til þess að gera hreint fyrir sínum J
dyrum í þeim efnum. Oft var þörf en nú er nauðsyn. j
Kosningaskrifstofan er opin fyrst um sinn alla þriðju- j
daga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 13-19 og laugar- j
daga frá kl. 13-17. SfM|NN ER: 2-17-04. j
Græn-
jaxlar
sýndir á Akur-
eyri í nœstu
viku
Menntaskólanemendur á
.Akureyri geta ekki kvart-
að undan skort á gesta-
komum um þessar mundir.
, f síðustu viku kom í heim-
sókn til þeirra 45 manna
hópur ísfirskra mennskæl-
inga. Var efnt til ýmissa
íþróttakappleikja og ís-
firðingarnir sýndu leik-
þætti eftir Arabal.
Og á mánudaginn er von
á níu manna flokki úr
Reykjavík. Þar eru á ferð
Spilverk þjóðanna ásamt
með 5 leikurum sem munu
flytja akureyrsku skóla-
fólki leiksýninguna Græn-
jaxla eftir Pétur Gunnars-
son. Hópurinn hefur farið
með þessa sýningu í skóla á
Reykjavíkursvæðinu og
einnig sýnt hana að Kjar-
valsstöðum við góðar undir
tektir.
Hópurinn kemur hingað
á vegum Hugins og verða
sex sýningar í Samkomu-
húsi bæjarins á mánudag,
þriðjudag og miðvikudag,
tvær sýningar á dag. Sýn-
ingar þessar eru fyrst og
fremst miðaðar við nem-
endur skólanna og munu
leikendur fara í skólana og
auglýsa sýningarnar. Öll-
um almenningi er þó vel-
komið að bregða sér í leik-
húsið og sjá Grænjaxla.
Kirkja
eða
slökkvi-
stöð?
í ferðablaði Þjóðviljans
sem fylgdi með síðasta
sunnudag er birt þýðing á
ferðaminningum danska
ferðalangsins Klaus Smed-
mans sem ferðaðist um
fsland í fyrrasumar. Hon-
um er tíðrætt um íslenska
byggingalist og er frekar
þungorður um hana. Með-
al annars gefur hann Há-
skólanum og Þjóðminja-
safninu þá eiiikunn að
þessar byggingar minni
helst á „hin hræðilegu
minnismerki Stalínism-
ans“.
Þessum ferðaminning-
um Smedmans lýkur á
stuttri lýsingu á Akureyr-
arkirkju og hljóðar hún
svona:
„f miðbænum, niðri við
höfnina, er kirkjan mjög
áberandi. Hún liggur hátt í
hlíðum bæjarins, sem eru
mjög brattar og enda í
hásléttu. Næstum frá höfn-
inni liggja miklar tröppur
að kirkjunni. Tröppurnar
eru svo margar, að fslend-
ingar segja: „Þegar þú ert
kominn upp allar þessar
tröppur, ertu kominn hálfa
leið til himna.“ Kirkjan á
Akureyri hlýtur að vera
eftir sama arkitekt sem
teiknaði Háskóiann og
Þjóðminjasafnið um 1940.
Persónulega finnst mér hún
ijót. Hún líkist meira
slökkvistöð.“