Norðurland


Norðurland - 07.12.1978, Blaðsíða 2

Norðurland - 07.12.1978, Blaðsíða 2
Pétur Gunnarsson ÉG UM MlGFRÁMÉRTIL MÍN í skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og nýir farþegar slást í hópinn. [ miöju atburðarásarinnar stendur Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiósins — búinn aö slíta barnsskónum án þess að passa í fullorðins- skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Þetta er sjáifstætt framhald af hinni frægu metsölubók Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út i þremur út- gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður en það verður um seinan. ÉG UM MIG FRÁMÉRTIL MÍN PÉTUR GUNNARSSON Bræóraborgarstíg 16 Sími 12923-19156 Ólafur Gunnarsson AflLLJÓN PRÓSENT AfENN Engilbert Armannsson er stórkaupmaður, peningafursti og milljón prósent maður með dollaramerki í augunum og uppá- tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and- stæða hans og á milli þeirra stendur Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að verða milljón prósent, en hann langar Líka til að verða skáld. Milljón prósent menn er þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi peningamannsins á gráglettinn hátt og af óbeislaðri gamansemi. Þórarinn Eldjárn fJUHUtL Vctoœu „Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru spegill gerðurúrorðum .. Ó.M.J. / Vísir „Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft eins gaman af að lesa upphátt.. A.l. / Dagblaðió „Samtíminn með róttækri félagslegri út- tekt á fjölmiðlum er viðfangsefni skálds- ins, hió nýja vín sem hellt er á gamla belgi rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er gamansamur í besta lagi.. . Disneyrímur eru ortar af ærnum hagleik .. Á.B. / Þjóóviljinn ÞORARINN ELDJARN IÐUNN Sálumessa 77 SKAI.DSAGA l»( )RSTI:INN IDUNN ANIONSSC )N Þorsteinn Antonsson Sálumessa Þau áttu allt til alls — einbýlishús og nýjan bíl. Maður hennar rak eigió fyrir- tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann- vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er kannski hægt að krefjast einhvers meira af lífinu? Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík. Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta slys? Óhappatilviljun? Morð? Daginn eftir er handtekinn maður og hnepptur í gæslu- varðhald. — En er hann sá seki? Ská/dað í skörðin Ási í Bæ segir frá aflaklóm og andansmönnum Af sinni alkúnnu frásagnargleði og góð- látlegu kímni bregðurÁsi upp hverri svip- myndinni annarri fróðlegri og skemmti- legri af göldróttum forfeðrum, vinum, kunningjum, furðufuglum, skáldum og skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson, Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson, Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson, Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að ógleymdum öllum yndislegu konunum sem koma við sögu í þessari bráð- skemmtilegu og fróðlegu bók. Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af sannri virðingu fyrirefni hennarog anda. Thor Vilhjálmsson KJARVAL Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins mesta og einkennilegasta listamanns, sem uppi hefur verið hér á landi, í með- ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar. Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum hans og list á afar persónulegan hátt, gerir hvert smáatriði lifandi og sögulegt, þó aó stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft endranær í verkum hans. Að miklu leyti er bókin sprottin af nánum kynnum þessara manna, löngum samtölum þeirra og ferða- lögum saman. Bókina þrýða margar af hinum listrænu Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af Kjarval. BroddiJóhannesson O‘blitur Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les- anda, iðulega með því að hnita saman veigamikil sjónarmiö og dýrmæta reynslu eða minnileg atvik. Náin tengsl við náttúru landsins og líf þjóöarinnar, m.a. starfshætti hennar, birtast hér með af- brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram- lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum toga. Broddi Jóhannesson Qfclitur lóunn

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.