Norðurland - 07.12.1978, Blaðsíða 6
Skrifstofustarf
Laust er til umsóknar skrifstofustarf á bæjarskrif-
stofunum. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi til
að bera góða vélritunar- og réttritunarkunnáttu.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður í síma
21000.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist undirrituðum fyrir 12. desember næst-
komandi.
Akureyri, 4. desember 1978.
Bæjarritari.
Frá bæjarskrifstofunni
Þeir, sem reikninga eiga á Akureyrarkaupstað, eru
vinsamlega beðnir að framvísa þeim á bæjarskrif-
stofuna fyrir 15. desember næstkomandi til þess að
tryggja sér greisðlu þeirra fyrir áramót og auðvelda
reikningsuppgjör.
Akureyri, 4. desember 1978.
Bæjarritari.
á allar stærðir bifreiða.
Þverbönd, tangir,
krókar o.m.fl.
Hagstæðasta verðið
í bænum
n
Silfurstálið
frá okkur
kannast allir við.
Fæst nú með gullskreytingu
Frá Sjúkrasamlagi
Akureyrar
Samkvæmt samningum fer læknaval fram í desem-
ber. Þeir samlagsmenn, sem óska að skipta um heim-
ilislækni snúi sér til afgreiðslunnar að Geislagötu 5
sem fyrst og hafi með sér samlagsskírteini sín. Hjón
eiga að hafa sama heimilislækni.
Sjúkrasamlag Akureyrar.
Heiðursborgarar á Húsavík
• - framhald af 3. síðu
alltaf hvern einasta sunnudag“
en hún getur ekki skilgreint af
hverju, - hún bara má til. Hún
verður að vera þátttakandi í
hræringum síns nánasta um-
hverfis, en skynjar ekkert út fyrir
það. Herdísi Birgisdóttur tekst á
sannfærandi hátt að túlka þessa
yfirþreyttu persónu, sem allt
veltur á og er greinilega burðarás
síns heimilis.
Michel er atvinnulaus ungur
og framagjarn maður, greinilega
fulltrúi hinna betur settu, geng-
ur í kvöldskóla og er augljóslega
hræddur við að hann glati því
sem hann þó hefur. Hann vill
friðsamleg mótmæli og hlýðni
við skipanir yfirvalda. Sum
viðbrögð persónunnar eiga mjög
skylt við þrælsóttaú en sumir
trúa á vonina þrátt fyrir endalaus
vonbrigði. Karl Hjartarson
þreytir hér frumraun sína á
leiksviði í vanþakklátu hlutverki
og er hætt við að hann njóti ekki
sannmælis fyrir bragðið. Að mati
undirritaðs má Karí vel við una
og er greinilegt að hann hefur
notið handleiðslu vandvirks leik
stjóra.
Skinner, foreldralaus slæp-
ingi, sem aldrei hefur fengið
tækifæri, er fulltrúi hinna harð-
ari. Honum er þvert um geð að
þóknast valdhöfum, her eða
lögreglu, treystir engum nema
beim sem eru á sama báti.
Skinner gerir sér grein fyrir því
að harkan ein er það sem drottn-
ararnir skilja. Jón Fr. Benónýs-
son fer á kostum og sýnir á sér
bestu hliðarnar og er ég
fullkomega sáttur við persónu-
sköpun hans.
Samspil þessara þriggja per-
sóna er stórkostlegt, tiltæki
Skinners mörg hressileg og
bráðsniðug. Má þar nefna notk-
un viðhafnarbúninga embættis-
manna borgarinnar og þegar
hann útnefnir þau „heiðursborg
ara.“ Orðræður þeirra þriggja
spegla lífssýn fátæklingsins og
undirstrika að ekki eru allir
. jafnir heldur verður hver og einn
fórnarlamb uppruna og að-
stæðna.
Dr. Dodds, er fram kemur inn
í milli, virðist eiga að auðvelda
áhorfendum að setja það sem
fram fer á sviðinu í víðara
samhengi. Doktorinn fjallarekki
beint um þá atburði sem eru
aðalviðfangsefni leiksins heldur
miklu almennar. Bendir okkur
á hliðstæður og þröngvar okkur
til umhugsunar. Niðurstöður
sínar er visindamaðurinn látinn
flytja okkur af sviðinu, en að
minni hyggju hefði hún ekki
nálgast atburðarásina svo mikið
sem raun er á ef hún hefði
flutt mál sitt utan sviðs. Doktor-
inn situr jú meðal áhorfenda sem
við eigum ekki að venjast og
undirstrikar þannig tengsl henn-
ar við áhorfendur fremur en það
sem fram fer á sviðinu.
Hlutverk presta í kaþólskum
sið er okkur tiltölulega framandi.
Þannig er undirrituðum ekki
ljóst hvað höfundur meinar með
sálusorgaranum. Sálumessur
hæfa vafalaust hörmungarat-
burðum og þáttur slíkra í
örbirgðarsamfélagi hins ka-
þólska „menningarkima“ trú-
lega stór.Innskot þessarar per-
sónu fundust mér skemmtileg og
sérlega hvernig klerkurinn snýst
í síðara skiptið.
Spurningarnar sem verkið'
vekur hjá áhorfanda eru eigin-
lega tvær. I fyrsta lagi, - er
réttlætanlegt að drepa menn eða
ekki? I öðru lagi, - hver er réttur
fátæklingsins og hvernig verður
honum náð? Hlutverk dómarans
er að kanna „hvor byrjaði?”
Niðurstaðan kemur því á óvart,
þ.e. að her hennar hátignar hafi
skotið „heiðursborgarana“ í
sjálfsvörn. Líklega þykir engum
leikhúsgesta það trúverðug nið-
urstaða, ekkert benti til að
þremenningarnir hefðu verið
vopnuð, þó ekkert afsannaði það
svo óyggjandi væri. (Ástæða þess
að láta dómarann bera gullið
parruk er e.t.v. að undirstrika,
„að ekki er allt gull sem glóir.“)
Dómsrannsóknir, þar sem
fjallað er um réttmæti aðgerða
Auglýsing
frá Skipulagsnefnd Akureyrar
Sýning verður í Möðruvöllum, húsi Menntaskólans,
dagana 8. til 10. desember næstkomandi átillögum
arkítekta að miðbæjarskipulagi á Akureyri. Sýningin
er opin frá klukkan 16 til 22. Henni lýkur sunnudag
10. desember með borgarafundi, sem hefst klukkan
16. Akureyringareru hvattirtil aðsækjaþesasýningu
svo og borgarafundinn 10. desember, þarsem bæjar-
stjórn og skipulagsnefnd verða ásamt bæjarstjóra og
arkítektum.
Skipulagsnefnd Akureyrar.
Hús til sölu
Tilboð óskast í gamalt íbúðarhús á jörðinni Hamri í
Svarfaðardalshreppi. Réttur áskilinn ti! að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum skal skila til oddvita Svarfaðardalshrepps
fyrir ármót og gefur hann upplýsingar um húsið ef
óskaö er. Sími 61332.
Fæði óskast
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir að fá keypt
fæði fyrir einn mann næstu tvo mánuði. Látið vita í
síma 21000 f.h.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
hers og lögreglu gegn óbreytt-
um borgurum leiða undantekn-
ingarlítið til hliðstæðrar niður-
stöðu, og mega því kallast
skrípaleikur. Dómstólar ríkjandi
stéttar, hvarvetna í heiminum,
dæma aðgerðir hers eða lög-
reglu, sömu stéttar, gegn and-
ófsmönnum gildar, ella fengi
valdið skjótan endi.
Svo þetta með fátæktina og
misréttið. - Veit nokkur um
óeirðir eða borgarastyrjaldir, að
ekki sé deilt um skiptingu hinna
efnislegu gæða oft samfara mis-
munun vegna litarháttar og
trúarbragða.
Leikmynd Messíönu undir-
strikar andstæður skrifstofu
borgarstjóra og þeirra sem þar
eru inni. Silfur á veggjum, -
flottheit gegn fátækum. Búning-
ar hæfa einkar vel þeirri jiersónu
sköpun, sem framin er. I heild er
ramminn smekklegur og leggur
sitt af mörkum til að gæða
sýninguna lífi.
í sviðsetningu nýtir leikstjóri
hæð sviðsins með hjálp ljósa og
lætur dómarann, prestinn og
hershöfðingjann uppi að baki
stofu borgarstjóra, sem auðvitað
undirstrikar stöðu þeirra. Þann-
ig og því aðeins komast allir fyrir
á litla sviðinu.
Um frammistöðu einstakra
leikara skyldu áhorfendur dæma
en undirritaður efast um að þau
Jón Fr. og Herdís hafi nokkru
sinni gert betur. Bæði hafa
margsinnis leikið áður og eru að
líkindum mörgum minnisstæð
úr fyrri átakahlutverkum. Þór-
unn Pálsdóttir (Dodds) hefur
stundað leiklistarnám, en hún er
nýliði með L.H. Ingimundur
Jónsson (dómari), Kristján Jón-
asson (söngvari-prestur)), Atina
Jeppesen (fréttamaður), Sigurð-
ur Hallmarsson (þrjú vitni -
harmónikkuleikari) og Þorkell
Björnsson (Johnson-Hansbury
ofl.) hafa öll leikið oft áður og eru
laus vtö viðvaningsbrag. Jó-
hanna Ásmundsdóttir, Bene-
dikta Steingrímsdóttir og Jón
Aðalsteinsson eru ný andlit sem
bregður fyrir rétt í svip.
Sýningin er í heild frábært
afrek. Þótt efnið sé að sönnu
átakanlegt er sýningin skemmti-
leg, bæði textinn og uppfærslan.
Hér er ekki um „þunga“ sýn-
ingu að ræða, né heldur þrúg-
andi spennu. Þetta er ádeila, sem
höfðar til mín og þín og kemur
víða við. Það er undirstrikað að
við getum aldrei orðið „stikk-
frí“ eða firrt okkur ábyrgð á
vandamálum okkar samfélags né
annarra þjóða. Enginn er með
/ öllu saklaus og þannig er ekki
tekin afstaða með einum þó
hlýtur áhorfandinn að taka
afstöðu. Við getum hlegið í
leikhúsinu og tekið með okkur
umhugsunarefni heim.
Undirritaður hvetur alla sem
meta leikhús einhvers að sjá
þessa sýningu, hún er þess virði
og þeir sem að hafa unnið
verðskulda góða aðsókn. Að-
standendum sýningarinnar óska
ég til hamingju með ávöxt hins
mikla starfs og þakka fyrir góða
stund. 27. nóv. 1978,
Benedikt Sigurðarson.
NÝKOMIÐ:
• Flauelspils,
stærðir 2-12.
• Undirpils m/blúndum,
stærðir 2-12.
• Vestissett, - falauel -
stærðir 1-6.
Daglega eitthvað nýtt.
Verslunin
Ásbyrgi
6 - NORÐURLAND