Norðurland - 25.01.1979, Blaðsíða 1
NORÐURIAND
Verður
4. árgangur Fimmtudaginn 25. janúar 1979 2. tölublað
UMBYLTINGI
SKÓLABÆNUM?
„Ég heiti Busla og er rétt níu mánaða á þessari mynd. Það þarf ekki
að glápa svona á mig þó ég sé vel í hárum“. (Þessa mynd tók frétta-
ritari okkar í Hrísey, Guðjón Björnsson, en hann vinnur í
Einangrunarstöðinni í Hrísey.)
Ólafsfjörður:
• •
Ordeyða og snjóleysi
Ólafsfjörður 22/1. Það hefur
verið dauflegt atvinnu-
ástand hér undanfarið. Þó
hefur ástandið skánað held-
ur eftir að togararnir hófu
veiðar.
Smábátarnir hafa aflað með
eindæmum illa. Muna menn
ekki jafn ömurleg aflabrögð, -
aflinn farið niður í nokkra fiska.
Sæmilega gengur hjá iðnaðar-
mönnum, a.m.k. enn um sinn.
I gær var heilsugæslustöð-
in og elliheimilið opið almenn-
ingi til sýnis. Byggingin sem
kostar um 170 miljónir króna er
nú fokheld. Kvenfélög staðarins
gengust fyrir kaffisölu bygg-
ingarsjóði til styrktar. Anna hf.
gaf elliheimilinu 3 miljónir
króna og Tréver hf. 200 þús-
und. Er vonandi að þessar gjafír
verði öðrum hvati til frekari
stuðnings þess að óskadraumur
Olafsfírðinga rætist. Eftir heilsu-
gæslustöð og elliheimili hefur
verið beðið um árabil.
í sl. viku var lokið við að setja
upp skíðatogbrautina. Einn
hængur er í kjölfari þess gleði-
lega atburðar, - það vantar snjó.
Er eins farið um það mál og
ördeyðuna hjá smábátunum, -
menn muna ekki slíkt snjóleysi í
aðra tíð hér í Ólafsfirði.
- Björn Þór.
Slippstöðin:
Vinnuslys
Akureyri 23/1. Tveir ungir
menn voru hætt komnir við
vinnu sína í Slippstöðinni á
mánudag.
Mennirnir voru að pensla með
svonefndum ætisgrunni í botn-
tönkum skips í Slippstöðinni.
Þeim bar að vera með súrefnis-
grímur við þessa vinnu. Það eð
slöngurnar við súrefnisgrím-
urnar voru of stuttar og óhentugi
ar við vinnuna, munu mennirn-
ir hafa freistast til að taka
grímumar af sér. Afleiðingar þess
bráðræðis voru þær að þegar
verkstjóri kom að leita þeirra,
var annar meðvitundarlaus en
hinn með lítilli rænu. í tönkun-
um voru eitraðar gufur, svo þeir
sluppu við illan leik. Þeir voru
þegar fluttir á sjúkrahús en
fengu að fara heim á þriðjudag.
Verður ekki nógsamlega brýnt
fyrir verkafólki og fyrirtækjum
að gæta varkárni og öryggis við
vinnu af þessu tagi.
Meistaraskóli
Samþykkt hefur verið í bæjar-
stjórn Akureyrar að í bænum
skuli komið á fót meistara-
skóla með svipuðu sniði og nú er
við Iðnskólann í Reykjavík. Skal
til þessa ætlað fé á fjárhags-
áætlun nýbyrjaðs árs.
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar 23. janúar var lögð
fram greinargerð og FYRSU
tillögur framhaldsskóla-
nefndar bæjarins. Nefnd
þessi var skipuð í júlí sl. og
sitja í henni 5 menn, einn
fulltrúi hvers flokks. Þeir
eru: Tryggvi Gíslason F, for-
maður nefndarinnar,* Kristín
Á. Ólafsdóttir Ab, Ingólfur
Jónsson A, Margrét Rögn-
valdsdóttir S.F. og Sigurður
J. Sigurðsson S.
Verkefni nefndarinnar var að
fjalla um námsleiðir á fram-
haldsskólastigi á Akureyri, sam-
starf skóla og hugsanlega sam-
einíngu þeirra. Einnig starf-
rækslu sérskóla og rekstur.
Nefndin hóf störf með því að
kalla til sín forráðamenn skóla
bæjarins, og fulltrúa frá stétta-
félögum og atvinnurekendum.
Lýstu þejr viðhorfum sínum til
menntunarmála á Akureyri á
einum ellefu nefndarfundum.
Kynnisför suður á land var
þáttur í starfi nefndarinnar, en
þar voru skoðaðir fjölbrautar-
skólarnir í Breiðholti og á Suður
nesjum, Iðnskólinn í Reykja-
vík og Tækniskóli íslands. Eftir
þessa gagnasöfnun unnu nefnd-
armenn greinargerð þá og til-
lögur sem nú hafa litið dagsins
ljós.
Tillögur nefndarinnar hljóða
svo:
/
„Framhaldsskólanefnd 'Akur-
Nýtt pöntunarfélag
Opið hús
Alþýðubandalagið. Akureyri verður með „opið hús" í
Lárusarhúsi á sunnudaginn.
Þar verða til sýnis samsett myndverk eftir Helga Vilberg.
Menntaskólanemar leika bráðskemmtilegan þátt úr 1. des-
revíu sinni frá síðasta ári.
Að sjálfsögðu verða kaffiveitingar til sölu sem endranær.
Húsið opnað kl. 3.
Félagarl - Hittist og kætist í Lárusarhúsi á sunnudaginn, og
leyfið gestum ykkar að njóta góðs af.
Þórshöfn 22/1. Hér eru þrír
loðnutankar sem rúma 2700
tonn af loðnu. Áður hafði
komið í fréttum að tankarn-
ir væru dæmdir ónýtir.
Hvað sem þeim dómi líður, þá
hefur fyrirtækið Valfóður tekið
þá á leigu. Hingað kom danskt
skip með tæki í tankana og er
viðgerð við þá langt komin.
Loðna er flutt út sem fljót-
andi skepnufóður. Hugsa menn
hér gott til glóðarinnar, þegar
viðgerð við tankana lýkur, og
loðnuskip koma til að landa. Auk
atvinnunnar, sem ekki er of
mikil, sjá menn ágóðavon af þjón-
ustu við skipin og hafnargjöld-
um.
Gæftir hafa verið hér lélegar
og afli rýr. Einn bátur rær á línu,
aðrir á net.
Nýr húsvörður hefur verið
ráðinn hér við félagsheimilið.
Það er Már Oskarsson.
Leikfélag Þórshafnar æfir nú
gamanleikinn Svefnlausi brú-
guminn. Áætlað er að leikurinn
komist á fjalirnar fyrir áhorf-
endur í mars nk.
Nýlega hefur verið sett á
laggirnar nýtt pöntunarfélag.
Það heitir pöntunarfélagið Hlein
og eru stofnendur um tuttirgu
talsins. - Arnþór.
Kviknaði
í rusli
Raufarhöfn 23/1. Klukkan
rúmlega 9 á sunnudagskvöld
varð vart við eld í Grunn-
skólahúsinu. Hafði kviknað í
bréfarusli í kassa í bókasafni
skólans. Tónlistarkennarinn
okkar, Stephan Yates tókst með
snarræði að slökkva eldinn áður
en slökkviliðið kom á vettvang.
Þarna inni eru geymdar skóla-
bækur, pappír, fjölritunar-
spritt og fleira eldfimmt, - svo
það hefði getað farið illa. Auk
þess eru geymd þarna öll
kennslutæki skólans. Skemmd-
ir urðu mjög litlar. Eldsupp-
tök eru ókunn. - Líney.
Furðuteikn í austri
Eins og komið hefur fram
í öðrum fjölmiðlum þá
sáust ókennileg ljós fyrir
skemmstu í Kelduhverfi.
ekkert hefur frekar komið
fram um málið.
NORÐURLANDI barst
það til fregna, að tveir
menntaskólakennarar á Ak-
ureyri hefðu orðið varir við
nokkuð undarlegt, svo ekki sé
kveðið fastar að orði, á himn-
inum í austri. Það bar til
skömmu fyrir miðmunda
sunnudaginn annan í jóla-
föstu, að Erlingur Sigurðar-
son leit út um gluggann
heima hjá sér. Sá hann þá
hvar forkunnarmikið ljós
flögraði til á himninum aust-
anverðum. Ekki vill Erling-
ur Sigurðarson fortaka fyrir
það að ljósið hafi tekið á sig
lögun hlutar öðru hvoru.
Ekki varð hann magnþrota
við sýnina. Hélt Erlingur
uppi spurnum um fyrirburð-
inn hvar hann hitti fólk að
máli næstu daga á eftir. Mun
enginn annar hafa orðið var
við þetta einkennilega ljós í
bænum nema samkennari
Erlings, Sverrir Páll Erlends-
son. Hann sá eitthvað glampa
á austurhimni. Fannst
honum líkast því sem hér
væri um eitthvert framtíð-
arfarartæki að ræða. Sverri
varð ekki meira um en svo að
hann hlustaði á létta sinfon-
íu samdægurs! Þeir kollegar
kenna þjóðleg fræði við
Menntaskólann á Akureyri.
-óg.
eyrargerir að tillögu sinni að tveir
meginskólar verði á framhalds-
skólastigi á Akureyri og að áfanga
kerfi verði tekið upp við skólana
báða. Verði við annan skólann
starfrcekt kennsla á fjórum sviðum
hins samræmda framhaldsskóla:
almennu bóknámssviði, heil-
brigðissviði, uppeldissviði og við-
skiðtasviði. Við hinn skólann
verði starfrœkt hússtjómarsvið og
tceknisvið auk meistaraskóla og
frumgreinadeildar tcekniskóla".
Þessar tillögur eru rökstuddar
á ýmsan hátt í greinargerðinni.
Einnig hefur hún að geyma
úttekt á því námi sem nú er á
Akureyri og samanburð við það
námsframboð sem gert er ráð
fyrir í frumvarpi um framhalds-
skóla, sem nú liggur frammi á
Alþingi. Tillögur nefndarinnar
taka reyndar meira eða minna
mið af því frumvarpi.
í næsta blaði NORÐUR-
LANDS verður greinargerð
framhaldsskólanefndar kynnt
nánar, en hér er um slíkt stór-
mál að ræða, að ekki aðeins
Akureyringar, heldur einnig aðr
ir Norðlendingar hljóta að láta
sig miklu varða.
Á bæjarstjórnarfundinum virt
ust tillögumar fá heldur hlýjar
móttökur. Þeim var ásamt grein-
argerðinni vísað til bæjarmála-
ráðs, sem gert er að leita álits
skólamanna, fulltrúa úr atvinnu-
lífinu og oddvita nágranna-
byggða Akureyrar.
Helgi
í flokkirm
Helgi Ólafsson alþjóleg-
ur skákmeistari hefur
bæst í flokk þeirra sem
skrifa í blaðið. Helga
ætti að vera óþarft að
kynna, en hann hefur
sem skákmæringur getið
sér gott orð erlendis og
hér á landi. Hann varð
alþjóðlegur meistari sl.
ár og á áreiðanlega eftir
að verða stórmeistari
innan skamms. Undan-
farin ár hefur Helgi
töfrað skákheita hugi
lesenda Þjóðviljans með
taflskrifum sínum.
Hann mun skrifa stutta
skákþætti í NORÐUR-
LAND eftir því sem til-
efni gefst til á næstuhni.
Við bjóðum Helga
hjartanlega velkominn á
síður blaðsins.
* Leiðarinn á bls. 2 fjallar um
yfirstandandi andlitslyft-
ingu kapítalismans.
Leikrýni Oddu Margrétar
um Stalín Vésteins er á
blaðsíðu 2.
Wr Sverrir Páll fer ómyrkum
orðum um líf og dauða LA
á blaðsíðu 3.