Norðurland - 22.02.1979, Síða 4
Helgi
Ólafsson
Skákþrautin
Lausnin á Benkö-dæminu hefur
væntanlega ekki vafist fyrir
mönnum. í fyrra tilfellinu þegar
hvítur lék fyrsta leiknum var á
þessa leið:
1. Kcl Kb3
2. Dg8 mát.
í hinu tilfellinu þegar svartur
lék fyrst var lausnin þessi:
1. Kb5 (NB Þetta er leikur
svarts.)
1. ... Dxa4+
2. Kxa4 Rc3 mát.
Og þá er það þraut vikunnar:
Hvítur mátar í 2. leik.
Bréf til
blaðsins
Kæra NORÐURLAND.
Nú get ég ekki lengur orða
bundist. Mér finnst fylgja þessu
blaði einhver leiðinda órói. Er
ekki hægt að líta á hið fagra í líf-
inu og segja meira frá því. Við
erum líka vön því hér á Akur-
eyri, að allt sé rólegt hér og ekki
sé sífellt verið að gera því skóna
að eitthvað illt séásveimi. Enda
það ekki til staðar. Og eins og
ritstjóri Dags sagði einhvern
tíma að menningarlífið á Akur-
eyri er kyrrt og stillt eins og
Pollurinn. Þess vegna finst mér
ósmekklegt að skrifa í þessum
tón um leikhúsið okkar.
Til að vera ekki ósanngjörn
verð ég þó að segja að mannin-
um mínum finnst skákþátturinn
svosem ágætur, en mér finnst
ágætt að fá krossgátuna, þótt
hún sé oftast alltof erfið. Ann-
að í blaðinu er svo mengað nei-
kvæðri afstöðu og pólitík, sem
venjulegt fólk hefur engan
áhuga á, að ég barasta mátti til
með að láta álit mitt í ljós, þótt
ég sé ekki vön að skrifa í opin-
ber blöð.
Ein sem gat ekki lengur orða
bundist á Syðri Brekkunni
PS. Meðar ég man, mér finnst
virkilega áberandi hvað blaðið
heldur einhliða með Þór. (Son-
ur minn sem er í KA benti mér á
þetta og sagði að vinum hans
fyndist það þjóðþrifaverk að
gera eitthvað í málinu.)
Sama
Athuga-
semd
Ingólfur Árnason bæjarfulltrúi
hringdi vegna frásagnar af bæj-
arstjórnarfundi í síðasta Norð-
urlandi. Sagði hann sig hafa
sagt, að hann hefði „áhuga á
fleiri málaflokkum en dagvist-
armálum", en ekki eins og segir í
síðasta Norðurlandi „öðrum
málaflokkum en dagvistar'mál-
um“.
4 - NORÐURLAND
Alltaf
eitthvað nýtt
í VEFNAÐARVÖRUDEILD:
Úrval af kvenfatnaði
og snyrtivörum.
í HERRADEILD:
Glæsilegur skíðafatnaður.
Hagstæð verð.
í SPORTVÖRUDEILD:
Skíði, skíðaskór og
skíðabindingar.
Lítið inn og gerið góð kaup.
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400
Matargerðarfólk!
Nýir
SÉRRÉTTIR
Uppskriftir til matargerðar
fá.st í næstu búð.
KJÖRBÚÐIR^f^
\
AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR
ÚTBOÐ
Stjórn Dvalarheimilanna á Akureyri óskar eftir tilboð-
um í að byggja 12 raðhúsaíbúðir við Dvalarheimilið
Hlíð, Akureyri. Útboðsgögn verða afhent frá og með
23. febrúar 1979 á teiknistofu Húsameistara Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 5, 3. hæð, gegn skilatrygg-
ingu að upphæð kr. 50.000.
Tilboðin verða opnuð þann 9. mars 1979 á bæjarskrif-
stofunni, Geislagötu 9, kl. 14.00.
F. h. Stjórnar Dvalarheimilanna.
Teiknistofa Húsameistara Akureyrarbæjar.
TILKYNNING
frá félagi pípulagningamanna á Akureyri
Að gefnu tilefni viljum við eindregið vara við að rétt-
indalausir og ófaglærðir menn séu að vinna við pípu-
lagnir.
Stjórn félags pípulagningamanna.
RÐSEIMDING
TIL BÆNDA
TÍMANLEG PÖNTUN TRYGGIR TÍMANLEGA
AFGREIÐSLU.
VI3 viljum hvetja bændur, svo og aðra viðskiptamenn
ökkar, sem hyggja'á búvélakaup á komandi vori og
sumri, til að kanna nú þegar hugsanlega þörf sína og
koma pöntunum til okkar sem fyrst.
i MF
Massey Ferguson
2
HEYÞYRLUR
INTERNATIONAL
HARVESTER OG VINNUVÉLAR
LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ OKKUR
áður en þér feslið kaup annars slaðar.