Norðurland - 22.02.1979, Page 5
IÞROTTIR
Einstaklingsframtakið
Dugði skammt
Sportið gekk sinn vanagang um
helgina. Körfuknattleikslið
Þórs lék gegn Val á laugardag-
inn í Skemmunni.
Aldrei þessu vant fóru Þórs-
arar vel af stað og voru
grimmir bæði í vörn og sókn.
Þeir komust fljótlega í 10-2 stig
og leiddu fram í miðjan hálfleik-
inn. Þátóku hins vegar Valsarar
ógurlegan sprett og breyttu
stöðunni úr 21-25 í 39-25 sér í
vil. Þórsliðið lifnaði þá viðaftur
eftir slælegan kafla, þó þeim
tækist aldrei að brúa bilið
fullkomlega í leiknum.
í hálfleik höfðu Valsarar tíu
stiga forystu 53-43 stigum.
Áhorfendur lifðu þó enn í
voninni um sigur ekki síst vegna
þess hve Mark hafði verið
rjómagóður. Það sýndi sig í
þessum leik, að ekki dugir að
byggja lið upp á einum eða
tveimur afburðamönnum. Þau
lið eru farsælust sem hafa á að
skipa jafnsterkum leikmönnum
og hafa yfir að ráða mestu
breiddinni. Þessi leikur var ansi
líflegur á köflum og er efalaust
sá besti hjá Mark Christiansen í
vetur, og koma þó margir leikir
til álita. Hann gerði oft á
tíðum alveg ótrúlega fallega
hluti. Valsmenn létu aldrei
deigan síga í leiknum og upp-
skáru þrautseigju sína í sigri yfir
skörðóttum Þórsurum
Hjá Þór stóð Jón Indriðason
vel fyrir sínu að vanda, eins og
Mark. Enn fremur átti Eiríkur
Sigurðsson ágætan leik. Loka-
tölur urðu 101 stig Vals gegn 91
stigi Þórs.
Stig Þórs: Mark 41, Jón 18,
Eiríkur 12 og aðrir minna.
Stig Vals: Tim Dwyer 27,
Kristján Ágústsson 20, Ríkharð
ur Hrafnkelsson 16 og aðrir
minna.
Vissulega er þörf félags-
hyggju og samvinnu inn í raðir
Þórsara eigi að takast betur til.
Hátt skal reitt til hefndarhöggs. Alfreð Gíslason á lofti.
Frœkileg suðurferð
Leikmenn annarar deildarliðs
Þórs í handknattleik hafa átt
annríkt undanfarið. Um helgina
héldu þeir í suðurgöngu og þar
hélt baráttan áfram fyrir 1.
deildarsætinu.
Á laugardaginn Iék Þór gegn
Ármenningum. Eftir algeran
toppleik í fyrri hálfleik og geysi
harðan seinni hálfleik tókst
Þórsurum að kroppa í safnið
tvö kærkomin stig. Staðan í
hálfleik var 14-9 fyrir Þór, en
seinni hálfleikur var mun jafn-
ari og endaði með ágætum sigri
Þórs 23 mörk gegn 22.
Daginn eftir stóðu Þórsarar
aftur í ströngu. Þá varð Leiknir
fyrir barðinu á baráttuglöðum
Þórsurum. Þeir tóku leikinn
strax í upphafi í sínar hendur og
leyfðu Leiknismönnum aldrei
að komast upp með neitt
múður. Þeir gjörsigruðu sunn-
anmenn með 30 mörkum gegn
15. Þar með var glæstri sigur-
göngu sunnan heiða lokið að
sinni.
KA strákarnir
NÁÐU
JAFNTEFLI
Ég heflœrt.
stendur frammi fyrir þeim
vanda hvernig hjálpa megi nem-
andanum til þess að finna sína
eigin leið, koma fram með eigin
hugmyndir, ekki annarra. Nem-
andinn verður að gera sér ljóst,
að hann á umfram allt að vera
# Framhald af baksíðu.
hann sjálfur, en ekki eftirlíking
af einu eða neinu.
- Værirðu tilkippilegur að
koma aftur og leiðbeirta öðru
sinni?
- Ég er til í það. Mér hefur
flogið í hug, að gaman væri að
drífa upp með mér dálítinn hóp
svona 5-6 manns og flytja á tón-
leikum hér t.d. fjórhend píanó-
verk Schuberts, nú og fleira
mætti hugsa sér. Jú, ég vildi
gjarnan koma aftur, ég læri af
þessu sjálfur. q
Á miðvikudaginn í sl. viku fór
fram viðureign erkifjendanna
Þórs og KA um Akureyrartitil-
inn í handknattleik 1979. Þegar
þessi tvö lið etja kappi saman
þurfa menn ekki að óttast neina
lognmollu eða doða inn á
leikvellinum.
Þessi leikur bar það líka með
sér að bæði liðin höfðu einsett
sér að sanna yfirburði sína fyrir
lýðnum. Þrátt fyrir allt var
óvenju lítið um stimpingar og
pústra leikmanna á millum ef
miðað er við fyrri orustur
liðanna. KA-menn voru heldur
skárri í byrjun, - enda fór
Þórsliðið heldur seint í gang.
Staðan í hléinu var 12 gegn 9
fyrir KA. í seinni hálfleik
færðist heldur betur fjör í
leikinn og gætti mikils tauga-
stríðs innan vallar jafnt sem
utan. Þegar nokkrar mínútur
voru eftir voru KA-menn yfir
22-20, en af sínu alkunna
harðfylgi jöfnuðu Þórsarar.
Þegar flautað var til leiksloka
voru Þórsarar að heQa sókn,
sem trúlega hefði fært þeim
sigurinn. Liðin verða því að
reyna með sér aftur. Ekki er
ákveðið hvenær sá leikur fer
fram.
Flest mörk Þórs skoraði Jón
Sigurðsson eða 5 alls, Sigtrygg-
ur 4, Sigurður 3 og Einar
Björnsson 2. Flest mörk KA:
Jón Árni 7, Gunnar 4, Alfreð 3,
Þorleifur og Hermann tvö hvor.
Sekúndubroti síðar þandi vítis-
knöttur Sigtryggs möskvana í
marki KA.
Húshjálp óskast
Þrennt fullorðið í heimili. Vinnutími eftir sam-
komulagi. - Upplýsingar í síma 24270.
PISTIL.L
VIKUNNAR
Leikfélag
Akureyrar
Skugga-Sveinn
Sýning fimmtudag kl. 20.30
og sunnudag kl. 16.00.
Ellilífeyrisþegum á Akureyri
og nágrenni veittur afsláttur
á sunnudagssýninguna.
Aðgöngumiðasalan er opin
frá kl. 17.00.
Sími 2-40-73.
Leikfélag Akureyrar.
Hugsað til
stjórnarinnar
Sú ríkisstjórn, sem nú fer með völd hefur sérstöðu að
því leyti að til hennar virðast gerðar meiri kröfur en
nokkurrar annarar, sem komið hefur við sögu hér-
lendis. Vinstri kjósendur, sem veittu henni brautar-
gengi, ætlast vitanlega til þess að hún fylgi vinstri
stefnu í öllum greinum og sé stjórn vinnandi fólks til
lands og sjávar. Ekki getur það talist ósanngjarnt.
Hægri kjósendur, sem halloka fóru í kosningunum,
hafa aftur á móti ekki verið sanngjarnir í sínum kröfum.
Stjórnin hafði ekki verið við völd lengur en eina viku,
eða kannski tvær, þegar íhaldið ætlaðist til að hún væri
búin að leysa allan þann vanda, sem það skapaði á
stjórnartíð sinni og hljóp síðanfrá ífumi og ráðvillu. Og
íhaidið ætlaðist einnig til að nýja stjórnin gæti greitt
allar gamlar óráðsíuskuldir þess, án þess að nokkurt
landsins barna fyndi fyrir auknum þunga í skattabyrð-
inni.
Eitt er víst, að það má teljast stjórninni góður styrkur
hversu óbermilega stjórnarandstöðu hún hefur við að
fást. Það má flokkast undir bráðsniðugt áramótaskaup
þegar fyrrverandi forsætisráðherra birtist á sjónvarps-
skjánum og kann nú allt í einu ráð við öllum vanda, og
boðar launabætur og skattfrelsi með alvörusvip, sem
margur atvinnuleikarinn mætti öfunda hann af.
Nú mun allur þorri vinstri manna óska þess og vænta
að ríkisstjórnin geti komið sér saman um aðgerðir í
efnahagsmálum og annan aðkallandi vanda, því að
sannarlega mætti það kallast þjóðarógæfa ef íhaldið
yrði leitt til stjórnarforystu á ný, í óþökk meirihluta
þjóðarinnar. Það horfir nú vonaraugum til þeirra
óeiningar, sem er nú ríkjandi á stjórnarheimilinu.
Hin aldna framsóknarmaddama gerist ofurlítið
dintótt og vill ,,snúa hinsegin þegar Ragnar vill snúa
svona." Kratanýgervingarnir eru dálítið hvikulir og
minna á litlu andarungana, sem ,,ætla út á haf, fyrst í
fjarlægð skima, og fara svo í kaf." Ekki er þó sjáanleg-
ur í þeim hópi neinn Ijótur andarungi, sem líkur eru til
að eigi eftir að birtast í svanalíki.
Hinir ungu ráðherrar Alþýðubandalagsins eru allir
greindir og mannvæniegir stjórnmálamenn og það
væri mikill skaði ef þeim gæfist ekki færi á að verða
virtir og metnir af verkum sfnum. Með hækkandi sól
eflist vonandi einhugur og bjartsýni í stjórnarherbúð-
unum, svo að þar verði tekist á við vandamálin af festu
og manndómi.
NORÐURLAND - 5