Norðurland - 15.03.1979, Síða 3
Einar Petersen Kleif
Tekið í Tímann
Einhverjum Skúla Magnússyni
tókst með blaðagrein í Tíman-
um, 4. mars síðastliðinn, að
kalla fram í huga mínum lýs-
ingu skoska spekingsins Thom-
as Carlyle á ákveðinni mann-
gerð. Að hans áliti væri hún
innrætt eins og fluga er eyddi
ævi sinni í að rannsaka ein-
hverja fegurstu „mysteriu“ Eng-
lands St. Poul kirkju og legði
að ævilokum fram skýrslu um
alla þá flugnabletti sem finnast
á henni, jafnt utan sem innan.
Eftir greininni að dæma hefur
hann stundað nám við háskól-
ann í Peking í minnst 3 ár. Svo
hefur hann fengið tækifæri til
að kynnast einhverri fáguðustu
hámenningu mannkynsins, en
greinin ber þess engin merki. Ef
menning stúdenta þar var þá á
jafn lágu stigi og grein hans ber
vitni var jákvætt mjög að skól-
um var lokað í menningarbylt-
ingunni og að stúdentar voru
reknir í þjóðfélagslega gagnleg
störf hvarvetna um Kínaveldi;
enda voru þeir fyrst opnaðir
aftur eftir sigur gagnbyltingar-
manna eftir dauða Mao Tze
Tung. Mao hafði oft lýst þróun-
inni eftir dauða sinn við erlenda
mennta- og stjórnmálamenn og
líka oft látið_þá trú í ljós, að það
sem heilbrigt væri j þjóðarsál
Kínverja mundi að Iokum sigr-
ast á andstöðu gagnbyltingar-
manna. Allt bendir til að hann
hafi verið einn af vitrustu mönn
um sem mannkyninu hefur ver-
ið veitt til forystu; enda samein-
aði hann í sér árþúsunda gamla
hámenningu kínverskrar al-
þýðu og hástéttar og fann í
sér og hlýddi kalli höfðingseðl-
isins til að ganga fram fyrir
skjöldu fyrir þeim sem minna
máttu sín.
Annars ætla ég mér ekki þá
dul að elta ólar við öllum þeim
staðreyndafölsunum, sem grein
in moraði af, en bara segja að
mér leiðast menn sem ráðast á
og svívirða þá sem eiga erfitt
með að koma vörnum við. Það
eru þeir sem hafa báðar hendur
fastar í verðmætaskapandi
vinnu og þeir sem dánir eru.
Hinir þykjast meiri menn af og
láta höggin ríða á þeim og sví-
virða minningu sér meiri
manna.
En sú lýsing, sem Skúli gefur
af sjálfum sér og skólabræðrum
sínum í Pekingháskóla á árun-
um um 1960, gerir mjög svo
skiljanlegt hversvegna MaoTze
Tung þurfti að blása í þær glóð-
ir er leiddu til menningarbylt-
ingarinnar og gerðist leiðtogi
hennar og hvers vegna þurfti að
loka sumum deildum Peking-
háskólans og senda nemendur
þeirra útí sveit til að stuðla að
verðmætaskapandi vinnu. Það
var til þess að þeir þjálfuðust
upp í að verða nýtir þjóðfé-
lagsþegnar, en ekki bara þurfta-
frek háskólagengin þjóðfélags-
snýkjudýr sem lögðu allan sinn
metnað í að verða sem þyngstur
baggi á verðmætasköpun
manna.
Karl Marx sá fyrir meira en
öld að afætustéttin myndi
skipta um gerfi. Hún myndi
ekki grundvalla völd sín til rána
og þjófnaðar á eignarréttinum,
heldur á valdi sem birtist í lög-
um og reglugerðum útbúnum
og framfylgt af skrifstofuveldi
með eðli og áhrif í þjóðarlíkam-
anum eins og krabbameinsæxli
í mannslíkamanum. Hann kall-
aði það austræna auðvalds-
skipulagið og taldi það síst
betra en það vestræna, sem
byggðist á óskoruðum eignar-
rétti.
Nú var í hinu forna Kína-
veldi menntamannastétt, ríkis-
valdið og afætustéttin að veru-
legu leyti runnin samaní eitt.
Ástæðan til að Kínverska sam-
félagið hélt velli var að verð-
mætaskapandi stétt þess.bænda
stéttin veitti í sífellu valdi afæt-
anna mótspyrnu allt upp í mjög
blóðugar og mannskæðar nauð
varnarstryrjaldir. Kommúnista
flokkur Kína komst til valda
1949 með því að mynda eins-
konar liðsforingjastétt fyrir
bændastéttinni. Mao var há-
menntaður sveitamaður sem
trúr var uppruna og stétt sinni
og vissi þessvegna að geigvæn-
leg hætta var fólgin í því að
forystukerfi kommúnistaflokks
ins myndaði valdakerfi ríkisins
og úrkynjaðist í það að verða
kúgunartæki afæta oggerði það
sem í hans valdi stóð til að koma
í veg fyrir þessa feigðar úr-
kynjun. Þess vegna hefur
ómerkilegt fólk nú löngun til að
sparka í náinn og níða minn-
ingu hans og annarra sem best
hafa gengið fram í broddi fylk-
ingar verðmætaskapandi
manna.
íslendingar ættu ekki að
leggjast svo lágt.
Einar Petersen, Kleif.
Gullnar reglur
1. Göngum jafn vel frá
áningarstað og við kom-
um að honum.
2. Hendum ekki rusli á
víðavangi.
3. Spillum ekki vatni.
4. Sköðum ekki gróður
eða dýralíf.
5. Skemmumekkisérstæð-
ar jarðmyndanir.
6. Förum varlega með eld.
7. Forðumst akstur utan
vega.
8. Fylgjum merktum
göngustígum, þar sem
þess er óskað.
9. Virðum friðlýsingarregl-
ur og tilmæli gæslu-
manna.
10. Hirðum vel eignir okkar
og umhverfi, svo ánægja
og sómi sé að.
Ferðaáœtlun
Framhald af bls. 2.
skrifstofuna eða einhvern stjórn
armeðlim. Unglingum innan
tvítugs stendur til boða sérstök
unglingaaðild, sem er mun
ódýrari en full aðild.
Skrifstofa félagsins að Skipa-
götu 12, III. h., er opin frá 31.
maí á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 18,30-20,00, enfram
til þess tíma kl. 18-19 kvöldið
fyrir hverja auglýsta ferð. Sím-
inn er 22720. Á skrifstofunni
eru veittar upplýsingar um ferð-
irnar, ársrit félagsins, Ferðir, er
selt þar í lausasölu ásamt Árbók
Ferðafélags íslands. Eru þessi
rit nú bæði fáanleg frá upphafi.
Ferðafélagsferðirnar eru annars
auglýstar í bæjarfréttadálkum
Akureyrarblaðanna, í auglýs-
ingakössum félagsins við Hafn-
arstræti og Skipagötu og með
götuauglýsingum.
Stjórn Ferðafélagsins skipa nú:
Árnf Jóhannesson formaður
(sími 22518).
Álfheiður Jónsdóttir varaform.
(sími 21605).
Skarphéðinn Halldórsson gjald
keri (simi 23795).
Magnús Kristinsson ritari
(sími 23996).
Herbert Jónsson meðstjórnandi
(sími 22440).
Starri í Garði
að flytja frumvarp um það að
hér yrðu boraðar tvær holur.
Við höfum tekið upp annan
hátt gagnvart Mývatni en lands-
menn yfirleitt gagnvart þorski
og loðnunni. Okkur var það
ljóst og fengum það raunar
staðfest af vísindamönnum, að
við værum búnir að ganga of
nærri silungsstofninum. Því
- Framhald af forsíðu.
höfum við nú í vetur haldið all
ströngum takmörkunum og frið
unum í vatninu. Veiðiréttarhaf-
ar hafa veitt aðeins sér til matar,
- sérstaklega góðan silung. Við
erum að vona að stofninn nái
sér upp aftur ef við höldum
áfram skynsamlega á málum.
Þessar ráðstafanir gilda fram
eftir vetri. en með vordögum
N0RÐURLAND
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANOS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norð-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþraut Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
íþróttir.
Félagarnir
Simmi og Sóli.
Norðurland
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári.
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500.
Fróði rauði
landnámsmaður
Sími21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn:______________________________________________
Heimili:____________________________________________
Póstnúmer:__________________________________________
verður sjálfsagt tekin ákvörðun
um það hvort verði rýmkað á
veiðunum.
Búskapur á undanhaldi.
Eins og menn vita þá er ekki
nema lítill hluti hérsveitunga
við búskap beinlínis. Auðvitað
eru margir menn hér fastráðnir
við Kísiliðjuna og Kröflu,- og
þar fyrir utan er hér starfandi
byggingafyrirtæki, - Sniðill hf.
Það fyrirtæki hefur haft með
framkvæmdir að gera og tölu-
vert af mönnum á sínum snær-
um. Á vegum þess hefur verið
mikil atvinna sl. ár og hangið í
því í vetur. Um framhaldið veit
ég ekki. í smíðum er á vegum
hreppsins viðbótarbygging við
félagsheimilið Skjólbrekku og
gríðarmikil sundlaugarbygging
í Reykjahlíðarþorpi. Það er
engan veginn séð fyrir endann á
þeim framkvæmdum og fáist fé
í það, er töluverð vinna þar
framundan. En þá má sam-
dráttarstefnan ekki koma
nærri
Þaðersvo í samræmi við all-
an vesaldóminn, að finna upp á
nýju bjargráði,-eða þvíaðauka
á samdráttinn sem verða má . í
blaði landbúnaðarráðherra las
ég það að bændum fækkaði um
einn á tveimur og hálfum sólar-
hring eða um tæplega 150 á ári, -
en það þýðir það að með sarna
áframhaldi leggur sá síðasti upp
Iaupana eftir þrjátíu ár.
Skemmtilegt reikningsdæmi. -
Þetta kemurtilaf
því að hingað til hefur alltaf ver-
ið litið á hlutverk landbúnaðar
að framleiða knappt, klippt og
skorið handa landsmönnum. -
en aldrei mátt minnast á hann
sem útflutningsatvinnuveg.
Starri/óg
Sjúkrahús á
Akureyri
Tilboð óskast i að ljúka frágangi skurð-
deildar o.fl. i nýbyggingu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Verkinu skal að fullu lokið 15. april, 1981.
Útboðsgögn vérða afhent á skrifstofu
vorri og skrifstofu bæjarverkfræðings á
Akureyri gegn 75.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
þriðjudaginn 24. april 1979, kl. 11.00, fyrir
hádegi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚN! 7 SÍMI 26844 PÓ5THÓLF 1441 TELEX 2006
NORÐURLAND - 3