Norðurland - 15.03.1979, Side 4
Helgi
Ólafsson
Skákþrautin
Lausnin á síðustu þraut er eftir-
farandi:
1. Hb6! cxb6
2. c3 b5
3. Kc5 b4
4. cxb4 mát.
Og þá er það þraut vikunnar:
Hvítur mátar í 9 leikjum.
Fréttir
frá
Sháhfélagi
Ahureyrar
Nýlokið er Skákþingi Akureyr-
ar 1979. í flokki fullorðinna
voru 5 keppendur sem tefldu
tvöfalda umferð. Úrslit urðu
þau að efstir ogjafnir urðu Gylfi
Þórhallsson og Kári Elísson
með 5'/2 vinn. Munu þeir tefla 4
skáka einvígi um titilinn Skák-
meistari Akureyrar.
Nvlega fóru Skákfélagsmenn
suður til keppni í 1. deild í skák
og tefldu þar 2 umferðir. Úrslit
urðu þessi: Akureyri 5 l/2vinn.
Kópavogur 2 1/2 vinn. Akur-
eyri 5 vinn. Keflavík 3 vinn.
Skákfélag Akureyrar er nú í 2.
sæti í deildinni og hefur góða
möguleika á að halda sætinu.
7. mars var haldið 15 mín.
mót í Félagsborg. Keppendur
voru 28 og tefldu 7 umf. eftir
Monrad-kerfi. Úrslit urðu
þessi: Nr. 1 Jón Björgvinsson 6
vinn. Nr. 2 Pálmi Pétursson
5 1 /2 vinn. Nr. 3-4 Ólafur Krist-
jánsson og Rúnar Búason 5
vinn.
Annað 15 mín. mót var hald-
ið í janúar með 28 keppendum.
Röð efstu manna: Nr. 1 Krist-
inn Jónsson 5 1/2 v. Nr. 2 Atli
Benediktsson 5 1/2 v. Nr. 3
Haraldur Ólafsson 5 1/2 vinn.
Stig réðu röð efstu manna.
Nýlokið er Skákþingi Akur-
eyrar 1979. í flokki fullorðinna
voru 5 keppendur sem tefldu
tvöfalda umferð. Úrslit urðu
þau að efstir og jafnir urðu Gylfi
Þórhallsson og Kári Elísson
með 5 1 / 2 vinn. Munu þeir tefla
4 skáka einvígi um titilinn
Skákmeistari Akureyrar.
í unglingaflokki voru 11 kepp
endur. Sigurvegari varð Níels
Ragnarsson, sem hlaut 8 1/2
vinn. Nr. 2 varð Pálmi Péturs-
son með 8 vinn. Hraðskákmót
Akureyrar var haldið á eftir
Skákþinginu.
Keppendur voru 40 og tefldu
9 tvöfaldar umferðir eftir Mon-
rad-kerfi. Úrslit urðu þau að
efstir og jafnir urðu Hjörleifur
Halldórsson, Jón Björgvinsson
og Þór Valtýsson, allir með 13
vinn. Þeir tefldu síðan til úrslita
og sigraði þá Jón Björgvinsson,
Þór varð annar og Hjörleifur
þriðji.
4 -NORÐURLAND
Af Bæjarmálum
Verðbœtur
Ákveðið hefur verið að starfs-
menn Akureyrarbæjar fái
greiddar verðbætur á laun frá 1.
jan. sl. Það er í samræmi við al-
ræmdan úrskurð kjaradóms nr.
1 1979ogframkvæmdfjármála-
ráðherra (án samráðs) á þeim
úrskurði.
Ný Landsvirkjun
Bæjarstjórn ákvað það á fundi
sínum sl. þriðjudag, að bæjar-
félagið gangi til samninga um
sameiningu orkuveitna. Kosin
var nefnd til samninga um stofn
un slíkrar Landsvirkjunar:
Freyr Ófeigsson, Helgi M.
Bergs, Ingólfur Árnason, Jón
G. Sólnes, Knútur Otterstedt,
Soffía Guðmundsdóttir og Val-
ur Arnþórsson.
Niðurrif
Þar sem Eyfirðingar forðum
brynntu folum sínum hið neðra
og þáðu kaffi og annan viður-
gjörning efra að Karólínu hverf-
ur brátt sýnum. Bæjarstjórn
hefur samþykkt að húsameist-
ara verði falið að sjá um niður-
rif „Caroline-Rest“, -ensvo var
veitingastaðurinn nefndur og
húsanna Glerárgötu 2 og Gler-
árgötu 4. íbúarnir hafa fengið
húsnæði.
Óhentugt
kirkjustœði
Skipulagsnefnd og bæjarstjórn
hafa synjað erindi safnaðar-
fundar Lögmannshlíðarsóknar.
Erindi þeirra varðar lóðaum-
sókn undir kirkju og safnaðar-
heimili á ásnum norðan Harð-
angurs í Glerárþorpi. Skipu-
lagsnefnd telur að staðurinn
henti ekki m.a. vegna þess að
rými er ekki nóg, hvorki fyrir
fyrirhugað hús né bílastæði.
Áðkomuleiðir yrðu erfiðar og
svigrúm ekkert til frekari fram-
kvæmda á lóðinni. Samkvæmt
teikningum átti kirkjan og safn-
aðarheimilið að rúma 400
manns í sæti. Þetta leiðir hug-
ann að því, - hvort ekki væri
hægt að brúka húsnæði Þjóð-
kirkjunnar, sem almenningur
fjármagnar, undir fjölbreyttari
starfsemi en nú er, tónleika,
fundahöld o.s.frv.
íbúðaúthlutun
Félagsmálaráð Akureyrar hef-
ur nýlokið úthlutun á 21 íbúð.
15 þeirra eru að Smárahlíð 1 og
3, en 6 í eldra húsnæði. 64 um-
sækjendur voru um þessar íbúð-
ir, - svo augljóst er að bæjar-
félagið á langt í land með að
leysa brýna húsnæðisþörf. Enn
er óráðstafað 5 nýjum íbúðum á
vegum bæjarins.
Skipulagsstjóri
Bæjarstjórn samþykkti í vik-
unni nýjar reglur um skipulags-
mál Akureyrar. Fela þær m.a. í
sér að ráðinn skuli skipulags-
stjóri til bæjarins og verður
starfið auglýst til umsóknar
næstu daga.
f-------------------\
Núgetum
við
hlustað á
útvarp
Kópaskeri 7/3 - Þau undur
urðu hér á Kópaskeri að
sendistöð útvarps, sem er í
kjallaranum í símstöðinni
tók að senda að nýju eftir
fjölmargra ára hvíld. Við
höfum ekki haft eiginlegt
útvarp svo árum skiptir.
Svo ekki er að undra að
fegnir urðum við er sendi-
stöðin var lagfærð í gær-
kveldi. Nú getum við allt í
einu hlustað á útvarp eins
og aðrir siðaðir menn.
Ragnar
>__________________.
Blaðberar I
óskast á brekkunni og eyrinni.
5
N0RÐUR1AND
TAPAÐ - FUIMDIÐ
Svartur CABER skíðaskór með rauðu fóðri, ætlaður
fyrir vinstri fót tapaðist í fjallinu um helgina. Eigand-
inn situr uppi með tvo hægrifótar skó og er annar
þeirra falur í skiptum fyrir hinn rétta vinstrifótar skó.
Upplýsingar í síma 24981.
SAMBAND (SLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild ■ Akureyri
Tökum ekki meir sjónvarpssokka,
en leggjum áherslu á
hnepptar dömu- og
herrapeysur.
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
Barnaleikvellir
Umsjónarstarf er laust til umsóknar, sem felur í sér
leiðbeinandi og daglegt eftirlit á barnaleikvöllum
bæjarins á komandi sumri.
Æskilegt er að umsækjandi hafi fóstrumenntun eða
reynslu á hliðstæðu sviði.
Umsækjandi þarf að hafa bifreið til afnota.
Umsóknarfrestur er til 30. mars n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur formaður Leik-
vallanefndar Hrefna Jakobsdóttir í síma 22757.
LEIKVALLANEFND.
Kaupfélag Eyfirðinga
auglýsir
Það eru vinsamleg tilmæli vor, að félagsmenn skili
arðmiðum vegna viðskipta á árinu 1978 fyrir mars-
lok. Miðunum skal skila í lokuóum umslögum
merktum nafni, félagsnúmeri og ártali 1978. Útibú
matvörudeildar og skrifstofa fjármáladeildar veita
miðunum móttöku.
Kynning
Kynnum nýja International Harvest-
er B-484 52 hö. m. hljóðeinangruðu
húsi. sýningarvél á staðnum.
Ennfremur höfum við til sýnis B-444
47 hö.
HITACHI
20” skermur kr. 469.500
Steðgretðsluverð kr. ♦55.400
Sfml 22111, Gránufélagsgötu 4
Skákmenn!
Hraðskákmót Skákþings Norðurlands verður haldið
sunnudaginn 18. mars kl. 16.00 í Félagsborg.
SKÁKFÉLAG AKUREYRAR.