Norðurland - 15.03.1979, Side 6
NORÐURLAND
Fimmtudagur 15. mars 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
í NORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ í
norðurLandi
- Síminn er 2-18-75 -
Fundist í fjalli
NORÐURLAND sotti skíðabrekkur heim um helgina.
f Hlíðaríjalli var líf og Qör í unga fólkinu, sem renndi sér
af kappi ofan hjallann. Við tókum nokkur þeirra tali og
spjölluðum við starfsmenn.
! Hjallabrekku greip blm.
NORÐURLANDS í Árna
Óðinsson. - Árni nú sér maður
þig hér ífjallinn nœstum þvíalla
c/aga, - ertu hérna á hverjum
clegi? Nei, ég er hér fjóra daga
vikunnar. Seinnipart þriðju-
dagá og fimmtudaga og síðan á
laugar- og sunnudögum. Hvaða
alclursflokka þjálfar þú? Ég er
að þjálfa yngstu krakkana frá 7
til 12 ára aldurs. Nú hefur þú
verið erlendis við skíðaiðkun, -
hvernig er aðstaðan í FjaUinu
miðað við þar ytra? Aðstaðan
hér er þokkaleg en vantar þó
ýmislegt. Við þurfum fleiri lyft-
ur. Hérna í Hjallabrekku vant-
ar góða lyftu og ef við fengjum
hana værum við vel settir.
Nú eru að koma páskar ogþá
fyllist hótelið og skíðalandið aj
gestum. Hvað gerist ef stóra
lyftan bilar? Þá gætum við
sýnist mér lokað staðnum, alla-
vega ef það gerðist um páska.
Nú ert þii að þjálfa krakka
upp til keppni. Finnst þér œski-
legt að gera skíðaiþróttina að
svona mikilli keppnisíþrótt?
Menn verða að velja á milli
hvort þeir stefna á að keppa eða
leika sér. Þeim stendur hvort
tveggja til boða.
Þegar litið er vfir biðröðina á
góðviðrisdegi þá lítur út fyrir að
flestir séu með keppnisútbúnað
þótt fólk hafi ekkert við það að
gera.
Jú, en það verður að huga að
því að það er ekki orðinn svo
mikill munur á keppnisútbún-
aði og „venjulegum“ útbúnaði.
Almenningur er yfirleitt mjög
vel útbúinn og á góðum og dýr-
um skíðum og við fylgjumst
mjög vel með á þessu sviði.
Eitthvað að lokum? Minn
draumur er að við sjáum
600 börn á Akureyri
Shemmusöngur
Annað landsmót ísl. barnakóra
verður haldið í íþróttaskemm-
unni á Akureyri laugardaginn
17. mars nk.
16 barnakórar, alls rúml. 600
börn taka þátt í þessu móti. 3
kóranna eru frá Akureyri, - þ.e.
kórar Barnaskóla Akureyrar,
Glerárskóla og Lundarskóla.
Hinir kórarnir eiga um langan
veg að sækja. 4 eru úr Reykja-
vík, 3 úr Árnessýslu og 1 frá
hverjum eftirtalinna staða:
Rangárvallasýslu, Hafnarfirði,
Seltjarnarnesi, Akranesi,
Tálknafirði og Húsavík. Vegna
fjölda þátttakenda verður hópn
um skipt á tvo gististaði, -
annars vegar Lundarskóla og
hins vegar Hrafnagilsskóla, sem
einnig mun sjá aðkomufólkinu
fyrir fæði.
Fyrsta landsmót ísl. barna-
kóra var haldið í Reykjavík
1977 og þótti takast mjög vel.
Þátttaka er talsvert meiri nú, -
og er ánægjulegt að svo margir
skuli vilja leggja á sig löng og
kostnaðarsöm ferðalög til þess
að koma saman og syngja fyrir
hvert annað og norðlendinga.
Tvennir tónleikar verða laugar-
daginn 17. mars kl. 14.00 og
17.00. 8 kórar syngja á hvorum
tónleikum.
Aðgöngumiðasala verður við
innganginn. Bæjaryfirvöld á
Akureyri hafa ákveðið að
styrkja framkvæmd mótsins
m.a. með því aðfella niður leigu
á skemmunni. Er það þakkar-
vert þar sem kostnaðarliðir eru
margir og stórir. Óneitanlega
væri ánægjulegt ef Akureyri
hefði upp á betra húsnæði en
íþróttaskemmuna að bjóða, þeg
ar um meiri háttar tónleikahald
er að ræða.
Stóraukin
VERKMENNTUN
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fjölmennum
fundi að Hótel KEA laugardag-
inn 10. mars 1979. Tilfundarins
höfðu boðað stjórnir Félags
málmiðnaðarfyrirtækja á Ak-
ureyri og Sveinafélag járniðn-
aðarmanna á Akureyri.
„Almennur fundur um verk-
menntun í málmiðnaði haldinn
á Akureyri 10. mars 1979 telur
að sýnt hafi verið fram á að í
málmiðnaðinum á Akureyri sé
falinn einn helsti vaxtarbroddur
iðnaðar í bænum. Með skipu-
legu átaki er unnt á næstu árum
að veita fjölda ungs fólks á
Akureyri atvinnu við áhuga-
verð störf í málmiðnaði og
treysta á þann hátt enn frekar en
orðið er iðnað bæjarbúa.
Fundurinn bendir þó á að slík
um markmiðum verður ekki
náð nema menntun málmiðn-
aðarmanna sé góð og að lögð
verði sérstök rækt við grund-
vallaratriði kennslunnar. Til
þess að það megi takast ber
brýn nauðsyn til að efla verk-
lega kennslu í málmiðnaðar-
greinum við Iðnskóla Akureyr-
ar.
Fundurinn leggur því ríka
áherslu á að nú þegar verði haf-
ist handa um byggingu hús-
næðis fyrir verklega kennslu í
málmiðnaði á Akureyri svo og
önnur þau mannvirki við Iðn-
skóla Akureyrar, sem þjóna því
markmiði að stórefla verk-
menntun í bænum“
Signe Viðarsdóttir 12 ára frá Ak-
ureyri var að keppa á Hjalla-
brekkumótinu og gekk vel. fskól-
anum hefur hún frí eftir hádegi,
nema hvað hún þarf að fara í
leikfimi. Hún er hin ánægðasta
með aðstöðuna í fjallinu. Nú er
hægt að borða nestið í skúr hjá
hótelinu.
Sigurður Eiríksson er á skíðum af
því honum finnst það svo gaman.
Hann er innanúr sveit. - Aðstað-
an er mjög góð hérna, segir Sig-
urður. Hvernig fellur keppnin
saman við skólatímann hjá ykk-
ur? Við fáum aldrei frí til að
keppa, maður gerir þetta eftir
skólann.
„Stromp“-lyftuna flutta hingað
niður eins og til stóð og nýja
lyftu í Strompinn. Þá losnum
við við þessa kaðla því þeir eru
ólán, þótt við getum samt ekki
án þeirra verið eins og á stend-
ur. Þessi brekka er mjög góð
fyrir krakkana en lyftan varla
boðleg, þeir geta varla hangið á
henni.
Björn Sigmundsson stjórnar
troðaranum. NORÐURLAND
spurði hann fyrst hvort rétt
Olafur Einarsson keppir í Akur-
eyrarliðinu og er einnig hinn
ánægðasti með aðstöðuna í Fjall-
inu. Hann segir að æfingarnar
komi ekki niður á náminu, - hann
æfi þrisvar í viku. Strákarnir
kvörtuðu undan því hve skíðaút-
búnaðurinn væri dýr.
í tilefni þess að 30. mars n.k. eru
30 ár liðin frá því að Alþingi
samþykkti aðild Islands að
NATO, hefur verið ákveðið að
efna til sýningar á myndverkum
sem túlka andúð á her á Islandi,
veru íslands í NATO, heims-
valdastefnu og vígbúnaði yfir-
leitt.
Þeir sem kynnu að eiga í fór-
um sinum myndir (eftir sjálfa
sig eða aðra) sem fjalla um
ofangreind atriði snúi sér til:
Jóns Magnússonar í síma
23871. Ritstjórnarskrifstofu
Norðurlands í síma 21875.
Sýningin verður haldin fyrri
hluta aprílmánaðar á Akureyri.
Samtök herstöðvaandstæð-
inga á Akureyri. - Sýningar-
hópurinn.
hefði verið að taka þennan troð-
ara sem kostaði 42 miljónir
fram yfir þann gamla?
Sá gamli var nú eiginlega úr
sér genginn, segir Björn, - auk
þess sem þessi hefur það fram
yfir hann að hafa tönn og geta
fært og þjappað snjónum til.
Svo er hann líka mikið afkasta-
meiri. Framhald á bls. 5.
Andófssýning
ALÞÝDUBANDALAGID
Starfið framundan
Alþýðubandalagið á Akureyri
OPINN FUNDUR
í Alþýðuhúsinu Yöstudaginn 19. mars kl. 20.00.
Ræðumaður: Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra.
(Sjá nánar í augiýsingu á forsíðu.)
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 19. mars í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18.
Fundarefni: Börn á Akureyri. - Undirbúningur fyrir bæjar-
stjórnarfund í tilefni barnaárs.
Ath. Aliir félagar ABA eiga rétt á setu í bæjarmálaráði.
Stjórnarfundur
ABA þriðjudaginn 20. mars kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
Leikfélag
Akureyrar
Leikfélag Akureyrar frum-
sýnir Sjálfstætt fólk eftir
Halldór Laxness í leikgerð
Baldvins Halldórssonar,
föstudaginn 23. mars. Leik-
stjóri er Baldvin Halldórs-
son, en leikmynd eftir
Gunnar Bjarnason. Leik-
ritið var áður sýnt í Þjóð-
leikhúsinu 1972. Hlutverk
eru alls um 20 og með
helstu þeirra fara: Þráinn
Karlsson, Svanhildur Jó-
hannesdóttir, Jóhann ög-
mundss., Þuríður Schiöth
og Heimir Ingimarsson.
Mjög góð aðsókn hefur
verið að sýningum LA í
vetur og ekki ætti verk
nóbelskáidsins að draga úr
henni. NORÐURLAND
mun gera þessari sýningu
nánari skil í næsta blaði.
Smábátar
Dalvík. Að sögn Ingimars
Lárussonar hafnarstjóra á
Dalvík hefur nú borist mun
meiri og betri afli á land en
á sama tíma í fyrra. Mikil
vinna er því í fiskverkunar-
húsunum í bænum og oft til
miðnættis. Flesta laugar-
daga er unnið jafnt sem
virka daga.
Afli hæstu smábátanna
er sem hér segir frá ára-
mótum:
Stafnes: 256 tn. í 46 sjóf.
Bliki: 191 tn. Í37sjóferðum
Haraldur: 206 tn. í 44 sjóf.
Otur: 162 tn. í 41 sjóf.
Vinur: 150 tn. í 39 sjóf.
Búi: 152 tn. í 35 sjóf.
Brynja.
íslendingur
blárri
Hann glennir sig aldeilis
hugsjónakvrkingurinn á
forsíðu íslendings hins
bláa sl. þriðjudag. Vetrar-
hret hugmyndaflugsins æp-
ir framan í lesendur um
napra tíð í formi auglýs-
inga frá fyrstu síðu og aftur
úr. íhaldið hefur nú ekki
svo mikið sem eina frétt að
færa Norðlendingum á for-
síðu, - heldur skal það
grísaveisla vera og suður
um höfin.
Þessu til staðfestingar er
svo sólarlangloka í opn-
unni, enda almenningi
sæmst að vita hvernig
greindarlegast er legið á
ströndum syðra. Hvort
þetta fararsnið á íslend-
ingi á að vera táknrænt eða
ekki skal ósagt látið, -eins
og svo margt annað sem
kemur í hugann við „lest-
ur“ síðasta Islendings.
Ferðafélag
Akureyrar
Gönguferð inn á Súlumýr-
ar sunnud. 18. mars kl. 13.
Ganga má á skíðum ef
snjór verður nægur. Létt
ferð fyrir alla íjölskylduna.
Uppl. á skrifstofunni,
Skipagötu 12, laugard. kl.
18-19, sími 22720. Brottför
frá sama stað.
Verð
hœkhanir
Frá 1. mars hækkaðiverðá
auglýsingum og áskrift hjá
Akureyrarblöðunum.
Áskriftargjald NORÐ-
URLANDS fyrir hálft árið
er nú kr. 3500 og verður
fyrri hluti þessa árs inn-
heimtur með vorinu. Aug-
lýsingaverð er nú kr. 1500á
dálkcm. Hækkunin gildir
frá L mars að telja.