Norðurland - 22.03.1979, Qupperneq 6
NORÐURIAND
Fimmtudagur 22. mars 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I' NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75
AUGLÝglÐ I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75
List og léttmeti á listaviku
I dag hefst listavika Menntaskólans á Akureyri.
Þetta er annað árið í röð sem slík vika er haldin
en ætlunin er að þetta verði árviss viðburður á
Akureyri í framtíðinni. Undirbúningur vikunnar
hefur verið í höndum Listavikunefndar, en hana
skipa Sigurður Blöndal formaður, Friðrik Rafns-
son Tónlistarfélagi MA, Birna Gunnlaugsdótt-
ir Bókmenntafélaginu, Gunnar Snælundur Ingi-
marsson Félagi áhugaljósmyndara og Helgi Már
Halldórsson Leikfélagi MA.
koma hugmyndum í form bún-
inga og leikmyndar.
Fjögurra manna hljómsveit
imenntskælinga leikur í sýning-
unni. Þjálfari sveitarinnar er
örn Magnússon, en hann út-l
setti lög læriföður síns, Sverris
Slöngueggið, sem þykir ofboðs-
lega vel gerðy á dagskránni.
Formaður kvikmyndaklúbbs-
ins er Þorsteinn Gunnarsson.
Tónlist
Á sunnudaginn hefst svo tón-
Ljósmyndasýning
Dagskrá listaviku hefst með
opnun ljósmyndasýningar í
Möðruvallakjallara í dag. Á
sýningunni eru Ijósmyndir eftir
nemendur úr skólalífinu ann-
ars vegar og hins vegar fetuð
öngstræti listrænnar sköpunar
í myndgerðinni.
Félag áhugaljósmyndara í
MA, Fálma, hefur unnið að
sýningunni en Ijósmyndarar
hafa sæmilega aðstöðu í skól-
anum til úrvinnslu mynda. Fél-
agið sér um gerð skólaspjalda
Grísir gjalda: pönkað í gaggó!
og er starfsemi lifleg á þeirra
vegum. Formaður Fálma er
Gunnar Snælundur Ingimars-
son frá Egilsstöðum.
Leikritið
Hámarki sínu nær svo lista-
vikan í frumsýningu Leikfélags
MA á verki Böðvars Guð-
mundssonar: Grísir gjalda,
gömul svín valda. Rúmlega 40
manna hópur hefur æft og
undirbúið sýningar á þessu
verki Böðvars, og verður frum-
sýningin þriðjudaginn 27. mars
í Samkomuhúsinu. Böðvar
skrifaði leikritið sérstaklega
fyrir MA til flutnings á ári
barnsins. Eins konar barna-
verndunarnefnd rannsakar
menningu og móral og fylgist
með tveimur systkinum úr
vísitölufjölskyldunni. Nefndina
skipa þær þekktu sagnapersón-
ur: Mjallhvít, Tarsan og
indíánahöfðinginn Big Foot.
Fránum sjónum er beint að
leikjum, leikföngum, sögum,
ævintýrum og fleiri þáttum í
daglegu umhverfi æskulýðs.
I leikritinu er flogið gegn um
tíma og rúm. Á svipstundu er
áhorfandinn hrifinn brottu úr
,,friðsælu“ heimilislífi aðfanga-
dagskvölds til ævintýraheims
Mjallhvítar og dverganna 7;
inn í dimma frumskóga þar
sem Tarsan fæst við górillur,
ellegar þá á landssvæði vilta
vestursins, þar sem indíánar og
kúrekar bítast á um margar
ekrur lands.
Leikendur eru 25 talsins og
bregða sér í líki 79 „persóna"
(hvar meðal merkra má telja
íslenskt sauðfé,, suðrænar
górillur og ljón).
Leikmynd og búninga hönn-
uðu tveir nemendur skólans,
þeir Þorbergur Hjalti Jóns-
son og Helgi Már Halldórs-
son og nutu þeir góðra ráða
Messíönu Tómasdóttur mynd-
listarmanns. 8 mánna hópur
hefur unnið sleitulaust við
smíðar, saumaskap, svamp-
skurð, litun og límingu til að
Hin viðmótsþýða Mjallhvít og vöðvastælti Tarsan.
Páls Erlendssonar. Leikstjóri er
Kristín Á. Ólafsdóttir.
Eins og fyrr segir verður
frumsýning þriðjudaginn 27.
mars í Samkomuhúsinu. Næstu
sýningar verða á miðvikudag og
fimmtudag og væntanlega í vik-
unni þar á eftir. Þá er ráðgert að
ferðast með ,,Grísina“ til ná-
grannabyggða og höfuðborg-
arinnar.
K vikmyndasýningar
Svo sem alræmt er, þá hafa
norðlendingar ekki átt þess kost
að sjá sæmilegar kvikmyndir
svo misserum skiptir hér á Ak-
ureyri. Nú verður vonandi ein-
hverbreyting þar á, því Kvik-
myndaklúbbur MA var endur-
Iífgaður í fyrra eftir nokkurrá
ára dá. Klúbburinn hefur reynt
að koma á einhvers konar sam-
starfi við Fjalarköttinn syðra án
verulegs árangurs. Hinsvegarer
von á að úr rætist. Þær sýningar
sem hafa verið í vetur og verða á
listaviku eru í Borgarbíói en
Björgvin Júníusson bíóstjóri
hefur sýnt þessu menningar-
framtaki hlýhug og skilning. Á
listaviku verða sýndar tvær
kvikmyndir eftir Polansky:
Rosemarys Babv ídagkl. 17.00
og Chinatown nk. laugardag kl.
14.00. 31. mars verður nýjasta
mynd Ingimars Bergmans
Neytendasamtök á Akiireyri
ÞORFIN BR YN
Sl. laugardag (17. mars) var
stofnuð á Hótel Varðborg Ak-
ureyrardeild Neytendasamtak-
anna.
Markmið Neytendasamtak-
anna er skv. lögum þeirra, að
gæta hagsmuna neytenda íþjóð
félaginu. Tilgangi sínum hyggj-
ast samtökin ná m.a með því:
a) að vaka yfir því, að sjón-
armið neytenda almennt séu
virt, þegar ákvarðanir eru tekn-
ar eða reglur settar, er varða
hagsmuni þeirra.
b) að reka útgáfu- og fræðslu-
starfsemi til aukningar á verð-
og vöruþekkingu neytenda og
til skilningsauka á málum, er
varða hagsmuni þeirra.
c) að veita félagsmönnum
sínum leiðbeiningar og fyrir-
greiðslu ef þeir verða fyrir tjóni
vegna kaupa á vörum og þjón-
ustu.
d) að gangast fyrir stofnun
deilda eða félaga sem víðast á
landinu.
Samtökin hafa skrifstofu og
starfsmann í Reykjavík. Deildir
utan Reykjavíkur hafa þegar
verið stofnaðar á Akranesi og í
Borgarnesi..
Fundurinn var vel sóttur og
urðu umræður fjörugar. Fram-
sögn höfðu Jóhannes Gunn-
arsson frá Borgarnesi og Rafn
Jónsson, ritari Neytendasam-
takanna. Svavar Gestsson við-
skiptaráðherra flutti stutt ávarp
og svaraði fyrirspurnum. Enn-
fremur var á fundinum örn
Bjarnason, starfsmaður Neyt-
endasamtakanna, sem veitti
upplýsingar um starfsemi
þeirra.
í stjórn Akureyrardeildar-
innar voru kosin Jóhanna Þor-
steinsdóttir Jónína Pálsdóttir,
Kristín Thorberg, Páll Svavars-
son, Stefán Vilhjálmsson, Ste-
fania Arnórsdóttir, Steindór
Gunnarsson, Valgerður Magn-
úsdóttir og Steinar Þorsteins-
son, sem kosinn var formaður.
Stjórnin mun vinna að undir-
búningi starfs á Akureyri, svo
sem útvegun húsnæðis, þar sem
þjónusta við neytendur getur
farið fram, en meðlimir Neyt-
endasamtakanna eru nú um 100
á Akureyri. Framhaldssiofn-
fundur verður haldinn þegar
nauðsynlegum undirbúningi er
lokið. Þeim, sem hafa áhuga á
frekari upplýsingum um fyrir-
hugaða starfsemi, er velkomið
að snúa sér til Jónínu Pálsd., s.
21250, Stefaníu Arnórsd., s.
23869 og Valgerðar Magnús-
dóttur s. 24782.
listarþáttur listavikunnar með
hljómplötukynningu í Möðru-
vallakjallara kl. 20.30. Flutt
verður músik framin af öldnu
kempunni Oscar Peterson og
köppum hans. Miðvikudag 28.
mars verður Sjálfsmorðssveitin
með kynngimagnaða tónlist og
innblásna úr pönkættaðri tilurð
sinni, - en sveitin varð til í sam-
vinnu við Megas sem hraðaði
sér á braut fyrr en efni stóðu til
úr sveitinni. Tónleikarnir verða
kl. 17.00. Þá er enn einu sinni
von á Þokkabót, - og troða þeir
trúlega upp nk. mánudags-
kvöld.
Tónlistarþætti listavikunnar
lýkur svo með Nemendatón-
leikum í setustofu heimavistar-
innar þar sem áheyrendum gefst
kostur á að hlýða á snillinga
snúa ómþýða tóna úr hljóðfær-
um ýmissa gerða, mest klassik.
Formaður hins líflega tónlistar-
félags MA er Sigmundur Rún-
arson.
Skóldakynningar
I vetur hefur Bókmenntafélag
MA staðið fyrir kynningu á
skáldunum: Guðlaugi Arasyni,
Böðvari Guðmundssyni og Ein-
ari Kristjánssyni. Þá hefur
Bóma (en svo er bókmenntafé-
lagið skammstafað) staðið fyrir
kynningu á ísl. rómantíkerum
19. aldar. Á listavikunni mun
svo Ólafur Haukur Símonarson
lesa upp úr verkum sínum, en
það verður fimmtudaginn 29.
mars kl. 20.30. Formaður Bóma
er Birna Gunrdaugsdóttir frá
Hvilft. í tengslum við listavik-
una stendur listavikunefndin
fyrir verðlaunasamkeppni um
ljóð, smásögu, tónverk og
merki. Verðlaunaafhendingar
hafa ekki farið fram. Vakin skal
atþygli á að öllum er heimill að-
gangur og er það vel að mennt-
skælingar tvíeini svo menning-
arkrafta sína í annars snautlegt
listalíf okkar.
Blaðberar
NORÐURLAND
óskar eftir blaðberum
á Brekkuna og á
Eyrina.
N0RÐUR1AND
SÍMI 21875
Eiðsvallagötu 1&
Barnaárið í
bœjarstjóm
Nk. þriðjudag kl. 16.00 er
bæjarstjórnarfundur um
málefni barna á Akureyri.
Forseta og varaforsetum
bæjarstjórnar hafði verið
falið að undirbúa þennan
fund. Skrifuðu þeir 8 starfs
nefndum bæjarstjórnar, -
og fóru fram á greinargerð
um hvernig unnið hefði
verið að málefnum barna í
hverjum málaflokki og
báðu um tillögur þar um.
Flestar nefndir hafa skilað
af sér áliti. Hvort hér sé
sproti hugarfarsbreytingar
gagnvart börnum í augsýn
skal ósagt látið, en gera má
ráð fyrir líflegum umræð-
um á bæjarstjórnarfundin-
um. Fundurinn er eins og
allir fundir bæjarstjórnar
öllum opinn og verður I
fundarsal bæjarstjórnar að
Geislagötu 9.
Bjartur blár
Leikfélag Akureyrar hefur í
vetur haft samstarf með
myndlistarmönnum í bæn-
um. í tengslum við leiksýn-
ingar hafa myndlistarmenn
sýnt myndverk sín í forsöl-
um og kaffisal leikhússins.
í tilefni sýninga á Sjálf-
stæðu fólki, hefur Guð-
mundur Ármann teiknað
og þrykkt í silkiprent mynd
af þeim frjálsa bónda Bjarti
með Sumarhús í baksýn.
Myndin er fjölfölduð í
plakatstærð og seld tölusett
og árituð af listamannin-
um á leiksýningum á næst-
unni. Það fer vel á því að
listamenn nyrðra hafi með
sér samstarf með þessum
hætti og hafa flestir áhuga á
að þróa það áfram í náinni
framtíð.
Garpsskapur
í Gígjunni
Söngfélagið Gígjan heldur
sína árlegu tónleika nú um
helgina 24. og 25. mars. í
kórnum eru 30 konur, en
kórinn hefur starfað í 12 ár.
Á tónleikunum um helgina
flytur kórinn lög af eldri
söngskrám. Undirleikari
verður Thomas Jackman,
en Anna Kjartansdóttir
hefur leikið undir á æfing-
um í vetur. Einsöngvari
verður Gunnfríður Hreið-
arsdóttir. Söngstjóri hefur
verið alla tíð verið
Jakob Tryggvason. Fyrir-
huguð er útgáfa á hljóm-
plötu fljótlega með söng
Gígjunnar. » Tónleikarnir
verða í Borgarbíói.
Hrakist
undan ís
Dalvík 20/3 - Netabátarn-
ir hafa nú allir tekið upp
trossur vegna íssins, sem
nálgast nú óðfluga land.
í fiskvinnsluhúsunum er
nú verið að vinna við um-
söltun og fiskmat. En bátar
eru ekki á sjó vegna veðurs
og íssins.
Ferðafélag
Akureyrar
Staðarbyggðarmýrar 25. 3.
kl. 13.00. Létt gönguferð
fyrir fólk á öllum aldri.
Ganga má á skíðum ef færi
leyfir. Upplýsingar á skrif-
stofunni laugardag kl. 18-
19.
Ath. leiðréttingu áferða-
áætlun í síðasta blaði. 20.
ferð á að vera Kleifarstein-
ar í Þorvaldsdal, ekki
Svarfaðardal.