Norðurland - 29.03.1979, Qupperneq 1
NORÐURLAND
4. árgangur
Fimmtudaginn 29. mars 1979
11. tölublað
Húsavík:
Þrír bátar farrdr
Húsavík 26/3
Enn er töluverður íshroði með
landi, sem torveldar smærri
bátum umferð. Grásleppuveiði-
menn höfðu lagt mikið afsínum
netum, sem fóru undir ís. Tjón
þeirra er geysilegt og ófyrirséð
hversu mikið af netum þeim
tekst að slæða.
í gær, sunnudag réru flestir
að huga að þeim netum, sem
næst voru og var eftirtekja mis-
jöfn. Flestir náðu einhverju
broti af netastólnum og var
veiði bærileg. Hverju sem fram
vindur er ljóst að tjón er mikið
fyrir utan það feikna erfiði, sem
það skapar að flengjast um
allan sjó með kröku upp á von
og óvon. Flestir náðu þorska-
netunum í tæka tíð og hafa nú
þrír netabátar yfirgefið staðinn
til tímabundinnar vistar á
örðum landshornum þ.e. Sig-
þór, Aron og Kristbjörg. Rækju
vinnslan fær einhverja hvíld nú
þegar veiðiheimildir í Axarfirði
hafa verið fullnýttar. Hvenær
djúprækjuveiðar geta hafist, er
óráðið og kemur e.t.v. til með
að markast að nokkru af ísspöng
inni fyrir norðan. Þarna er um
töluvert stóra spurningu að
ræða viðvíkjandi atvinnu, sem
bætist við óvissu varðandi bol-
fiskveiðar. Síðasta tímann fyrir
ísrekið aflaðist nokkuð vel og
var nóg vinna í Fiskiðjuverinu.
Þar verður varla unnið af
miklum krafti fyrr en ísrekið
hverfur af heimaslóðum og
bátarnir koma aftur til að leggja
upp sinn afla. Nú um sinn gildir
hið fornkveðna, að eins dauði er
annars brauð. Togarinn Dagný
komst ekki fyrir Sléttu vegna íss
og í dag var landao hér um 90
tonnum og verður væntanlega
landað einhverju til viðbótar úr
togaranum á morgun. Landanir
Dagnýjar hafa verið nokkuð
umtalaðar um skeið vegna sam-
komulags um landanir á Þórs-
höfn, sem lítið hefur orðið úr,
en nú var ekki um gott að gera
og ófærð kemur í veg fyrir að
aflanum sé ekið austur. Rauði-
núpur kom inn til löndunar nú í
kvöld og er meiningin að aka
öllum aflanum til Raufarhafnar
eða amk. um 100 tonnum, sem
ekki er alveg ljóst ennþá að
komist.
Burthvarf báta frá höfnum
hér á þessu lanshorni er auð-
vitað geysilegt mál fyrir land-
verkafólk og fiskvinnslur á
svæðinu. Sýnist ýmsum að
þorskveiðibannið í kjölfar
veiðileysis af öðrum ástæðum
auki einungis á búsifjar manna í
þessum fjórðungi og væri slíkt
lítið réttlæti ef aðrir landshlutar
fengju forgang til að drepa
dýrmætasta hrygningarfiskinn,
svo loðnu og þorski verði etv.
eytt jafn snemma. R
Saumastofan
á Dalvík
Föstudaginn 30. mars kl. 21.00
frumsýnir Leikfélag Dalvíkur leik
ritið Saumastofuna eftir Kjartan
Ragnarsson í leikstjórn Guðrún-
ar Alfreðsdóttur. Æfingar hafa
staðið yfir síðan í byrjun febrúar.
í hlutverkum eru: Dagný Kjart-
ansdóttir, Guðný Bjarnadóttir,
Herborg Harðardóttir, Kristjana
Arngrímsdóttir, Sigríður Haf-
stað, Svanhildur Árnadóttir,
Helgi Þorsteinsson, Kristján
Hjartarson og Rúnar Lund.
Næstu sýningar verða á sunnu-
dag kl. 16.00 og þriðjudag kl.
BARÁ TTUSAMKOMA
i Samtaka herstöðvaandstœðinga i
m
I
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
v
I
■
I
■
I
i
■
I
í tilefni 30 ára veru íslands í NATO 30. mars nk. verður í Sjálf-
stæðishúsinu sunnudaginn 1. apríl kl. 15.00.
DAGSKRÁ:
Ræða: Tryggvi Gíslason skólameistari.
Frásögn: Jakobína Sigurðardóttir skáldkona.
Söngur: Hilmar Hauksson.
Leikþáttur og samlestur undir stjórn Svanhildar Jóhannesdóttur o. fl.
Hákon Leifsson og félagar flytja frumsamda tónlist.
Fundar8tjóri: Böðvar Guðmundsson. SHA Akureyri
Tryggvi.
Jakobína
Svanhildur.
Böðvar.
I
■
■
Sumir reyna á þolrifin á þyrsklingnum undir ís á Pollinum. Kettir
kætast í bænum og þrífast vel af fiskmetinu.
Dalvík:
Vomur á mönnum
Dalvík 27/3 Blaðam. hafði
samb. við Ingimar Lárusson
hafnarvörð á þriðjudag og innti
hann fregna af bátalífinu við
höfnina þessa dagana.
Sagði Ingimar að þrír bátar
væru farnir: Bliki og Búi til
Grindavíkur og Stafnsnesið
vestur á Rif. Þrír bátar lögðu
net sín aftur um helgina en
höfðu lítið upp úr krafsinu, tvö
til þrjú tonn hver. Minnstu bát-
arnir hafa ekkert lagt aftur síð-
an ísinn kom inn um daginn.
Það er hálfgerðar vomur á
mönnum meðan ástandið er
svona ótryggt. ísinn er það stutt
undan, að ekki þyrfti að blása
lengi að norðan og norðaustan
svo að hann ræki inn aftur,
sagði Ingimar. Grásleppukarlar
hafast ekkert að heldur. Annars
er ísinn alveg úr sjónmáli í bili;
aðeins einstaka smájaki á
stangli. Hrísey er líklega alveg
ALÞÝÐUBANDALAGID
Félagsfundur ABA
þriðjudaginn 3. apríl kl. 20.00 í Lárusarhúsi, Eiðsvalla-
götu 18.
FUNDAREFNI:
1. Deiliskipulag miðbæjar Akureyrar.
Helgi Guðmundsson kynnir tiliögur skipulagsnefndar.
Almennar umræður.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Notum þetta tækifæri til að
hafa áhrif á umhverfi okkar. STJÚRNIN.
orðin frí við ís líka, - amk. kom
ferjan hér í morgun. Að lokum
sagði Ingimar, að togarinn
Björgvin væri væntanlegur inn
næstu daga með 150-160 tonn.
Brynja.
Hörmulegt
slys
Það hörmulega vinnuslys
ivarð í Hrísey sl. fimmtu-
dag, að fjórtán ára gamall
drengur, Vilhjálmur Guð-
jónsson varð undir fiski-
kassastæðu og beið bana.
Vilhjálmur var sonur
hjónanna Valdísar Kristins
dóttur og Guðjóns Björns-
sonar fréttaritara okkar í
Hrísey. NORÐURLAND
sendir aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
^ Leiklistargyðjunni Þalíu á
Akureyri og Húsavík er
blótað á bls. 2 og 3
Sfí Sigmundur Rúnarsson
menntaskólanemi skrifar
um trúfrelsi í pistli bls. 5
*
Sagt frá baráttusamkomum
herstöðvaandstæðinga á
baksíðu
--------- ^