Norðurland - 29.03.1979, Qupperneq 3
UEIKL.IST
Hönnuðir leikmyndar nostra við listrænan svampskurð.
Líflegir grísir LMA
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri
Grísir gjalda, gömul svín valda:
BÖðvar Guðmundsson
Leikstjóri: Kristín Á. Ólafsd-
Leikmynd og búningar: Þor-
bergur Hjalti Jónsson og Helgi
Már Halldórsson
Tónlist: Sverrir Páll Erlendsson
og örn Magnússon.
Hin árlega listavika M.A.
stendur nú yfir. Meðal annarra
viðburða í vikunni er sýning
L.M.A. á leikritinu Grísir
gjalda, gömul svín valda eftir
Böðvar Guðmundsson, sem hef
ur skrifað það sérstaklega fyrir
L.M.A. og er leikrit þetta ein-
mitt skemmtilegt skólaverkefni.
Það er tragikomisk ádeila á
uppeldi barnanna okkar og
meðferð okkar og samfélagsins
á þeim, og auðvitað tileinkað
blessuðu barnaárinu. Leikstjór-
anum, Kristínu Á. Ólafsdóttur,
hefur tekist frábærlega að hafa
stjórn á þessum stóra hóp. f sýn-
ingunni taka þátt milli 30 og 40
nemendur og er næsta ótrúlegt
hversu heilsteypt hún er (ekki
síst vegna þess að hún byggist
ekki síður upp á action en hinu
talaða orði). Leikmynd, bún-
ingar, tónlist og lei’ ur falla eins
og flís við rass. Kristínu hefur
tekist að koma upp sýningu,
sem er fersk og full af lífi. Leik-
mynd og búningar Þorbergs
Jónssonar og Helga Halldórs-
sonar bera lærimeistara þeirra,
Messíönnu Tómasdóttur glöggt
vitni og er ekki leiðum að líkj-
ast.
Boðskapur verksins er e.t.v.
ekki nýr af nálinni, en svo sann-
arlega þarfur. Og maður
skemmtir sér konunglega . Er
sýningin með því betra sem sést
hefur í leikhúsinu okkar á þessu
leikári.
Hafið þökk fyrir.
Odda Margrét.
Heiðursborgarar Húsavíkur
SENDIR UT
Húsavík 27/3 Starfsárið 1978-
1979 er áformað sem starfs-
mesta ár Leikfélags Húsavíkur
til þessa. f sumar er meiningin
að ferðast með Heiðursborgara,
sem voru uppfærðir hér fyrir
áramótin til Danmerkur og
Svíþjóðar. Kostnaður við för-
ina er áætlaður ca. 2.5 miljónir
króna og hefur Norræni Menn-
ingarmálasjóðurinn veitt styrk
til fararinnar ásamt fleirum.
Ferðalagið er liður í samstarfi
Leikfélags Húsavíkur við leik-
félög á öðrum Norðurlöndun-
um í svokölluðum leikhúshring
B. Kostnaður við starfsemi
Leikfélags Húsavíkur þetta
starfsár verður því auðvitað
mjög mikill vegna aukinna um-
svifa. Þá svíður leikfélögum að
vonurn að greiða hærri upp-
hæðir í skatta en félagið hlýtur
til baka í formi styrkja, - eða
finnst nokkrum skynsemi í því
að nota slíka starfsemi að fé-
þúfu. Finnst mönnum sam-
kvæmni í því að áhugamanna-
félög fái engan fjárstuðning
meðan rétt þykir, að halda uppi
atvinnuleikhúsi við ærinn kostn
að. Mætti nú ekki áhugafólk
einhvers njóta, - ég spyr nú bara
si sona.
Benedikt.
/Z /3
V /7
H 3
Krossgáta
Rétt er að taka fram að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinar-
munur á breiðum sérhljóða og
grönnum, t.d. getur a aldrei
komið í stað á, og öfugt.
Lausnarorðið er nafn á
þekktum kirkjustað.
Fiðlarinn á Húsavík
Stórvirki á sviðinu
Fiðlarinn á þakinu fer væntan-
lega á fjalirnar föstudaginn 30.
mars. Æfingar hafa staðið yfir
frá því í janúar og verið geysi-
lega strangar. Verkið þarf
naumast að kynna. Það naut
mikilla vinsælda á sínum tíma í
Þjóðleikhúsinu. Höfundurinn
Joseph Stein sótti fiðlarahug-
myndina að einhverju leyti til
listmálarans Chagals og verka
hans. Chagal var gyðingur
fæddur í Suður Rússlandi og
fléttaði hann í verk sín svip-
myndir frá heimaþorpinu, sem
var trúlega eins og öll önnur
þorp þeirra staðar og tíma; með
fiðlara á þakinu.
Anatevka, þorp Tevjes mjólk
urpósts verður það sögusvið
sem áhugamenn um leikhús
geta staldrað við í samkomu-
húsinu á Húsavík næstu vikur.
Þetta verk er ótvírætt fyrir-
ferðarmesta leikrit sem Leik-
félag Húsavíkur hefur fengist
við. Þannig eru nafngreind
hlutverk 22 auk fjölda þorps-
búa. Alls koma á svið 36 manns
í sýningunni. Fjögurra manna
hljómsveit sér um undirleik, - og
þegár allir eru taldir, sem þurfa
að vera til staðar við hverja sýn-
ingu, er um að ræða 50 manna
hóp. Að undirbúningi hafa
starfað miklu fleiri beint og
óbeint; við búninga, leiksvið og
fleira, þannig að þátttakendur
eru minnst 70 fyrir utan þá sem
sitja heima og gæta bús og
barna. Mér er til efs að svo viða-
mikil sýning hafi verið uppfærð
af áhugamannaleikhúsi við svo
lítinn húsakost i það minnsta.
7% hafa ekki áður stigið á fjal-
irnar hér á Húsavík, svo að leik-
arahópurinn fer stækkandi.
Helstu hlutverk leika: Sigurður
Hallmarsson, Hrefna Jóns-
dóttir, Anna Ragnarsdóttir,
Sigrún Harðardóttir, María
Axfjörð, Árnína Dúadóttir og
Einar Njálsson. Leikmyndina
gerir Sigurður Hallmarsson í
anda Chagals, búninga annaðist
Helga Magnúsdóttir og er þar
geysi mikið verk unnið en lítið
eitt fengið að láni úr Þjóðleik-
húsinu. Förðun annast Stefanía
Ásgeirsdóttir, söng og tónum
stýrir Ingimundur Jónsson, leik
stjóri er Einar Þorbergsson
kennari. Einar hóf átta ára
gamall nám í listdansskóla og
síðan í Leiklistarskóla Þjóðleik-
hússins og lauk þaðan prófi
1972. Kom hann fyrst fram í
Þjóðleikhúsinu 1963 og lék ma.
fiðlarann í uppfærslu Þjóðleik-
hússins. Einar leikstýrði Ævin-
týri á gönguför á Fáskrúðsfirði
og skólasýningum þar á staðn-
um og á Borgarfirði Eystra
stýrði hann Skjaldhömrum,
Umhverfis jörðina á áttatíu
dögum og Þjófar, lík og falar
konur. Nú í vetur sviðsetti hann
Nýársnóttina með nemendum
Gagnfræðaskólans, svo hér
skortir Einar því ekki viðfangs-
efni.
Benedikt.
N0RÐURLAND
Ma.LGAGN SÓSlALISTA
I NORÐURLANOS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norð-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþraut Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
Iþróttir.
Félagarnir
Simmi og Sóli.
Norðurland
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári.
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500.
Sími 21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
Fróði rauði
landnámsmaður
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn: _______________________________________________
Heimili:
Póstnúmer: