Norðurland - 23.05.1979, Blaðsíða 4
Skýrsla utanrtkisráðherra:
NATO dekur
Benedikt Gröndal utanríkis-
ráðherra hefur lagt fram
skýrslu sína um utanríkismál
fyrir alþingi. Ekki getur hún
talist gleðiefni fyrir vinstri
sinna eða frjálslyndisöfl. Þar
er kjamsað á sömu afturhalds-
tuggunni og tíðkaðist í bur-
geisastjórn Bilderbergs-
Geirs.
Söguskoðunín er Penta-
gonsk og þjóðfélagsrýnin
gæti sem best hafa farið fram
í gegnum gleraugu Rocke-
fellers:
„Hinn 4. apríl voru liðin
30 ár frá stofnun Atlants-
hafsbandalagsins, en tilvera
þess hefur átt drjúgan þátt í
að tryggja frið í Evrópu á
þessu tímaskeiði. Þótt það sé
stuttur tími í sögu þjóða, er
vert að minnast þess, að
sjaldan hefur í sögu Evrópu
rikt svo langt friðarskeið."
Það þarf ekki að fjöiyrða
um friðarskeiðið við lesendur
þessa blaðs. Friðarskeiðið
hófst með köldu stríði:
„í tveim heimsstyrjöidum
á þessari öld hafa stórveldi
meginlandsins staðið annars
vegar, en stórveldi Atlants-
hafsins hins vegar. Óttast
var, að enn kynni að fara á
sömu leið. Til að koma í veg
fyrir það voru mynduð At-
lantshafsbandalagið og Var-
sjárbandaiagið. Milli þeirra
hófst „kallt stríð“, og oft á
tíðum virtist friður hanga á
bláþræði."
Gamli nasistinn, herra
Luns framkvæmdastjóri
Nató getur verið lukkulegur
með vinnubrögð og viðhorf
utanríkisráðherra síns Herra
Gröndais:
„Samtímis þessari skýrslu
gerð fór fram umfangsmikil
athugun á varnarþörfum
bandalagsins næsta áratug-
inn með hliðsjón af vaxandi
hernaðarmætti Sovétríkj-
Benedikt fetar stafkarlsstíg.
flaugum með kjarnorku-
vopnum. Þá hefur þýðing
landsins í eftirlitskerfinu
farið stöðugt vaxandi.“
Enda eru hér engin kjarn-
orkuvopn. Ekki kemur ann-
að til greina en taka þann
kost að vera í Nató. Gröndal
hefur fylgst náið með umræð-
um um Nató síðasta misserið
og dregið attaníossaálykt-
anir:
„I sambandi við 30 ára
afmæli Atlantshafsbanda-
' lagsins hafa verið umræður
um uppruna þess og þróun.
Hefur verið bent á aðra kosti,
sem þáttökuríkjunum hafa
staðið opnir, en engir þeirra
hefðu getað náð þeim
árangri, sem raun ber vitni.“
(Tilvitnanirnar eru úr
utanrikismálaskýslu Grön-
dals ráðherra, úr köflunum
um Atlantshafsbandalagið
og öryggismál)
anna á undanförnum árum
og fyrirsjáanlegri þróun í
þeim málum.“
Rússinn er að koma og
ekki veitir af að smyrja víg-
vélarnar:
„A grundvelli skýrslunnar
um varnarþarfir bandalags-
ins ákváðu varnamálaráð-
herra bandalagsríkjanna
endurbætur á ýmsum veik-
um hlekkjum í varnarkerf-
inu, m.a. varðandi viðbúnað
til sendingar liðsauka til
Evrópu á hættu- eða
styrjaldartímum.“
Þótt við íslendingar höfum
ekki örlög þjóðanna í hönd-
um vorum er það huggun
harmi gegn að:
„Þýðing íslands í þessu
kerfi hefur frá upphafi verið
mikii og byggist á samgöngu
leiðum á sjó og í Jofti. Þar við
hefur á síðari árum bæst, að
kafbátar eru nú búnir eld-
■
AÐALFUNDUR
KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA
verður haldinn í Samkomuhúsi bæjarins miðvikudaginn og fimmtudaginn
7. júní 1979.
Fundurinn hefst kl. 10 árdegis miðvikudaginn 6. júní.
DAGSKRÁ:
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins.
2. Skýrsla stjórnarinnar.
3. Skýrsla kaupfélagsstjóra. - Reikningarfélagsins. - Umsögn endurskoðenda.
4. Afgreiðsla reikninga og eftirstöðva innlendra afurðareikninga.
5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs.
6. Umræður um verslunarþjónustu samvinnuhreyfingarinnar.
7. Tillaga um formlega sameiningu Kaupfélags Eyfirðinga og Kaupfélags
Ólafsfjarðar.
8. Staðfesting á reglugerðarbreytingu fyrir Mjólkursamlag KEA, samkv.
samþykkt aðalfundar samlagsins þann 7. maí s.l.
9. Erindi deilda.
10. Önnur mál.
11. Kosningar.
Akureyri, 15. maí 1979.
STJÓRN KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA.
Obreytt ástand ncesta vetur
Lítil hreyfing
í skólamálum
Heldur hefur verið hljótt
um gang framhaldsskólamála
bæjarins undanfarið. Fram-
haldsskólanefnd skilaði grein-
argerð og fyrstu tillögum sín-
um um skipan framhaldsnáms
í náinni framtíð í janúar sl.
Bæjarstjórn fjallaði þá lítil-
lega um tillögurnar, og var
síðan leitað eftir áliti ýmissa
aðila skólakerfisins.
Alitsgerðir hafa nú borist frá
þessum aðiljum og sýnist þar
sitt hverjum. Vilja sumir fara sér
hægt og halda núverandi kerfi í
svipuðu formi fyrst um sinn,
þ.e. halda í meginskólana þrjá,
Menntaskóla, Gagnfræðaskól-
ann og Iðnakólann og stuðla að
meira samstarfi og samræmingu
þeirra í millum. Aðrir eru sömu
skoðunar og framhaldsskóla-
nefndin, þ.e. að hugsa strax til
breytinga i þá átt að á Akureyri
verði starfræktir tveir skólar á
framhaldsskólastigi. Hér er að
sjálfsögðu um stórt og mikil-
vægt mál að ræða, sem krefst
ítarlegrar skoðunar og umfjöll-
unar. Líta verður til þeirrar
þróunar sem nú á sér stað í
skólamálum landsmanna. í
frumvarpi til laga um sam-
ræmdan framhaldsskóla er
mörkuð ný stefna á þessu sviði.
Ekki er gott að segja til um
hvernig. frumvarp þetta kemur
til með að líta út þegar það
breytist í lög. Afgreiðslu þess á
því þingi sem nú er að ljúka,
tókst að tefja, svo enn skal bíða
boða landsfeðranna. í umfjöll-
un skólamála er hætt við að
gæti óhóflegrar tilfinningasemi
og hræðslu við hvers konar
breytingar og röskun á hefðum.
Hlýtur heillavænlegasta leiðar-
ljósið i ákvarðanatöku um þessi
mál að vera spurningin um það
hvernig skólakerfið geti helst
stuðlað að fjölhliða þroska
nemenda sinna. Hvernig er
hægt að aðstoða nemandann til
þess að finna þær menntunar-
brautir sem helst samsvara
áhuga hans og hæfileikum.
Astæða er til að vara við þeim
sjónarmiðum að nám sé fyrst og
fremst ef ekki eingöngu til að
•framleiða sem hæfasta og full-
komnasta starfskrafta fyrir at-
vinnuvegina.
En víkjum aftur að stöðu
framhaldsskólamála á Akur-
eyri. Á bæjarstjórnarfundi 22.
maí kom fram að ekki þykir
tímabært að taka ákvörðun um
hversu margir framhaldsskól-
arnir skuli vera á Akureyri.
Framhaldsskólanefnd er falið
að halda áfram störfum sínum í
samráði við fulltrúa skóla-
nefnda M.A., Gagnfræðaskól-
ans og Iðnskólans ásamt
fræðslustjóra Norðurlandsum-
dæmis eystra.
Unnið skal að því að samræma
námsefni skólanna þriggja eftir
því sem við verður komið og
auka samvinnu þeirra með
hliðsjón af hugmyndum um
samræmdan framhaldsskóla.
Jafnframt skal kanna hvort, og
þá hvenær, rétt þyki að nám
þessara skóla verði á einhvern
hátt sameinað.
káó
Kaupfélag Þingeyingœ
Aðalfundur Samlagsins
Aðalfundur Mjólkursamlags KÞ
var haldinn nýlega. Niðurstöðu-
tölur á rekstrarreikningi fyrir
árið 1978 var 1.282.176.000. kr.
Innlögð mjólk á árinu var að
verðmæti 749.800.000. kr. og
birgðir mjólkurvara við árslok
voru 428 milljónir.
Stærstu rekstrarliðir eru laun
um 70 milljónir og rekstur
bifreiða upp á 58 milljónir.
Innlagt mjólkurmagn á síðasta
ári var 787 þús. lítrar og er það
Leikfélag
Akureyrar
Skrítinn fugl -
ág sjálfur
eftir
Alan Ayckbourn.
Þýðandi:
Kristrún Eymundsdóttir.
Leikstjóri:
Jill Brooke Árnason.
Leikmynd:
Hallmundur Kristinsson.
Frumsýning föstudag
kl. 20.30.
2. sýning laugard. kl. 20.30.
Gul kort gilda.
3. sýning sunnud. kl. 20.30.
Græn kort gilda.
Aðgöngumiðasalan er opin
daglega frá kl. 17-19 og kl.
17-20.30 sýningardagana.
Sími 24073.
aukning um 29 þús. lítra frá
næsta ári á undan, eða 3.86%.
Innleggjendum hefur fækkað úr
186 1977 í 170 1978. Breytingár
á innlögn pr. innlegjanda á
síðustu árum hafa orðið veru-
legar, eða úr 24.471 lítra á
innleggjanda 1972, í 46.300 lítra
á innleggjanda 1978. Þarna er
um nærri tvöföldun að ræða á
meðal búi á þessu árabili.
Þróunin að öðru leyti hefur
verið á þá lund, að um leið og
innleggjendum fækkar, má gera
ráð fyrir að innleggsmagnið eftir
hvern grip hafi vaxið. Þó eru
það tæpast algild sannindi því
að á árunum eftir 1970 hefur
ekki orðið veruleg aukning á
innleggsmagni á grip yfirieitt.
Myndun mjólkurverðsins á síð-
asta ári þ.e.a.s. heildar iítraverð
til bænda eru 135 kr. 56 aurar
og þar af er útborgað mánaðar-
iega 95 kr. og 26 aura og í
sjóðagjöld fara nokkrar krónur,
en flutningsgjald er 7 kr. 37
aurar og eftirstöðvar sem ekki
eru greiddar út á árinu eru 25 kr.
73 aurar á hvert kg. Flokkun
mjólkurinnar var með þeim
hætti að 99,3% fóru í fyrsta
flokk en afgangurinn í annan og
þriðja flokk. Skipting fram-
leiðslunnar hjá Mjólkursamlag-
inu var þannig að seld nýmjólk
var 1.256.000. lítrar. Annað
mjólkurmágn fór til vinnslu,
þar af vegur ostaframleiðslan
þyngst. Það eru framleiddir
Óðalsostur, 45% ostur, og 30%
ostur og Port salute ostur og
Tilsetter. Megin hlutinn fór í
þessa vinnslu. Örlítið er fram-
leitt af Kaseini og 118.000. kg.
af smjöri.
4 - NORÐURLAND