Norðurland - 23.05.1979, Blaðsíða 5
IÞWÓTTIWM Einar 1
Blœs byrlega í 2. deildinni:
Þór tvístraði liði Austra
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
□ □
□
□
□
□
flugáhugamenn
Það var leikur kattarins að
músinni á laugardaginn er áttusl
við í 2. deild knatspyrnunnar
Þórsarar frá Akureyri og Eskfirð
ingar. Fimm sinnum varð mark-
vörður Austra frá Eskifirði að
þrífa knöttinn úr möskvum nets-
ins. í sárabót tókst þeim Eskfirð-
ingum að læða tuðrunni tvisvar
sinnum inn í mark Þórsaranna.
Það leyndi sér ekki hvor
aðilinn var betri í leiknum.
Hinir knáu Þórsarar marg-
styrktir af þrautþjálfuðum að-
komumönnum í liðinu voru eins
og birnir í vörninni og orustu-
þotur í sókninni. Sérdeilis þótti
Húsvíkingurinn Hafþór Helga-
son gera usla eins og hafísjaki í
netum Eskfirðinga. Hafþór
spyrnti knettinum þrisvar sinn-
um í mark Austradrengja.
Tvisvar sinnum á fjórum mínút-
um fauk knötturinn af Hafþórs
fótum í mark. Það var því ekki
nema von að áhorfendur spyrðu
hvort hér færi maður eða MIG
orustuþota. Annars var gangur
leiksins í stuttu máli sá, að seint í
fyrri hálfleik skoraði Björn
Austri Árnason sjálfsmark
þannig að Þór fékk eitt mark
fyrir lítið. Sigurbjörn Marinós-
son jafnaði ,fyrir Austra
skömmu síðar. í síðari hálfleik
komst Austri yfir með fimlegri
spyrnu Bjarna Kristjánssonar.
Þá hófst Hafþórs þáttur Helga-
sonar, sem fyrr er getið. Hann
og Guðmundur Skarphéðins-
son áttu næstu Qögur mörk.
Leiknum lauk því með sigri
Þórs 5 gegn 2. Hér með hefja
Þórsarar stranga göngu sína
upp stigatöflu annarardeildar, -
hver veit í hvaða deild þeir
dansa næsta vor.
Stefnubreyting
brýn
Framhald af bls. 3.
4
sandreyðarnar og búrhvalirnir
eiga að sjást gista hafsvæðin hér
við land á hverju sumri fram-
vegis. Ef allt talið fyrr og núna
um vernd auðlinda hafsins á
ekki að flokkast undir tómt hjal
- hvernig væri þá núna að veita
hvölum, sem eru mikilvægur
þáttur í vistkerfi hafsins, og
hafa þar að auki margt annað
sér til ágætis, athygli og raun-
verulega vernd - áður en það er
um seinan?
Það þarf alveg greinilega að
skipa íslenska sendinefnd á 31.
ársfund Alþjóða Hvalveiði-
nefndarinnar, sem saman-
stendur af nýju fólki ótengdu
fyrri stefnu og ekki síst, alger-
lega óháð sér- og stundarhags-
munum íslenskra hvalveiða. En
varla er hægt að segja að svo
hafi verið hingað til, þar sem einn
eigandi Hvals hf. hefur verið
ráðgjafi íslenska fulltrúans hjá
IWC. Það mundi einnig vera í
fullkomnu samræmi við þróun-
ina í kringum okkur ef fulltrúi
frá íslenskum náttúruverndar-
samtökum fengi sæti í sendi-
nefnd ísland.
Núna er allt útlit fyrir að
margar ríkisstjórnir innan IWC
og mörg sterk náttúru- og
hvalverndunarsamtök utan
þess munu setja 10-ára bann við
„commercial" hvalveiðum á
oddinn á sumri komanda. Það
borgar sig að taka þessa stað-
reynd til greina nú þegar.
Ole Lindquist
17. maí 1979.
□
□
□
□
a
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
Þótt vorið láti á sér standa erum við teknir til við flug-
kennsluna af fullum krafti.
Splunkuný kennsluflugvél og reyndur flugkennari
ávallt til reiðu.
Athugið að engan sérstakan undirbúning þarf fyrir
fyrsta flugtímann.
fluqfélaq
nordurlands hf.
Akureyrarflugvelli - Sími 21824
□
□
□
□
n
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
RISTIL.L
VIKUNNAR
uglýsið
Nú er hart í ári
og þröngt í búi
hjá smáfuglunum
Rúmur mánuður er liðinn af sumri og enn sitja þjóð-
kjörnar hetjur á þingsteinum. Þar sem enn er einungis
sumar á almanakinu eru bændur ekki búnir að sleppa
kúm, enn er ekki heldur búið að hleypa út alþingiskún-
um. Það er nú líka von, því þær eru flestar óbornar þeim
kálfum sem þjóðin vænti sér til búsílags í vor þegar hún
valdi til ásetnings yfir veturinn. Eipstöku bráðræðis-
bændur vilja þó fara að sleppa á guð og gaddinn hvað
sem tautar og raular. Það eru helst kratar sem sýna
forsjálni og treysta ekki á vorkomuna strax. Mikil bót í
máli er það nú samt að vita, að jafnvel þótt enn snjói til
muna í byggð eru forystusauðirnir vel búnir að farar-
tækjum, og sumir hverjir eiga jafnvel von á enn kraft-
meiri snjóferjum, bleiserum og ég veit ekki hvað. Sér-
staklega snjöll er sú ákvörðun ýmissa alþýðuforingja
að vera nú ekkert að græða á bílakaupunum, heldur
láta almenning borga undir rassinn á sér rándýr og
bráðnauðsynleg farartæki. sem ganga ekki einu sinni
fyrir bensíni mörg hver heldur grænum baunum. Það
hefði ekki verið fallegt til afspurnar ef ráðherrar Al-
þýðubandalagsins hefðu nú notað sér sömu forrétt-
indi og forsætisráðherra og keypt sjálfir sína farkosti.
Ætli fylgið hefði ekki hrunið af þeim í næstu kosning-
um. Hitt er bæði lofsvert og glæsilegur vottur um al-
þýðleik þessara manna að þeir láta mig og þig kaupa
bílinn fyrir sig, - og vita ekki einu sinni hvers konar
farkost þeir hafa pantað. Það er auðvitað alveg hroða-
legt að geta svona í einu vetfangi grætt tveggja ára
blóðpeninga verkamannakaupsins, slfkt má ekki henda
alþýðuforingja. Þetta henti nokkra ráðherra í fran á
dögum hins sæla keisara og nú er verið að skjóta þá í
óða önn. Nei, lofum það sem lofa ber, bíll á ríkisins
kostnað undir ráðherrabotninn, það erframtíðin. Auð-
vitað eiga ráðherrar líka mun erfiðara með að kaupa sér
bíla sjálfir en allur þorri almennings, þeir eru nú ein-
ungis launafólk, og þrjú prósent hækkunin sem þeir
fengu á dögunum nemur nú ekki einu sinni fullum
verkamannslaunum. Svo er það Ifka alkunna, að ráð-
herrar þurfa að vera á stöðugum þeytingi fram og aftur,
milli stjórnarráðs og Alþingishúss og stundum þurfa
þeir jafnvel að komast heim til sín, og allir sjá það í
hendi sinni að ekki eru strætisvagnar Reykjavíkur
sniðnir fyrir þá. Nú svo er það llka alkunna, að ekki er
hægt að láta ráðherra ganga meiren góðu hófi gegnir,
þeas. ef út úr þeim á að fást sæmileg nýting, því fáir
menn, - ef ætla má af fréttum, - eiga þyngri spor milli
vandamálanna.
Svo eiga ráðherrar í ýmsum örðugleikum sem sjald-
an er hreyft við. Td. þurfa þeir að sitja og halda veislur
með alls kyns fyrirfólki, stundum skilja þeir ekki einu
sinni almennilega hvað það er að segja og verða þá að
brosa samþykkjandi á hverju sem gengur. öll þessi
veisluhöld eru auðvitað alveg rándýr, þótt þeir fái
auðvitað einhverja risnu, mannavesalingarnir. Svo
verða þeir að klæðast glerfínum fötum, föðurmorð-
ingjum og ég veit ekki hvað og þau kosta nú skilding-
inn. Ekki hefðu ráðherrar Alþýðubandalagsins getað
tekið á móti honum Mendal með sixpensara í höndun-
um nýstignir út úr trabantinum, það er nú alveg morg-
unljóst, enda um einn helsta vin íslensku þjóðarinnar
að ræða og frænda hennar í þokkabót, afkomanda
Björns bunu og Ketils hersis í Sogni, sem flestir fslend-
ingar rekja ætt sína til. Það er því tillaga mín hér og nú,
að stóraukið verði við viðurgjörning ráðherra, og alveg
sérstaklega þeirra sem eiga til fátækra að telja. í því
skyni vil ég leyfa mér að leggja fram eftirfarandi til-
lögur:
1) Allir ráðherrar fái minnst tvo bíla í ríkiseign til um-
ráða, eina límúsínu til sumaraksturs með tigna gesti á
Þingvöll. Þarf að vera rykþétt, - og bleiser til vetrar-
ferða milli vandamálanna.
2) Nokkra alfatnaði, td. kjólföt, svört jakkaföt og
smóking til venjulegra ráðherrastarfa, svo sem al-
þingissetu, veisluhalda og glæsilegsfjölskyldulífs. Auk
þess viðeigandi þjóðbúning til að klæðast á opinberum
ferðum til Asíu, Afríku og annarra framandi staða.
3) Að þeir fái að velja ákveðinn góðfisk úr afla hvers
báts sem leggur upp, svo sem heilagfiski, skötusel,
steinbít, rauðmaga og þess háttar.
4) Sérhver ráðherra fái daglega ókeypis læknisþjón-
ustu sökum þess stress sem á þeim liggur við að láta
enda ná saman á mánaðarkaupi sínu, - auk þess maga-
speglun og úthreinsun eftiraðra hverja veislu sem þeir
þurfa nauðugir viljugir að sitja.
5) Að lokum þarf svo vart að geta um þann sjálfsagða
greiða eða fyrirgreiðslu sem þeir eiga að njóta við alla
aðra opinbera þjónustu, þeir eiga til dæmis að fá
ókeypis afnot af síma, frímiða í flugvélar, rútubíla og
strætisvagna og helst 12 pör af skóm á ári því oft vill
svo verða að þeir þurfa að ganga sín þungu spor einir
og sjalfir úr ríkisbílunum inn í ráðuneytin.
Og svo er það sjálfsögð krafa allrar þjóðarinnar, að
alþingismönnum verði ekki sieppt út fyrr en örugglega
eru komin græn grös og kýrnar almennt farnar að
græða sig á túnum úti.
JNorðurlandi
ÚRIMATÖ
HERINN BURT
Helgi
Olafsson
Skákþrautin
Lausn síðustu þrautar var á
þessa leið:
1. Bg2!
A: 1. - Kb5 2. De8+ Dxe8 3. Rd6
mát.
B: 1. - Re2 2. Kel!
C: 1. - Rh3 2. Bf3!
Þraut vikunnar er á þessa leið:
- Hvítur ieikur og vinnur.
NORÐURLAND - 5