Norðurland - 22.11.1979, Side 1
NORÐURIAND
4. árgangur
Fimmtudagur 22. nóvember 1979
29. tölublað
3.5 milljarða niðurskurð-
ur í NLkjördæmi eystra
11
11
11
11
'i
::
«>
«>
•>
s
s
'»
' >
Tíundi hluti landsmanna býr í þessu kjördæmi. Sjálfstæðis-
flokkurinn boðar 35 milljarða niðurskurð á fjárveitingum
ríkisins. Tíundi hluti niðurskurðarins hlýtur að bitna á íbúum
þessa kjördæmis.
Hvar á niðurskurðurinn að koma fram?
Sjúkrahús?
Hafnargerð?
Vegaframk v æmdir?
Skólabyggingar?
Ellistyrkur?
örorkubætur?
Kjósendur verða að heimta svör af hinum tvfeinu
frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins. - Þeir verða einnig að
krefjast hreinna og ótvíræðra svara af frambjóðendum
FRamsóknarflokksins og Alþýðuflokksins um það hvort
þeir muni undir nokkrum kringumstæðum mynda stjórn
y með Sjálfstæðisflokknum að kosningum loknum.
m Af hálfu Alþýðubandalagsins hafa þegar verið gefin skýr
% svör. Af þess hálfu kemur aðeins til greina myndun vinstri-
h stjórnar, en stjórnarandstaða að öðrum kosti.
Jm aðra helgi verða þingkosn-
ingar. Þá ræðst það hvort
mynduð verður vinstristjórn að
forgöngu Alþýðubandalagsins
eða hægristjórn undir forystu
Sjálfstæðisflokksins. Hvorugur
þessara flokka fær hreinan
meirihluta í kosningunum.
Hvor um sig þarf atfylgi Fram-
sóknarflokks eða Alþýðu-
flokks, eða hugsanlega beggja
þessara flokka til stjórnarmynd-
unar. Þessir tveir hlaupakettir
íslenskra stjórnmála taka mið
af því við ákvörðun um stjórnar
myndun hvort þeim virðist
straumurinn liggja til hægri eða
vinstri. Slíkt er eðli þeirra. Með
því einu móti að efla Alþýðu-
bandalagið í þessum kosning-
um geta kjósendur látið uppi
þann vilja sinn svo að mark
verði á tekið, að mynduð skuli
vinstristjórn að kosningum lokn
um. Sá kjósandi sem styður
Framsóknarflokkinn leggur
ekki lóð sitt á vogarskálarnar
milli vinstri og hægri. Hann
veitir aðeins Framsóknarforýst-
unni umboð til þess að standa
að stjórnarmyndun hvort held-
ur til hægri eða vinstri eftir því
sem henni þykir henta.
Forystumenn Framsóknar-
flokksins gefa ekki skýr svör við
því, þótt eftir sé gengið, hvers
konar stjórn þeir hyggist mynda
að kosningum loknum. Þeir
segjast að vísu munu reyna
myndun vinstristjórnar fyrst -
en hvað reyna þeir þá næst? Þeir
gáfu sömu svör fyrir kosning-
arnar 1974 og bættu því þá við
að énginn hygginn maður léti
sjá á spilin sín. Þá var Ólafi
Jóhannessyni falið að gera
tilraun til myndunar vinstri-
stjórnar en hann afhenti Geir
Hallgrímssyni umboð sitt.
Raunar myndaði Ólafur þá
ríkisstjórnina fyrir Geir Hall-
grímsson.
Vinstristjórn hefur ekki verið
mynduð á landi hér nema að
loknum kosningasigrum Al-
þýðubandalagsins. Þeir félags-
hyggjufólk hefur tekið upp á því
að efla Framsóknarflokkinn í
Alþingiskosningum hefur hann
undirtekningarlaust farið með
vinninginn til Sjálfstæðis-
flokksins. Framsóknarflokkur-
inn er í eðli sínu tvíkynja. Annar
eðlisþátturinn mótast af hags-
munum forstjóranna hjá SIS,
sem falla mætavel áð sjónar-
miðum heildsalastéttar Sjálf-
stæðisflokksins. Hinn þátturinn
er snúinn úr félagshy ggju vinstri
sinnaðra kjósenda, sem eiga
samleið með verkalýðshreyfing-
unni og Alþýðubandalaginu.
Um þessar andstæður myndast
svo, að Ioknum hverjum þing-
kosningum dálítill kjarni
óljósra pólitískra markmiða
gæddur sterkri hvöt til stjórnar-
þáttöku og þar af leiðandi þeim
eiginleika að dragast þangað
sem aflið er fyrir.
Vinstristjórn dregur beinlínis
nafn sitt af því að Alþýðubanda
lagið hefur fengið afl til þess að
draga Framsóknarflokk og Al-
þýðuflokk til samstarfs um
myndun hennar. Hægristjórn
fær af því nafnið að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur megnað að
draga Framsóknarflokk eða Al-
þýðuflokk til samstarfs við sig.
Þessir tveir flokkar hafa í raun-
inni ekki pólitískan vilja heldur
bjóða sig fram sem mjög svo
hreyfanlee lóð á vogarskálarn-
ar til vinstri og hægri eftir því
hvernig kaupin gerast á eyrinni.
f Norðurlandskjördæmi
eystra er vilji þorra kjósenda sá
að mynduð verði ný vinstri-
stjórn. Til þess að tryggja að
þessháttar stjórn verði mynduð
en ekki annars konar, verða þeir
að kjósa Alþýðubandalagið.
Einungis lítilsháttar atkvæða-
aukning nægir til þess að Al-
þýðubandalagið fái tvo menn
kjördæmakjörna. Nú er ljóst að
klofningsframboð Jóns Sólness
hlýtur að fella annan mann
Sjálfstæðisflokksins frá kjöri.
Fylgishrun Alþýðuflokksins
hér í kjördæminu er meira en
hinir bjartsýnustu vinstrimenn
þorðu að gera sér vonir um. Ef
svo færi að styrkleikahlutföll
leyfðu, og við fáum afl til þess
að knýja Framsóknarflokkinn
til vinstrasamstarfs þá mun
Alþýðubandalagið mynda
stjórn með honum einum.
Stefán Jónsson.
Fram til sigurs
vinstri menn
BARÁTTUFUNDUR
Alþýðubandalagið á Akureyri boðar til baráttufundar
þriðjudaginn 27. nóv. kl. 21 í Alþýðuhúsinu.
Sjá nánar á síðu 2.
f
Munið sameiginlegu fundina
Húsavík: Föstudaginn 23. nóv. í Félagsheimilinu kl. 21.
Dalvík: Sunnudaginn 25. nóv. í Víkurröst kl. 15.
Ólafsfjörður: Mánudaginn 26. nóv. í Tjarnarborg kl. 21.
Akureyri: Fimmtudaginn 29. nóv. í Sjálfstæðishúsinu kl. 21.
Stuðningsmenn G-listans fjölmennið.
Kosningasjóður
Þrátt fyrir góða viðleitni og dyggan stuðning biður
kosningasjóður þig um hjálp félagi góður. Enn vantar
mikið á að endar nái saman. Um leið og styttist I kosn-
ingabaráttuna minnkar í sjóðnum okkar. Félagar
komið í Eiðsvallagötu 18 og látið fé af hendi rakna í
kosningasjóðinn.
Opið hús - Vinnufundur
Á laugardaginn 24. n.k. verður Alþýðubandalagið með opinn
vinnufund á Eiðsvallagötu 18. Nú ríður á að fá fólk til starfa því
nóg er að starfa. Mætið á vinnufundinn á laugardaginn kl. 14.
Kaffí og meðlæti á staðnum.
Kosningaskrifstofan er á Eiðsvallagötu 18.
Síminn er 25975. Kosningastjórinn er Amar Bjömsson.
Lítið við á skrifstofunni og segið fréttir og spyrjist frétta.
Munið símanúmerið 25975.
Happdrættí Þjóðviljans
Nú er lokið útsendingu miða í Happdrætti Þjóðviljans 1979.
NORÐURLAND sér um rekstur þess hér í kjördæminu eins
og áður hefur komið fram og þiggur í sinn hlut ágóðann á móti
Þjóðviljanum. Þeir sem fengið hafa miða senda eru beðnir að
gera skil sem fyrst á skrifstofu NORÐURLANDS, Eiðs-
vallagötu 18 eða hjá umboðsmönnum á hverjum stað. Þeor
eru:
Ólafsfjörður: Agnar Víglundsson, Kirkjuvegi 18
Dalvík: Hjörleifur Jóhannsson, Stórhólsvegi 3
Hrísey: Guðjón Bjömsson
Húsavík: Snær Karlsson, Uppsalavegi 29
María Kristjánsdóttir, Árhóli 8
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson
Þórshöfn: Arnþór Karlsson
Akureyri: Skrifstofa NORÐURLANDS, Eiðsvallagötu 18
Dregið verður 1. desember.
Umboðsmenn G-listans
í Norðurlandskjördæmi eystra
Ólafsfjörður: Agnar Víglundsson, Kirkjuvegi 18, sími 62297.
Dalvík: Jóhann Antonsson, Sognstúni 4, sími 61460.
Hrísey: Guðjón Bjömsson, Sólvallagötu 3, sími 61739.
Mývatnssveit: Sigurður Rúnar Ragnarsson, Helluhrauni 21, sími 44136.
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Læknisbústaðnum, sími 51125.
Kópasker: Guðmundur Örn Benediktsson, Hvoli, sími 52112.
Þórshöfn: Henrý Már Ásgrímsson, Lækjarvegi 7, sími 81217.
Húsavík: Kosningaskrifstofa G-listans er í Snælandi, sími 41898. Kosningastjórar eru
Þorkell Bjömsson, sími 41743, og Kristján Pálsson, sími 41139.
Umboðsmaður G-listans á Húsavík er Helgi Bjarnason, Ásgarðsvegi 16, sími 41357.
Stuðningsmenn listans eru hvattir til að gefa sig fram til starfa.
Starri í Garði skrifar: Pistilinn skrifar Bragi Halldórsson Um byggingamál
Fékkstu þér Tropi- Jón Ólafsfirði FSA eftir
cana í morgun? Aðalsteinsson um málefni fatlaðra Ólaf Sigurðsson
bls. 2 bls. 7 • bls. 3 opna
Gerist áskrifendur að Norðurfandi