Morgunblaðið - 12.11.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 12.11.2009, Síða 1
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 íþróttir Sorg Þjóðverjar eru harmi slegnir eftir fráfall landsliðsmarkvarðarins í fótbolta. Robert Enke hafði glímt við þunglyndi í sex ár. Vildi ekki opinbera veikindin vegna ættleiddrar dóttur. 4 Íþróttir mbl.is Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ,,ÞAÐ er allt orðið klappað og klárt og ég skrifa undir nýjan tveggja ára samning um helgina,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska úr- valsdeildarliðsins Kristinastad, við Morgunblaðið í gær. Elísabet, sem náði frábærum ár- angri með kvennalið Vals, tók við þjálfun Kristinstad fyrir tímabilið og gerði samning sem gilti út leiktíðina. Undir hennar stjórn tókst Kristian- stad að halda sæti sínu í úrvalsdeild- inni en útlitið var ekki gæfulegt hjá liðinu framan af. Kristianstad tapaði fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni en gengi þess var gott síðari hluta tímabilsins og það endaði mótið í 10. sæti með 18 stig. Elísabet vonast eftir því að halda stærstum hluta hópsins en þó er ljóst að Hólmfríður Magnúsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik með lið- inu þar sem hún er á leið í banda- rísku atvinnumannadeildina. Guðný Björk Óðinsdóttir og Erla Steina Arnardóttir verða um kyrrt en óvíst er hvað verður um Margréti Láru Viðarsdóttur. Nokkur félög hafa rætt við hana og boðið henni samning, félög í Svíþjóð, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Elísabet var innt eftir viðbrögðum við komu landsliðsmarkvarðarins Þóru B. Helgadóttur í sænsku úr- valsdeildina en eins og Morgun- blaðið greindi frá fyrr í vikunni hef- ur hún gert þriggja ára samning við LdB Malmö. ,,Þetta eru frábær skipti hjá Þóru. Hún er að fara í virkilega gott lið og með hana innanborðs þá held ég að Malmö vinni deildina á næsta ári,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir. Elísabet sem- ur á ný við Kristianstad  Skrifar undir nýjan tveggja ára samning  Guðný og Erla áfram Morgunblaðið/hag Kyrr Elísabet Gunnarsdóttir verður áfram hjá Kristianstad. LJÓST er að Fram- arar geta ekki stillt upp sínu sterkasta liði þegar þeir sækja Val heim í N1-deild karla í handknattleik á sunnudag. Línu- maðurinn Haraldur Þorvarðarson og hornamaðurinn efni- legi, Einar Hrafn Eiðsson, verða frá keppni næstu fimm vikurnar hið minnsta vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í við- ureign Fram og HK í síðustu viku. Haraldur reif vöðva í öðrum kálf- anum og Einar Hrafn er hand- arbrotinn. Ósenni- legt er talið að þeir verði meira með Fram fyrr en á nýju ári gangi þetta eftir. Magnús Stef- ánsson rotaðist í leiknum við HK og fékk heilahristing. Hann hefur ekkert mátt æfa síðan en getur hugsanlega verið með á æfingu á föstudag, að sögn Viggós Sigurðssonar, þjálf- ara Fram. Óvíst er um þátt- töku Magnúsar í fyrr- greindum leik við Val. Rúmeninn er farinn Þá hafa forsvarsmenn Fram leyst rúmenska mark- vörðinn Zoltán Majeri undan samningi. Hann kom til liðs- ins í september en hefur ekki reynst sá liðsauki sem vænst var. Majeri mun vera á leið til liðs á Spáni. iben@mbl.is Lið Framara hefur orðið fyrir talsverðri blóðtöku Magnús Stefánsson LJÓST er að körfuknatt- leikslið FSu teflir ekki fram öflugum leikmannahópi gegn Snæfelli í úrvalsdeild karla annað kvöld. Nokkrir leik- menn eru horfnir á brott vegna agabrota en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er um 5-6 leikmenn að ræða og þar á meðal munu vera allir fjórir Englendingarnir sem hafa spilað með því. Einn bandarískur leikmaður spilar með FSu og hann mun vera áfram hjá félaginu. Brynjar Karl Sigurðsson, forsvarsmaður FSu og mað- urinn á bak við körfubolta- akademíuna á Selfossi sem leggur grunninn að liðinu, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Brynjar sagði að gefin yrði út yfirlýs- ing þegar allir málavextir væru endanlega á hreinu, væntanlega í dag eða kvöld. FSu, sem leikur undir merkjum Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, tekur nú þátt í Íslandsmóti meist- araflokks í fjórða sinn. Liðið var stofnað árið 2006 og fékk þá strax inngöngu í 1. deildina. Þar lék það í tvö ár og vann sér úrvalsdeildarsæti vorið 2008. FSu endaði í 10. sæti úrvals- deildarinnar í fyrra og er því áfram þar í vetur. Í haust hefur lítið gengið hjá liðinu. Það hefur tapað fyrstu fimm leikjunum og virtist eiga afar erfiðan vetur framundan, áður en agamálið kom upp. Reikna má með því að ungir piltar úr körfuboltaakademíu FSu fylli í skörðin, a.m.k. til að byrja með. vs@mbl.is Kjarni úr liði FSu horfinn á braut vegna agabrota Morgunblaðið/Árni Sæberg Slagur Keppnin í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik er gríðarlega jöfn, að öðru leyti en því að KR náði fjögurra stiga forystu í gærkvöld. Aðeins fjögur stig skilja að hin sjö liðin í deildinni. Grindavík lagði Val, 60:48, að Hlíð- arenda og hér fær Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindvíkingur, óblíðar móttökur hjá Hrund Jóhannsdóttur í Val. | 2-3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.