Morgunblaðið - 12.11.2009, Side 3

Morgunblaðið - 12.11.2009, Side 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Ekkert lát erá sig- urgöngu Björg- vins Páls Gúst- avssonar og félaga í Kadet- ten í svissnesku A-deildinni í handknattleik. Í gær unnu þeir Suhr, 38:26, á útivelli og sitja í efsta sæti með fullt hús stiga eftir 11 umferðir.    Arnór Atlaason skoraði tvö afmörkum FCK þegar liðið vann öruggan sigur á Team Tvis Holstebro, 34:26, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik í gær. FCK er í fjórða sæti.    GOG, liðið sem Guðmundur Þ.Guðmundsson þjálfar, tapaði í gærkvöldi fyrir Århus GF, 24:23, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú af mörkum GOG.    Vignir Svav-arsson skoraði þrjú marka Lemgo og var einu sinni vísað af leikvelli þegar liðið vann Melsungen, 31:28, á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Logi Geirsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla í öxl og lék því ekki með Lemgo að þessu sinni. Lemgo stökk upp í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar með sigrinum.    KA/Þór er komið í átta liða úr-slitin í bikarkeppni kvenna í handknattleik eftir stórsigur á Víkingi, 36:13, á Akureyri í gær- kvöld. Unnur Ómarsdóttir skoraði 7 mörk fyrir KA/Þór, Martha Her- mannsdóttir og Ásdís Sigurð- ardóttir 6 hvor. Anna María Björnsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Víking.    Sindri Þór Jakobsson sundmað-ur úr ÍRB, varð í 32. sæti af 51 sem lauk keppni í 100 m flug- sundi á heimsbikarmóti í 25 m laug í Stokkhólmi í gær. Sindri kom í mark á 53,59 sekúndum. Ís- landsmet Arnar Arnarsonar í greininni er 52,53 sekúndur. Mich- ael Phelps varð 11. í greininni og komst ekki áfram.    Bandaríska sundkonan JessicaHardy bætti í gær eigið heimsmet í 50 metra bringusundi á mótinu í Stokkhólmi. Hardy synti á 28,96 sekúndum en gamla metið, sem hún setti í Moskvu síð- astliðinn laugardag var 29,36 sek. Fólk sport@mbl.is „MITT lið sýndi mikinn styrk með því að knýja fram sigur. Við unnum þetta á vörninni eins og oft áður, ef okkur tekst að halda mótherjunum í 50 stig- um höfum við efni á að sóknarleik- urinn sé kaflaskiptur og þannig var þetta í kvöld,“ sagði Benedikt Guð- mundsson, þjálfari kvennaliðs KR í körfuknattleik, við Morgunblaðið í gærkvöld. KR lagði Hamar að velli, 62:51, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Hveragerði og náði fjögurra stiga for- ystu í deildinni. KR er eina liðið með fullt hús stiga en Hamar er áfram í öðru sæti þrátt fyrir tapið. „Okkur vantaði bæði Jenny Pfeif- fer-Finora, og Heiðrúnu Kristmunds- dóttur. Þar með þurfti Hildur Sigurð- ardóttir að spila allan leikinn en það gekk upp og stúlkurnar kláruðu þetta með sóma,“ sagði Benedikt. Margrét Kara Sturludóttir skoraði 23 stig fyrir KR og Hildur 15, og Signý Hermannsdóttir tók 15 fráköst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var at- kvæðamikil gegn sínum gömlu fé- lögum í KR en hún skoraði 13 stig fyr- ir Hamar og tók 14 fráköst. Njarðvík vann í framlengingu Njarðvík lagði Hauka að velli, 95:80, í framlengdum leik eftir að hafa átt undir högg að sækja allan tímann. Haukar náðu mest 14 stiga forskoti í seinni hálfleik en Njarðvíkingar, með Shantrell Moss í aðalhlutverki, söx- uðu á það jafnt og þétt og Ólöf Helga Pálsdóttir náði að jafna metin, 76:76, með þriggja stiga skoti þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Þegar framlengingin var hálfnuð stóð 80:79 fyrir Njarðvíkurkonur, sem tóku síðan öll völd á vellinum og skor- uðu 15 stig gegn aðeins einu á loka- kaflanum. Moss skoraði 45 stig í leikn- um, tók 17 fráköst og hitti úr 17 af 18 vítaskotum sínum. Hún vann einvígið við hina öflugu Heather Ezell í liði Hauka, sem skoraði 36 stig og tók 11 fráköst.  Grindavík komst að hlið Hauka í þriðja til fjórða sæti með því að vinna Val, 60:48, á Hlíðarenda. vs@mbl.is „Unnum þetta á vörninni“ marka- n með sjö elenje frá vrópu í ð var í Eu- um aðeins Ólafur N Löwen st- loknum kki á með- m skor- vísað af síðustu viku voru leikmenn RN Löwen ákveðnir í að sækja tvö stig úr leiknum Velenje í gær. Þeir tóku forystu snemma leiks og héldu ekki allt til leiksloka, m.a. munaði tveimur mörkum á liðunum að loknum fyrri hálf- leik, 17:15. Næsti leikur RN Löwen í meistaradeild- inni verður 22. nóvember. Þá sækja Guðjón, Ólafur og Snorri leikmenn Gorenje Velenje heim til Slóveníu. Það verður jafnframt síð- asti leikur liðanna í meistaradeildinni. Eftir sjöttu umferð riðlakeppninnar, sem lýkur sunndaginn 22. nóvember, verður gert hlé á henni fram í miðjan febrúar vegna Evr- ópumeistaramóts landsliða sem fram fer í Austurríki í janúar. iben@mbl.is kahæstur í Karlsruhe BALDUR Bett knattspyrnumaður skrifaði í gær- kvöld undir tveggja ára samning við Fylkismenn. Baldur, sem er 29 ára gamall miðjumaður, kemur til Árbæjarliðsins frá Valsmönnum sem hann hefur leikið með frá árinu 2007 en þar áður var hann í her- búðum FH-inga og lék með þeim á árunum 2000- 2006. Alls hefur Baldur leikið 142 leiki í efstu deild og skorað í þeim 5 mörk. Samningur Baldurs við Hlíðarendaliðið var út- runninn og er honum ætlað að fylla skarð Ólafs Stígssonar sem ákvað að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Baldur Bett er sonur James Bett, fyrrverandi landsliðsmanns Skota sem lék með Val og KR á árum áður, en James Bett hefur einmitt verið ráðinn að- stoðarmaður Gunnlaugs Jónssonar, þjálfara Vals. Baldur er annar leikmað- urinn sem Fylkismenn fá til liðs við sig í haust en nýlega gekk Oddur Ingi Guðmunds- son til liðs við Árbæinga frá Þrótti Reykjavík en Oddur lék með öllum yngri flokkum Fylkis. Fleiri leikmenn munu bætast í hóp Fylkismanna á næstu vikum en þeir hyggjast fá tvo leikmenn til viðbótar fyrir baráttuna á næsta tíma- bili. Fylkismenn höfnuðu í 3. sæti í Pepsi- deildinni í sumar og unnu sér keppnisréttinn í Evrópudeild UEFA, ásamt KR og Breiðabliki. gummih@mbl.is Baldur yfirgefur pabba og fer í Fylki Baldur Bett Ljósmynd/Skúli Sigurðsson Lítil og lipur Kristi Smith er ekki há í loftinu en sýndi strax að hún styrkir Keflavíkurliðið umtalsvert. Hér skorar hún í leiknum gegn Snæfelli í gærkvöld án þess að Hólmarar nái að hindra hana. Kristi Smith small inn í lið Keflavíkur í fyrsta leiknum „Ég bjóst við kulda á Íslandi“ Eftir Skúla Sigurðsson sport@mbl.is ÞAÐ var eins og nýtt Keflavíkurlið væri mætt til leiks í gær þegar það tók á móti Snæfelli í Iceland Express-deild kvenna. Lokastaðan í Toyotahöllinni var 83:56 og mátti augljóslega sjá á heimastúlkum að liðið hefur öðlast nýtt líf með tilkomu Kristi Smith sem spilaði sinn fyrsta leik með liðinu í kvöld. Frá fyrstu mínútu voru heimastúlkur með yfir- höndina og staðan eftir fyrsta leikhluta var 23:5, þeim í vil. Sigurinn var aldrei í hættu og Keflavíkurstúlkur eru líkast til komnar á beinu brautina eftir verstu byrjun í sögu félagsins. Forráðamenn Keflavíkurliðs- ins ákváðu eftir leikinn gegn Njarðvík á dögunum að skipta um erlendan leikmann, leystu Violu Beybeyah undan samningi sínum og fengu í staðinn Kristi Smith. Munurinn á þessum leikmönnum getur varla verið meiri. Kristi er rétt um 160 cm á hæð og gríðarlega snöggur bakvörður sem spilaði prýðilega vel í gær- kvöldi. Stúlkan skilaði 21 stigi og stal 6 boltum. Þessi skipti hjá Jóni Halldóri voru svo sannarlega liðinu til góðs því sjálfstraust og leikgleði liðsins er gjörbreytt frá fyrri leikjum. Kristi var að vonum sátt með sinn fyrsta leik á Ís- landi. „Fram að þessu hefur þetta verið fínt. Ég bjóst við kulda þegar ég heyrði nafnið Ísland og það stóðst væntingar ef svo má að orði komast. Ég náði að setja niður nokkur skot og er bara nokkuð ánægð með minn leik í kvöld. Ég er enn að komast inn í sóknar- leik liðsins og það tekur smá tíma en þetta byrjar vel og ég er gríðarlega sátt við allt hér í Keflavík,“ sagði Kristi við Morgunblaðið. „Þessi stúlka smellpassar inn í okkar hóp. Hún er mjög góður leikmaður og gerði nákvæmlega það sem hún var beðin um að gera hér í kvöld. Hún er leiðtogi og smitar út frá sér. Það sást í kvöld að sjálfstraustið í mínu liði var allt annað en það er búið að vera hing- að til. Einnig var leikur okkar hraðari þannig að nú er bara allt upp á við.“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur. N1 Deildin KARLAR Fimmtudagur Höllin Akureyri Kaplakriki Akureyri - Stjarnan FH - Grótta 19:00 19:30 2009 - 2010

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.