Morgunblaðið - 21.11.2009, Page 3
Eftir Helga Reyni Guðmundsson
sport@mbl.is
MIÐHERJINN Hlynur Bæringsson hefur farið
vel af stað með Snæfelli í byrjun tímabils og er
með hæsta framlag leikmanna deildarinnar eftir
fyrstu sex umferðirnar. Í gærkvöldi heimsóttu
Snæfellingar ÍR í Kennaraháskólann og unnu á
endanum þægilegan sigur, 92:72.
Hlynur átti góðan leik að vanda með 14 stig og
14 fráköst og fór fyrir sínum mönnum. Spurður
hvort undirbúningstímabilinu hafi verið háttað
öðruvísi í ár en áður hafði Hlynur þetta að segja:
„Í sumar lagði ég mun meiri áherslu á að skjóta
en ég er vanur. Ég missti
skotið hjá mér í fyrra og í
raun missti ég sjálfstraustið í
skotunum. Maður veit að þeg-
ar menn skilja mann eftir op-
inn trekk í trekk fyrir utan er
eitthvað ekki eins það á að
vera. Ég ákvað því bara að
kippa því í lag í sumar. Ég veit
að ég get skorað meira en ég
hef gert síðustu tímabil, við
höfum bara verið með þannig
lið undanfarin ár að ég hef ekki endilega þurft að
skora mikið þar sem margir af okkar leikmönnum
hafa getað skorað.“ Sem kunnugt er teflir Snæfell
fram nýjum bandarískum leikmanni, Sean Bur-
ton. Hlynur hefur trú á að hann muni styrkja liðið
í komandi átökum. „Sean hefur mjög mikla hæfi-
leika og er ein besta skytta sem ég hef séð þó
hann hafi ekki sýnt það í kvöld, en ég vona að
hann fatti það sjálfur fljótlega. Við eigum bara
eftir að segja honum að hann sé atvinnumaður og
að hann þurfi að skjóta meira. Hann átti kannski
ekki sinn besta leik hér í kvöld og kannski vantar
enn eitthvað upp á sjálfstraustið hjá honum. Ég
er klár á því að hann á eftir að komast betur inn í
þetta og á eftir að hjálpa okkur mikið í vetur,“
sagði Hlynur Bæringsson.
„Sean Burton er ein besta skytta sem ég hef séð“
Hlynur
Bæringsson
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2009
RaymondDomenech,
landsliðsþjálfari
Frakka, er
862.000 evrum
ríkari, sem jafn-
gildir 160 millj-
ónum króna, eftir
að hafa komið
Frökkum í úr-
slitakeppni HM í Suður-Afríku.
Franska tímaritið France Football
greindi frá þessu.
Domenech nýtur ekki mjög mik-ils trausts í heimalandi sínu. Í
skoðanakönnum sem franska blaðið
Le Parisen efndi til sögðust 43%
þeirra sem tóku þátt vilja að Dome-
nech stýrði ekki franska landsliðinu
á HM, 39% sögðu að hann ætti að
vera áfram við stjórnvölinn en 18%
höfðu enga skoðun.
Paul Hart, knattspyrnustjóriPortsmouth, kveðst ekki vera
búinn að ákveða hvort hann setur
Hermann Hreiðarsson beint í lið sitt
fyrir leikinn gegn Stoke í ensku úr-
valsdeildinni sem fram fer á morg-
un. Hermann hefur loksins náð sér
af meiðslum sem hann hefur glímt
við síðan í ágúst en hann hefur misst
af öllum leikjum Portsmouth.
Það er frábærtað fá Her-
mann aftur, það
er gífurlegur liðs-
auki fyrir okkur.
Nú eigum við eft-
ir að sjá hvernig
hann jafnar sig
eftir leikinn í vik-
unni og svo met-
um við stöðuna,“
sagði Hart. Reiknað er með að Her-
mann verði í leikmannahópnum
gegn Stoke en óvíst er að hann taki
þátt í leiknum.
Garðar Gunn-laugsson
náði ekki að heilla
forráðamenn
skoska úrvals-
deildarliðsins
Falkirk en
Skagamaðurinn
hefur verið til
reynslu hjá liðinu
þessa vikuna. ,,Við skoðuðum Gunn-
laugsson en við munum ekki semja
við hann. Ég hef þegar fundið leik-
menn sem ég vil fá til liðs við mig í
janúar,“ segir Eddie May, knatt-
spyrnustjóri liðsins í gær.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
SNÆFELL lék án stórskyttunnar
Sigurðar Þorvaldssonar en það kom
þó ekki að sök. Sigurður glímir við
hnémeiðsli en Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari Snæfells, tjáði Morg-
unblaðinu að hann yrði ekki lengi frá.
Um bólgur í hné væri að ræða og Sig-
urður hefði þurft hvíld vegna þessa.
Hann yrði væntanlega klár í slaginn
þegar Snæfell mætir Grindavík eftir
viku.
Gestirnir byrjuðu leikinn mun bet-
ur og náðu strax þægilegu forskoti í 1.
leikhluta. Heimamenn söxuðu hins
vegar á forskotið í 2. leikhluta þar sem
þeir léku pressuvörn sem setti leik
Snæfells í uppnám um stundarsakir.
Snæfell hafði þó yfir í hálfleik, 32:39,
en ÍR-ingum tókst að minnka muninn
niður í eitt stig á tímabili.
Jón Ólafur hrökk í gang
Í seinni hluta 3. leikhluta hristu
Hólmarar Breiðhyltinga endanlega af
sér. Jón Ólafur Jónsson hrökk í gang
svo um munaði og setti allt niður á
skömmum tíma. Skyndilega var mun-
urinn orðinn rúmlega 20 stig og það
var meira en lið ÍR-inga gat brúað
gegn öflugri vörn Snæfells. Í síðasta
leikhlutanum var í raun formsatriði að
ljúka leiknum enda var staðan 48:71
eftir þrjá leikhluta. Jón Ólafur var
stigahæstur Hólmara með 24 stig og
megnið af þeim kom í seinni hálfleik.
Emil Þór Jóhannsson skilaði 18 stig-
um en hann kom frá Breiðabliki í
sumar. Emil styrkir lið Snæfells um-
talsvert, sem og Sveinn Davíðsson
sem kom frá Skallagrími. Hólmarar
eru komnir með bandarískan leik-
stjórnanda sem er að koma sér inn í
leik liðsins en lofar góðu. Hann er
reyndar ekki nema 175 cm á hæð en
enginn skyldi vanmeta Sean Burton
því Ingi fékk hann til félagsins að vel
athuguðu máli.
ÍR-ingar reyna að vinna sig út úr
þeim vandræðum sem fylgdu því að
missa leikstjórnandann Sveinbjörn
Claessen sem sleit krossband.
Reynsluboltinn Eiríkur Önundarson
er kominn á ferðina aftur en það er
fyrr en áætlað var því Eiríkur braut
hnéskel síðasta vor. Steinar Arason
hefur leikið vel það sem af er hausti
með ÍR en náði sér ekki alveg á strik
gegn Snæfelli: „Við unnum fyrstu tvo
leikina eftir að Sveinbjörn meiddist
en síðan höfum við tapað. Það er nátt-
úrlega stórt skarðið sem hann skilur
eftir sig, bæði varnar- og sóknarlega.
Við máttum illa við þessu því við erum
ekki með Kana. Við erum ekki með
það mikla breidd að við megum við
því að missa svo mikilvægan leik-
mann úr liðinu,“ sagði Steinar, sem
skoraði átta stig að þessu sinni.
Morgunblaðið/Ómar
Smár en knár Sean Burton lék sinn fyrsta „alvöruleik“ með liði Snæfells í gær.
ÍR að sogast niður í neðri hlutann
Snæfell úr Stykkishólmi gerði góða
ferð til Reykjavíkur í gærkvöldi og
vann öruggan sigur á ÍR-ingum í
íþróttahúsi Kennaraháskólans, 92:72.
Snæfell er í ágætum málum í efri
hluta deildarinnar með 10 stig. ÍR-
ingar eru hins vegar að sogast niður í
neðri hlutann og að óbreyttu er bar-
átta fram undan hjá þeim til að kom-
ast í úrslitakeppnina.
Jón Ólafur
hitnaði og
Snæfell vann
Golfklúbbur Reykjavíkur
óskar eftir áhugasömum
aðilum til að sjá um rekstur
veitingasölu á Korpúlfsstöðum
Golfklúbbur Reykjavíkur óskar eftir áhugasömum aðilum
til að sjá um rekstur veitingasölu á Korpúlfsstöðum.
Um er að ræða rekstur sem stendur yfir í 6 mánuði á ári,
góð aðstaða er fyrir hendi. Gerðar eru miklar kröfur um
gæði og vöruúrval hjá viðkomandi. Heimsóknir eru um
30.000 þúsund á Korpúlfsstaðavelli á hverju sumri og
því góður vettvangur fyrir góðum rekstri.
Áhugasamir sendið upplýsingar fyrir 15. desember
á box@mbl.is - merkt Korpa 1927.
völlur Njarð-
assinn“ en í ár
fyrra við-
di voru það
ónin úr Njarð-
þangað hafa
64, og áttu
að þessu sinni.
tir sjö umferð-
á toppnum.
ikur hafi verið
egar þriggja
ar Magnús Þór
an í úr þröngu
kt hið sama á
itaður hefur
upplifað en þá fór leikklukka hússins ekki í gang og
dómarar leiksins dæmdu körfuna gilda. Leikur
Njarðvíkurliðsins fínslípast með hverjum leiknum
og óhætt er að segja að Njarðvíkurliðið sé til alls lík-
legt í ár þrátt fyrir að hafa ekki styrkt lið sitt með
erlendum leikmanni.
Jonathan Smith, nýr erlendur leikmaður Blika,
lenti á Keflavíkurflugvelli í gær og er kannski ekki
hægt að leggja dóm á frammistöðu hans eftir þenn-
an leik. Ljósi punkturinn í leik gestanna var ungur
leikmaður að nafni Arnar Pétursson sem sýndi á
tímum fína takta, en trú liðsins á þessu verkefni var
lítil og því fór sem fór.
Hrafn Kristjánsson var hinsvegar ekki sammála
því eftir leik. „Ég er verð að vera ósammála því að
við höfum ekki haft trú á þessu í kvöld. Við höfum
fulla trú á því sem við erum að gera en við vissum að
þetta yrði erfitt hér í kvöld. Við erum að ganga í
gegnum breytingaskeið hjá mínu liði. Við erum að
skipta um leikmenn og okkur vantar klárlega þessa
ógn í teignum. Við lentum í villuvandræðum
snemma leiks sem setti okkur í þá stöðu að þurfa að
spila svæðisvörn mikinn hluta leiksins. Okkur vant-
aði fleiri leikmenn og fórum því þá leið að fá tvo fyr-
ir einn, þannig að við erum bara að vinna í okkar
málum og höldum ótrauðir áfram,“ sagði Hrafn
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks.
Kollegi hans hjá Njarðvík var hinsvegar nokkuð
sáttur við sína menn í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta leit kannski út fyrir að vera bara formsatriði
fyrir okkur en það var það alls ekki. Þeir eru búnir
að vera í vandræðum með mannskap en þeir spiluðu
bara ágætlega. Þrátt sigurinn finnst mér við enn
eiga fullt inni. Lítið var skorað og vörn beggja liða
var nokkuð fín. Leikurinn var ekkert sérlega glæsi-
legur en við komum hingað til að vinna í kvöld og
gerðum nóg til þess,“ sagði Sigurður nokkuð hóg-
vær um sitt lið.
“ Njarðvíkinga gleymdur og grafinn
ðsins
H-
ngum liðs-
r fimm
knatt-
band við
tig Krohn
um árum.
eðal fjár-
um hvort
m en Atli
Atla